Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2011, Qupperneq 58

Læknablaðið - 15.02.2011, Qupperneq 58
UMRÆÐUR O G FRÉTTI ÖLDUNGADEILD R Jón Hilmar Alfreðsson uHldungadeild A—' Læknafélags íslands Umsjón síðu Páll Ásmundsson Stjórn Öldungadeildar Sigurður E. Þorvaldsson formaður Jón Hilmar Alfreðsson ritari Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri Guðmundur Oddsson Óli Björn Hannesson Öldungaráð Hörður Þorleifsson Höskuldur Baldursson Kristín Guttormsson Leifur Jónsson Páll Ásmundsson Vigfús Magnússon Vefsíða Öldungadeildar finnst meðal annarra vefsíðna sérfélaga á síðu LÍ. Oft er gott það er gamlir kveða Svo segir í Hávamálum og eflaust er það rétt, að okkur yngri mönnunum (sic!) getur verið það til upplýsingar, sem hinir eldri hafa sagt og skrifað. Orðtakið kemur mér í hug sem ég fletti fyrstu eintökunum af Læknablaðinu frá árunum 1915 og 1916. Að vísu höfðu læknar norðan og austanlands með sér félag og gáfu út fjölritað blað sem nefnt var Læknablaðið, en frá árinu 1915 hefur blaðið komið út óslitið og ávallt verið vettvangur bæði fræða og félagsmála. Það sem vekur athygli mína er að þegar í þessum fyrstu tölublöðum er talsvert fjallað um fæðingafræði og það sem síðar var skilgreint sem kvenlækningar, graviditas extrauterina, mola hydatidosa, hyperemesis gravidarum, ecclampsia gravidarum, graviditas prolongata og sagt er frá fæðingu sem eigi varð lokið nema borað yrði gat á höfuð barnsins. Þessi umfjöllun þykir mér sýna hve þessi oft bráðhættulegu tilfelli hjá annars hraustum konum brunnu á læknum úti í héraði. Hins vegar leiddu menn alveg hjá sér óþarfa eins og ófrjósemi og liðu bæði ár og dagur uns til þess kæmi að það yrði rætt. Form umfjöllunar var gjarnan „casuistik" eða samantekt nokkurra tilfella sömu gerðar, en það var ekki orðin tíska á þessum árum að fara með staðtölur, varla hundraðshluta. Stundum er rætt um orsakir, til dæmis hyperemesis og ecclampsia og vandséð er að menn séu enn í dag miklu nær í þeim efnum. Varðandi meðferð vitnar Matthías Einarsson í þýskan höfund sem segir svo: „Von Stroganoff ist in der neueren Zeit die Morphium Behandlung mit Chloral sehr empfohlen worden." Skyldi magnesíumsúlfat sem er inni í dag vera virkara? I félagsmálum ber nokkuð á umræðu um þörf á „íslensku læknafélagi" sem næði til allra lækna landsins. LR var stofnað 1909 og gaf út Læknablaðið frá upphafi. Landsfélag hafði verið reynt að stofna um aldamótin 1900, en sú tilraun mistókst, einkum vegna þess að ókleift reyndist að ná mönnum saman á fund, jafnvel ekki annað hvert ár. Þeir sem árið 1915 hvetja til stofnunar landsfélags benda á að tímar séu breyttir, ekki sé lengur tilfinnanlegur læknaskortur, heldur séu læknar nú fleiri en embættin og eftir fáein ár verði sennilega embættislausir læknar víðsvegar um land. „Vér rekum oss þá á samkeppni, kosti hennar og lesti," segir Guðmundur Hannesson. Árið 1915 varð allsérstæð uppákoma í tveimur læknishéruðum, Eskifirði og Eyrarbakka. Ný- skipaðir læknar voru ofsóttir með býsna grófum hætti. Þá söknuðu menn heildarsamtaka að taka á málum. Um þetta segir Gunnlaugur Claessen í Læknablaðinu 1916: „Því miður eru þess fleiri dæmi en eitt, að læknar hér á landi eru lagðir í einelti af héraðsbúum, atvinnu þeirra spillt og mannorð þeirra svívirt, án þess að þeir virðist að nokkru leyti hafa til saka unnið." Fram kemur að á þessum árum fá læknar námsstyrki til utanferða, þó líklega eingöngu em- bættislæknar. Ljóst er hve mikil fagleg upplyfting þetta hefur verið, eins og glöggt kemur fram hjá Ingólfi Gíslasyni á Vopnafirði í lokaorðum greinargerðar hans um utanferð árið 1915: „Mjög finnst mér nauðsynlegt fyrir okkur, sem eru svona einangraðir og afskekktir að ferðast til útlanda við og við til þess að fræðast um sitt af hverju viðvíkjandi okkar fræðum og hressast eftir stritið og ófrelsið, sem við eigum við að búa." Skopmyndin Sigurður Sigurjónsson læknir er frábær teiknari. Margrir muna bókina Flora medicorum et chirurgorum sem kom út sem fylgirit Læknanemans 1971. Hún innihélt skemmtilegar skopmyndir af starfsfélögum og lærifeðrum. Sigurður hefur góðfúslega gefið öldungadeildinni leyfi til að birta myndir úr bókinni. Reynt verður að birta mynd þegar rými leyfir. Hafa skal í huga að myndirnar eru um það bil 40 ára gamlar. Margir þeirra sem myndirnar sýna eru þegar horfnir af sviðinu en aðrir komnir til ára sinna. Riðið er á vaðið með ástsælum prófessor í skurðlækningum. 122 LÆKNAblaðið 2011/97
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.