Læknablaðið - 15.02.2011, Qupperneq 4
EFNISYFIRLIT
B RITSTJÓRNARGREINAR
71
Tryggvi Helgason
Offita barna
Offita barna eykst á Vesturlöndum og ef ekki tekst að snúa þróuninni við mun það
hafa mikil áhrif á lífsgæði og ævilíkur þjóða. Læknar og allir sem láta sig heilsu
íslenskra barna varða verða að taka höndum saman og stýra samfélaginu til
heilbrigðari lífsstíls.
73
Davíð O. Arnar
Stefnubreyting í blóðþynningarmeðferð gáttatifs
Gáttatif er algengur sjúkdómur og á fimmta þúsund núlifandi íslendingar hafa
greinst með þessa takttruflun. Meðal alvarlegustu fylgikvilla gáttatifs er segarek
frá vinstri gátt en talið er að fimmtungur heilaáfalla sé til kominn vegna þessarar
takttruflunar.
FRÆÐIGREINAR
75
Kristján Þór Magnússon, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Þórarinn Sveinsson, Erlingur Jóhannsson
Líkamshreyfing 9 og 15 ára íslenskra barna í Ijósi lýðheilsumarkmiða
Niðurstöðumar benda til þess að alltof lágt hlutfall 9 og 15 ára barna hreyfi sig nægjanlega mikið. Mikilvægt
er að rannsaka hvaða leiðir séu færar til þess að breyta þessu, meðal annars í samvinnu við heimili, skóla,
íþróttahreyfinguna og sveitarfélög.
Jón Gunnlaugur Jónasson, Jón Hrafnkelsson, Elínborg Ólafsdóttir
Skjaldkirtilskrabbamein á íslandi tímabilið 1955-2004
Klínísk og meinafræðileg faraldsfræðirannsókn
Frá Krabbameinsskrá íslands fengust upplýsingar um alla sem greindust með skjaldkirtilskrabbamein á
tímabilinu 1955-2004, alls 1025 manns. Sjúkdómurinn greinist alloft óvænt við krufningu. Öll vefjasvör
sjúklinga og krufningaskýrslur voru yfirfarin.
Ásgeir Þór Másson, Þórólfur Guðnason, Guðmundur K. Jónmundsson, Helga Erlendsdóttir,
Karl G. Kristinsson, Már Kristjánsson, Ásgeir Haraldsson
Beina- og liðasýkingar barna á íslandi
af völdum baktería á tímabilinu 1996-2005
Varpað er Ijósi á mikilvæga þætti beina- og liðasýkinga á íslandi. Nýgengið vex í yngsta aldurshópnum,
einkum þar sem ræktun er neikvæð. Algengasti orsakavaldur er S. aureus, svo K. kingae.
Sonja Baldursdóttir, Bjarni Torfason, Gunnlaugur Sigfússon, Kolbrún Benediktsdóttir, Ragnar Bjarnason
Blóðsegarek til lungna hjá unglingsstúlku
Lýst er blóðsegareki til lungna hjá stúlku sem var í bráðri lífshættu þar sem blóðseginn takmarkaði blóðflæði
verulega. í bráðaskurðaðgerð tókst að fjarlægja blóðsegann í tæka tíð.
Jóhannes F. Skaftason, Jakob Kristinsson, Þorkell Jóhannesson
Brot úr sögu stungulyfja.
Með sérstöku tilliti til íslenskra aðstæðna
Morfín er fyrsta lyfið sem gefið var undir húð úr lyfjadælu og gegnum holnál. íslenskir læknar virðast ekki hafa
notað stungulyf við lækningar fyrr en um aldamótin 1900 og aðgengi að stungulyfjum og notkun þeirra verið
lítil fram undir 1930.
68 LÆKNAblaðið 2011/97