Læknablaðið - 15.04.2011, Side 3
Mynd og texti: Steinn Jónsson
Fundur Læknafélags Reykjavíkur í Borgarnesi
Dagana 18.-19. mars var haldinn vinnufundur á vegum stjórnar og samninganefndar Læknafélags
Reykjavíkur í Borgarnesi. Tilgangur fundarins var að ræða ástandið í heilbrigðisþjónustunni
og stöðu sjálfstætt starfandi lækna. Flutt voru framsöguerindi um nýjustu hagtölur í
heilbrigðisþjónustunni, nýleg lög um heilbrigðisþjónustu og sjúkratryggingar og rætt um
samninga sjálfstætt starfandi lækna. Einnig var unnið í hópum við að skoða þær ógnir sem steðja
að þjónustunni og þau tækifæri sem fyrirsjáanleg eru. Fundarstjóri var Högni Óskarsson læknir
en auk stjómar og samninganefndar LR voru á fundinum fulltrúar frá heilsugæslulæknum,
Læknavaktinni og Félagi sjálfstætt starfandi heimilislækna. Mjög góður andi ríkti á fundinum og
ljóst er að læknar standa saman um að varðveita okkar ágæta heilbrigðiskerfi. Á næstunni verða
gögn frá fundinum gerð aðgengileg á vefsíðu LÍ.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Magnús Logi Kristinsson (f. 1975) er gjörningalista-
maður. Listsköpun hans einskorðast við verk sem
hann framkvæmir í eigin persónu á sérstökum stað
og stund. Hann fór utan til listnáms í Hollandi árið
1999 og fluttist þaðan til Finnlands þar sem hann býr
í dag. Verkið Understandable not Understandable
Words (Óskiljanleg ekki óskiljanleg orð) var flutt á
norrænni sýningu í Scandinavian House
í New York árið 2010. Eins og iðulega í
myndlist Magnúsar Loga byggist verkið
á tungumáli með samsetningu valinna
orða í sérstakri framsetningu. Þrátt fyrir
að hafa búið lengi erlendis leikur hann sér
að því að vinna með hreim og blæbrigði
framsagnar. í þessu tiltekna verki sem
myndin á forsíðu Læknablaðsins vísar til,
er listamaðurinn uppáklæddur í miðjum
hring nótnastatífa. Á hverju statífi er
blað með enskum orðalista, ekki texti
sem myndar heild heldur orð á stangli.
Hann les þau upp, hátt og snjallt, með
íslenskum framburði eftir stafanna
hljóðan. Frá einu blaði færir hann sig á
næsta og snýr sér í hring eftir því sem
saxast á blöðin. Hvert blað tekur hann
fyrir með sérstökum hætti, ólíkum hraða og áherslu.
( hátalara sem sjá má á myndinni hljóma sömu
orðalistarnir aftur á móti með lýtalausum framburði
enskumælandi þular. Þannig myndast hálfgert
bergmál á milli lifandi framsagnar Magnúsar Loga
og upptökunnar í tækinu, ekki ósvipað því þegar
maður æfir framsögn í tungumálakennslu. Verkið er
sett fram með þeim dæmigerða hætti sem Magnús
Logi hefur tileinkað sér, þar sem listamaðurinn er
uppáklæddur með nótnastatíf sér til halds og trausts.
Ekki furða að fólk tengi verk
hans við tónlistarflutning þar
sem tungumál og orð verða
að eins konar konkret tónlist.
Oftast þylur listamaðurinn
upp mislanga lista, sumir hafa
innihaldslegt samhengi en
aðrir formrænt, eins og þeir
sem hér um ræðir þar sem um
nokkurs konar innrím er að
ræða. Gjörningurinn sjálfur er
óæfður þótt framkvæmdin sé
skipulögð, þannig að hvert verk
er í raun tilraun þegar á hólminn
er komið. Hvernig til tekst í
raun er ekki síður undir þeirri
orku komið sem myndast á milli
listamanns og áhorfenda og
um hana verður ekki spáð fyrr en á því augnabliki er
verkið á sér stað.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Gylfi Óskarsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Soffía Dröfn Halldórsdóttir
soffia@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2011/97 207