Læknablaðið - 15.02.2011, Blaðsíða 12
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla I. Lýsandi tölfræði á einkennum úrtaks rannsóknarinnar.
9 ára 15 ára
Stelpur (n=95) meðaltal (SD)7 miðgildi (QD) Strákar (n=81) meðaltal SD*/ miðgildi (QD) 95% ÖM fyrir mun milli kynja Stelpur (n=72) meðaltal (SD)*/ miðgildi (QD) Strákar (n=90) meðaltal (SD)*/ miðgildi (QD) 95% ÖM fyrir mun milli kynja
Aldur (ár) 9,4 (0,3)* 9,4 (0,3)* (-0,1; 0,08) 15,3(0,3)* 15,3 (0,3)* (-0,1; 0,1)
Hæö (cm) 138,0(7,0)* 138,9 (6,0)* (-0,8; 3,1) 165,1 (6,0)* 176,5(7,0 )* (9,1; 13,4)
Þyngd (kg) 32,1 (4,0) 32,2 (4,6) (-1,2; 2,4) 58,0 (6,4) 63,5 (6,3) (4,8; 11,1)
Húðþykkt (mm)1 40,0 (12,9) 31,0 (11,9) (3,0; 12,0) 58,8 (16,2) 37,8 (17,0) (13,5; 25,0)
BMI (þyngd/hæð2) 17,1 (1,3) 16,7(1,7) (-0,6; 0,7) 20,4 (1,7) 20,7 (2,2) (-0,8; 0,9)
Hlutfall of þungra/of feitra* 14,7% 22,2% - 15,3% 22,2% -
Slög/mín alla daga 580,9 (101,0) 683,8(115,7) (48,4; 152,6) 449,6 (79,9) 571,4 (108,4) (56,4; 175,6)
Slög/mín virka daga 610,0 (94,4) 728,1 (123,4) (48,4; 152,6) 473,9 (87,0) 594,8 (126,0) (59,3; 178,1)
Slög/mín um helgar 490,7 (122,9) 584,5 (139,3) (14,3; 139,2) 359,9 (96,3) 476,0(165,8) (56,4; 175,8)
Hreyfing yfir 3400 slög/mín (mín/dag) 20,0 (8,2) 30,2 (12,6) (4,4; 13,4) 22,5 (7,8) 36,1 (13.7) (8,3; 18,4)
Meðalfjöldi lota yfir 3400 slög/mín/dag 12,2 (4,1) 17,2 (5,6) (2,3; 6,9) 9,7 (2,6) 13,2 (3,7) (1,9; 5,2)
Meðallengd lota yfir 3400 slög/mín/dag 1,6 (0,2) 1,7 (0,2) (0,02; 0,2) 2,4 (0,4) 2,8 (0,6) (0,1; 0,6)
t Húöþykkt var mæld á fjórum stöðum (bicep, tricep, subscapular og suprailiac) og mælingar hvers staðar lagðar saman.
t Ofþyngd og offita meðal 9 og 15 ára barna var greind út frá viðmiðum Cole og félaga frá árinu 2000.20
SD: staðalfrávik (e. standard deviation)
QD: fjórðungsfrávik (e. quartile deviatiorí)
ÖM: Öryggismörk
BMI: Body Mass lndex= líkamsþyngdarstuðull
Árið 2008 gaf Lýðheilsustöð út ráðleggingar
um hversu mikið almenningur skuli hreyfa sig að
jafnaði svo heilsubót hljótist af.14 Ráðleggingamar
byggjast á erlendum rannsóknum og svipuðum
viðmiðum hinna Norðurlandanna. Við mat á
ákefð hreyfingar í þessari rannsókn var stuðst
við viðmið Guinhouya og félaga á neðri mörkum
meðalerfiðrar hreyfingar sem miðast við 3400
slög/mín.15 Samræmist þetta viðmið niðurstöðum
annarra rannsókna sem styðjast allar við neðri
mörk sem ekki eru lægri en 3000 slög/mín.12'16,17
Tilgangur þessarar þversniðsrannsóknar var: a)
að rannsaka í hvaða mæli 9 og 15 ára gömul börn
og unglingar uppfylltu nýlegar ráðleggingar um
æskilega hreyfingu og ákefð hennar samkvæmt
niðurstöðum viðurkenndra hlutlægra mælinga
(hröðunarmælaslög), og b) að kanna hvort þættir
eins og búseta, aldur, kyn og holdafar tengdust
meðalerfiðri og erfiðri hreyfingu.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknarsnið og val á þátttakendum
Niðurstöðurnar í þessari grein eru hluti af
rannsókninni Lífsstíll 9 og 15 ára íslendinga.
Tengdum niðurstöðum er varða þetta úrtak
íslenskra barna hafa verið gerð skil áður.4-18 Gagna
var aflað að fyrirmynd evrópskrar rannsóknar,
European Youth Heart Study (EYHS)19 sem
ætlað var að kanna áhættuþætti hjartasjúkdóma
meðal barna og unglinga. Rannsóknin var gerð
á tímabilinu september 2003 til janúar 2004 í
18 skólum á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði), í þéttbýliskjörnum
(Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík) og dreifbýli
(Eyjafirði, Þingeyjarsýslu, Fljótsdalshéraði) á
Norðausturlandi sem valdir voru af handahófi.
Úrtak skólanna var valið þannig að það
endurspeglaði sem best hlutfallslegan fjölda
barna alls þýðisins miðað við tegund búsetu.
Öllum 9 ára (N=662) og 15 ára (N=661)
nemendum skólanna 18 var boðin þátttaka í
rannsókninni. Helmingur þeirra sem þáðu að
taka þátt (n=660) var handahófsvalinn til að
undirgangast hreyfihluta rannsóknarinnar og
skiluðu 338 einstaklingar nothæfum gögnum
(176 9 ára og 162 15 ára). Upplýsingar um
einkenni úrtaksins og samanburð á kynjum
eftir aldri eru í töflu I. Um 46% þátttakenda í
hreyfihluta rannsóknarinnar komu úr skólum á
höfuðborgarsvæðinu, 41% frá þéttbýliskjörnum
á Norðausturlandi og 13% þátttakenda bjuggu
í dreifbýli. Rannsóknarleyfi var veitt af Vís-
indasiðanefnd (VSNa2003060014/03-12/BH/~).
Holdafarsmælingar
Þátttakendur rannsóknarinnar voru hæðar- og
þyngdarmældir á léttum nærfatnaði og samkvæmt
hefðbundnum aðferðum með nákvæmni uppá 0,1
sm (hæð) og 0,1 kg (þyngd). Þykkt húðfellinga
var mæld með húðfellingamæli á fjórum stöðum
á líkamanum: aftan á upphandlegg (e. tricep),
framan á upphandlegg (e. bicep), neðan herða-
blaðs (e. subscapular) og ofan mjaðmakambs
76 LÆKNAblaðið 2011/97