Læknablaðið - 15.02.2011, Page 66
Ljósmyndir lækna
Páll Ásmundsson Kaldbakshorn (508 m) er ábúðarmikið fjall sem snýr snarbröttum hamravegg að sjó sunnan
Kaldbaksvíkur, allgóðan spöl norðan Bjarnarfjarðar á Ströndum. Fjallið norðan víkurinnar heitir raunar
pallas@simnet.is Kaldbakur. Tvö býli, Kleifar og Kaldbakur, voru í víkinni en eru nú í eyði. Framantil í Kaldbakshorni
er lóðrétt gjá, Svansgjá, sem heitin mun eftir Svani á Svanshóli í Bjarnarfirði, fjölkunnugum manni sem
uppi var á þjóðveldisöld. Hann kemur við sögu í Njálu en hann var móðurbróðir Hallgerðar langbrókar
og faldi Þjóstólf fóstra hennar er hann hafði drepið Þorvald, fyrsta mann hennar. Launsonur Svans,
Brynjólfur rósti, drap Atla, húskarl Bergþóru á Bergþórshvoli. Sagt er að Svanur gengi dauður í Svansgjá
og væri þar vel fagnað.
Myndin er tekin í júlí 2003 á mína fyrstu stafrænu vél: JVC GCS5 sem var 1.2 megapixlar.
1 30 LÆKNAblaðið 2011/97