Læknablaðið - 15.02.2011, Qupperneq 44
AUGLÝSING
SÉRFRÆÐIN
Á M
Nordic Specialist Course
in Palliative Medicine
2009-20011
Closing date for application - 31.03.2011
Samnorrænt sérfræðinám lækna í líknarmeðferð
Lífið, samtök um líknarmeðferð á íslandi, hafa í samvinnu við norræn sérfræðifélög líknarlækna staðið fyrir
sérfræðinámi í líknarmeðferð fyrir lækna frá og með haustinu 2003. Fimmta námskeiðið hefst haustið 2011.
Námið er tveggja ára fræðilegt nám sem skiptist í sex 5 daga námskeið:
Introduction to palliative medicine and to course project. Symptom management in palliative care.
Þrándheimur, vika 39, 26.-30. október 2011.
The imminently dying. Audit in palliative care.
Helsinki, vika 4, 23.-27. janúar 2012.
Communication I. Ethics. Teamwork.
Málmey, vika 17, 23.-27. apríl 2012.
Decision making in palliative medicine. Emergencies in palliative medicine. Complementary and
aiternative treatments. Motor neuron disease. Teaching. Follow up on course project.
Bergen, vika 39, 24.-27. september 2012.
Communication II. Pain. Follow up on course project.
Kaupmannahöfn, vika 4, 21 .-25. janúar 2013.
Management, organisation. Symptom control in non-malignant diseases.
Presentation of research projects Examination and evaluation.
Stokkhólmur, vika 16, 15.-19. apríl 2013.
Námskeiðunum fylgja heimaverkefni, þátttakendur þurfa að skila afmörkuðu rannsóknarverkefni og skriflegt próf
er í lokin. Kennt er á ensku. Tveir íslendingar eiga þátttökurétt. Vefsíða: www.nscpm.org
Kostnaður fyrir öll námskeiðin er 4040 evrur, auk húsnæðis og fæðis. Áhugasamir hafi samband við Valgerði
Sigurðardóttur, yfirlækni á líknardeild Landspítala í Kópavogi, sem gefur allarfrekari upplýsingar, sendir út
umsóknareyðublöð og er tilbúin að aðstoða við styrkumsóknir. Sími: 543 6337; valgersi@landspitali.is
Líknarlækningar eru viðkennd sérfræðigrein í Bretlandi og Ástralíu, í nokkrum Austur-Evrópulöndum og í Asíu. Þær
verða væntanlega viðurkenndar sem sérfræðigrein í Svíþjóð og Noregi innan fárra ára og námskeiðið samsvarar
þeirri fræðilegu þekkingu sem þar verður krafist. Námið er einungis ætlað þeim sem hafa lokið sérnámi í læknisfræði
þannig að líknarlækningarnar verða undir- eða viðbótarsérgrein.
1 08 LÆKNAblaöið 2011/97