Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2011, Síða 47

Læknablaðið - 15.02.2011, Síða 47
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR ADHD Á LÆKNADÖGUM „Við stöndum frammifyrir þeim vanda að koma í vegfyrir misnotkun lyfjanna en tryggja um leið að þeir sem þurfi á þeim að haldafái þau," segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. „Umtalsverður fjárhagslegur ávinningur," segir Páll Matthíasson framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala. „Það sem skiptir máli er að nolkunin sé í samræmi við góð læknisfræðileg rök," segir Kristinn Tómasson formaður Geðlæknafélags íslands. en staðreyndir um misnotkun lyfjanna segja mér að svo sé ekki nema að hluta til." Standa vörð um góða þjónustu „Notkun meðal fullorðinna á metýlfenídat- lyfjum er hratt vaxandi og hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum," segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. „Aukningin er langmest hjá fullorðn- um en notkunin mæld í dagskömmtum lyfsins meðal bama hefur verið nokkuð stöðug. Spyrja má hvort þetta sé eðlileg þróun á notkun lyfsins og hvort við séum að nálgast hina sönnu þörf eða hvort notkunin sé ekki komin úr böndunum. Það er ekki deilt um að lyf sem innihalda metýlfenídat geti hentað fullorðnum mjög vel, þó þau séu eingöngu skráð til notkunar fyrir börn 6-18 ára. A hinn bóginn höfum við staðfest- ar upplýsingar um að slík lyf séu misnotuð af fullorðnum og sprautufíklum og gangi kaupum og sölum meðal þeirra á svörtum markaði. Við stöndum því frammi fyrir þeim vanda að koma í veg fyrir misnotkun lyfjanna en tryggja um leið að þeir sem þurfi á þeim að halda fái þau. Það er einnig áleitin spurning hvort allir þeir fullorðnu einstaklingar sem nú nota lyfið hafi farið í gegnum vandaða frumgreiningu og hvort önnur úrræði en lyfjagjöf hefðu hentað þeim jafn vel eða betur. Síðastliðið haust voru upplýsingar sóttar úr lyfjagagnagrunni landlæknisembættisins og kannað hverjir fengju meira en þrjá dagskammta af lyfinu. í ljós kom að margir fengu lyfseðla með slíkum skömmtum frá fleiri en einum lækni. Þegar athygli þeirra var vakin á þessu með bréfi frá landlækni kom í ljós að í sumum tilfellum átti þetta sér eðlilegar skýringar en í öðrum vissu læknar ekki um að sjúklingurinn væri einnig að fá lyfseðil frá öðrum læknum. Viðbrögð lækna við þessum aðgerðum voru mjög góð og ég hef fundið fyrir skilningi á því að ástandið sé ekki gott og að aukið eftirlit með ávísunum á þessi lyf sé nauðsynlegt. Síðastliðið haust skipaði þáverandi heilbrigðis- ráðherra, Álfheiður Ingadóttir, vinnuhóp sem hefur í kjölfarið lagt í vinnu til að átta sig á notkun- inni, þörfinni og vandanum. í vinnuhópnum áttu sæti auk mín Einar Magnússon, lyfjamálastjóri ráðuneytisins, Guðrún I. Gylfadóttir frá Sjúkra- tryggingum íslands og Jóhann Lénharðsson frá Lyfjastofnim. Fyrsta aðgerð vinnuhópsins var að skilgreina hverjir ættu að hafa leyfi til að ávísa metylfenídat-lyfjum. Niðurstaðan er að tak- marka lyfjaávísanir þessara lyfja við taugalækna, geðlækna, bamageðlækna og bamalækna. Önnur aðgerð var að finna leiðir til að draga úr fjölda nýrra notenda lyfjanna og þá með því að bæta frumgreininguna og var geðsviði Landspítala falið að hafa yfirumsjón með henni, það er hinum faglega hluta hennar. Til að ná sem mestri sátt við þá sem vinna á vettvangi með ADHD hjá full- orðnum hef ég, ásamt Kristni Tómassyni formanni Geðlæknafélags íslands og Páli Matthíassyni framkvæmdastjóra geðsviðs Landspítala, unnið að nánari útfærslu þessarar hugmyndar. Auk þessa vinnur nú hópur geðlækna og sálfræðinga að yfirferð og endurskoðun klínískra leiðbeininga um greiningu ADHD hjá bömum og fullorðnum og hefur þar hliðsjón af leiðbeiningum sem lagðar eru til grundvallar frumgreiningu og eftirfylgd í nágrannalöndum okkar. Þegar greiningarferli LÆKNAblaðið 2011/97 11 1

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.