Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2011, Síða 52

Læknablaðið - 15.02.2011, Síða 52
IUMRÆÐUR O G FRÉTTIR LÆKNADAGAR eitthvað sé að barninu sem ástæða er til að kanna betur. Með þetta að leiðarljósi er líka auðveldara að nálgast aðstandendur, leggja öll spilin á borðið og snúa þeim upp. Það er engin ásökun fólgin í því, heldur er þetta útskýrt sem vinnuregla sjúkrahússins. Þannig halda allir andlitinu og miklu auðveldara verður að eiga samstarf við aðstandendur. Skýrar vinnureglur minnka líkur á að tilfinningaleg vandamál skapist við einstök tilfelli. Hér vantar slíkar reglur. Þetta sem ég er að lýsa átti eingöngu við lærbrot, því orsakir annarra beinbrota getur verið flóknara að greina. Börn á öðru ári sem byrjuð eru að ganga fá oft smábrot sem verður að telja eðlileg þó gáleysi geti verið um að kenna. Eldri systkini geta einnig valdið beinbrotum smábarna ef þau eru að rogast með þau í fanginu eða veltast með þau. Skýringarnar geta því verið af ýmsum toga en það leysir okkur ekki undan þeirri Freud í íslendingasögum Fundur á vegum Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar í fundarsal Þjóðminjasafns laugardaginn 26. febrúar kl. 10.00. Fundarstjóri: Ólöf Garðarsdóttir Fyrirlesarar: Torfi Tulinius prófessor „ Veg þú aldri meir i inn sama knérunn en um sinn. “ Um endurtekningar og dauðaþrá í Brennu-Njáls sögu. Óttar Guðmundsson læknir „Brunnu beggja kinna björt Ijós á mig drósar" Um ástir og ástleysi í skáldasögunum. Kaffiveitingar. skyldu að rannsaka til hlítar hvert tilfelli og ekki síst ef grunur um misþyrmingu vaknar." Sigurveig leggur þunga áherslu á að alltaf skuli rannsaka hvort beinbrot stafi af misþyrmingum ef barnið er ekki farið að ganga. „Af hverju brotna hvítvoðungar?" það er spuming sem maður verður að spyrja sig. Böm sem ekki eru farin að tala eru þau börn sem helst eru útsett fyrir misþyrmingum. Þau geta ekki sagt frá hvað gerðist. Og ef áverldnn stafar af misþyrmingum eru þessi börn í lífshættu. Það er vitað að ofbeldi endurtekur sig og næsta skref getur orðið harðara. Það verður að segja það og fylgja málum eftir samkvæmt þeirri hræðilegu staðreynd að næsti áverki getur orðið barninu banvænn. Hér á landi eru sem betur fer ekki mörg tilfelli barna undir tveggja ára aldri sem koma inn með beinbrot. Af þeim eiga langflest sér eðlilegar skýringar en í starfi mínu hér á Landspítala hef ég séð tilfelli sem var örugglega misþyrming og tvö sem ég er nokkuð viss um að hafi verið af völdum ofbeldis. Við læknarnir vitum síðan ekkert hvað verður um málið eftir að við höfum tilkynnt það til barnavemdaryfirvalda nema komi til málaferla og maður verði kallaður til vitnis. Annars vitum við ekki hvernig málinu reiðir af. Við fáum ekki að vita neitt og þó það eigi sér skýringar, skilur það mann eftir í lausu lofti og það er slæmt að vita ekki hvort grunur martns reyndist réttur eða ekki." Ekki alltaf mannvonska Sigurveig segir að lokum að þó erfitt geti verið að koma að málum þar sem börn hafi orðið fyrir ofbeldi þá telji hún rétt að hafa í huga að ofbeldið þurfi ekki alltaf að stafa af hreinni mannvonsku. „Það er alltaf rangt, alltaf refsivert og alltaf ástæða til að stoppa það, en það hjálpar manni sjálfum að hafa í huga að manneskjan sem beitir ofbeldinu getur hafa verið aðframkomin af þreytu, átt í andlegum erfiðleikum, eða hafi engan stuðning frá umhverfinu. Sumir eru ekki hæfir til að hafa börn af ýmsum ástæðum og fyrir okkur sem sjáum þetta í starfi okkar er rétt að hafa þetta í huga þegar við þurfum að eiga samskipti við þann sem beitt hefur barn ofbeldi. Við dæmum ekki heldur sýnum skilning en gerum engu að síður það sem þarf að gera." 1 1 6 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.