Læknablaðið - 15.02.2011, Side 14
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla II. Leiðrétt meðaltöl fyrir hreyfingu (mínútur) af miðlungserfiðri ákefð hreyfingar
samkvæmt besta mati fjölþrepa aðhvarfsgreiningarlíkans þar sem sést samanburður á kynjum
eftir aldri og búsetu. Reiknað var með meðalhúðþykkt fyrir bæði kyn samkvæmt töflu I.
9 ára 15 ára*
Meðaltal (mín) Meðaltal (mín)
Meðaltalslengd hreyfingar af Borgf 24,4 30,1
miðlungserfiðri og erfiðri ákefð meðal stelpna Bær 19,5 24,7
Sveit 17,0 20,9
Meðaltalslengd hreyfingar af Borg 34,8 40,4
miðlungserfiðri og erfiðri ákefð meðal stráka* Bær 28,9 34,1
Sveit 24,8 29,7
* strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur (p<0,0001) t börn í borg hreyfðu sig marktækt meira en börn í bæjum og sveitum (p<0,03) 115 ára hreyfðu sig marktækt lengur á þessari ákefð samanborið við 9 ára börn (p=0,006)
breytunni var félagshagfræðilegur bakgrunnur
barnartna (mæld sem flokkabreyta - lágur, mið,
hár - út frá tekjum foreldra). Tölfræðiforritið R
(version 2.11.1, www.r-project.org/) var notað við
úrvinnslu gagna þessarar rannsóknar og nlme
aðgerðapakkinn við greiningu fjölþrepalíkansins.
Niðurstöður
Lýsandi upplýsingar um úrtak rannsóknarinnar
með tilliti til holdafars og hreyfibreyta eru settar
fram í töflu I. Þar er einnig að finna tölfræðilegan
samanburð á þessum breytum milli kynja.
Niðurstöður fjölþrepa aðhvarfsgreiningar leiddu
í ljós að hreyfing yfir 3400 slög/mín tengdist kyni
þannig að strákar hreyfðu sig lengur af þessari
ákefð (p<0,0001), eldri börn hreyfðu sig lengur
af þessari ákefð (p=0,006), aukin húðþykkt var
tengd minni hreyfingu af þessari ákefð (p=0,001)
og að börn á Reykjavíkursvæðinu hreyfðu sig
lengur af þessari ákefð samanborið við börn í
0-15 mín 15-30 mín 30-45 min 45-60 min 60-75 min 75mín +
Mynd 2. Meðallengd daglegrar hreyfingar af miðlungserfiðri ákefð (>3400 slög/mín) meðal
176 9 ára barna.
bæjum (p=0,03) og strjálbýli á Norðausturlandi
(p=0,006). Breytileikinn í meðaltalsfjölda mínútna
yfir 3400 slög/mín hvern dag var mun minni
milli skóla en innan skóla. Innanflokkafylgni
er hlutfall heildarbreytileikans í gildum fjölda
mínútna yfir 3400 slögum/mín milli skóla og
reiknaðist 24%, þannig að lág fylgni var á milli
gilda breytunnar innan hvers skóla. Um 46%
útskýranlegs breytileika í meðaltalsfjölda mín
yfir 3400 slög/mín/dag milli skóla (stig 2)
útskýrðist af því á hvaða svæði skólarnir voru
(höfuðborgarsvæði, Norðausturland - þéttbýli,
Norðausturland - dreifbýli). Breytumar aldur, kyn
og þykkt húðfellinga útskýrðu aftur á móti mun
lægra hlutfall útskýranlegs breytileika hreyfingar
innan skóla (stig 1), eða rúm 6%. Leiðrétt meðaltöl
samkvæmt fjölþrepa aðhvarfslíkani fyrir lengd
hreyfingar af meðalerfiðri og erfiðri ákefð innan
hvers hóps barna er að finna í töflu II þar sem sjá
má að almennt eyddu 15 ára börn fleiri mínútum
á dag í hreyfingu af þessari ákefð samanborið
við 9 ára börn. Flest 9 ára börn sem og 15 ára
stúlkur hreyfðu sig í 15-30 mínútur á dag af
meðalerfiðri og erfiðri ákefð í (myndir 2 og 3)
meðan algengast var að 15 ára drengir hreyfðu sig
að jafnaði í 30-45 mínútur á dag af þessari ákefð
(mynd 3). Samkvæmt viðmiðum um meðalerfiða
og erfiða hreyfingu uppfylltu um 5% 9 ára barna
ráðleggingar Lýðheilsustöðvar, eða 2% stúlkna
og 8,5% 9 ára stráka. Hlutfall 15 ára unglinga er
ekki nema um 9% að meðaltali, eða 1,5% stúlkna
og 14,5% drengja sem uppfylltu þessar sömu
ráðleggingar (mynd 4).
Umræða
Lágt hlutfall 9 og 15 ára bama hreyfði sig
í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar
samkvæmt hlutlægum mælingum með hröðunar-
mælum. Strákar hreyfðu sig að jafnaði meira en
stelpur og hver lota meðalerfiðrar og erfiðrar
hreyfingar var ein til tvær mínútur að jafnaði.
Níu ára strákar hreyfðu sig meira en þeir 15
ára, sé litið til hreyfingarinnar út frá slögum/
mínútu, en ekki var tölfræðilega marktækur
munur á meðalerfiðri og erfiðri hreyfingu þeirra.
Svipaða sögu er að segja um samanburð stelpna.
Samkvæmt fjölþrepa aðhvarfsgreiningu tengdist
aukin hreyfing af meðalerfiðri og erfiðri ákefð
minni þykkt húðfellinga, því að vera strákur, vera
15 ára og búa á höfuðborgarsvæðinu frekar en í
bæ eða sveit.
Almenn staða hreyfingar meðal bama og
unglinga hvað varðar ákefð og tímalengd er um
margt óljós vegna þeirra mismunandi hröðunar-
mælaviðmiða sem í umferð eru.15'17 Sú eining
78 LÆKNAblaðið 2011/97