Læknablaðið - 15.04.2011, Page 9
RITSTJÓRNARGREIN
Helga M.
Ögmundsdóttir
helgaogm@hi.is
Höfundur er sérfræðingur í
ónæmisfræði og prófessor
í frumulíffræði við Háskóla
íslands, formaður
rannsóknarnámsnefndar
læknadeildar og í forsvari fyrir
rannsóknastofu deildarinnar í
krabbameinsfræðum.
The medical doctor as
a scientist - research
training for medical
students and graduates
Helga M. Ögmundsdóttir,
Cand.Med, Ph.D., Faculty
of Medicine, Univeristy of
lceland
Læknirinn sem vísindamaður -
rannsóknarþjálfun læknanema og lækna
Fyrsta doktorsgráðan frá læknadeild Háskóla
íslands var veitt 1933 en formlegt doktorsnám
hófst við deildina árið 1995. Doktorsvarnir hafa
verið fimm til sjö talsins á ári síðastliðin fimm ár.
Hafa ber í huga að læknar eru aðeins fimmtungur
af um það bil 60 doktorsnemum við læknadeild.
Fyrir fáeinum árum tóku unglæknar að innritast
í meistaranám við læknadeild. Þetta virðist hafa
verið bylgja sem reis og féll svo aftur, því að
enginn unglæknir innritaðist síðastliðið ár. Vert
væri að leita skýringa á þessu áhugaleysi nú.
En hvað hvetur unga lækna til vísindastarfa
og þá sérstaklega til meistara- eða doktorsnáms?
Ein ástæðan er metnaður í námi og starfi, rann-
sóknargráða greiðir götuna til sérnáms á bestu
stöðum. En það er annað og meira, og fáir munu
endast í rannsóknum ef innri hvatann vantar.
Vísindaleg þjálfun er verðmætt veganesti fyrir
ævistarfið, jafnvel þótt rannsóknir skipi þar ekki
háan sess. Það mikilvægasta við doktorsnámið
er ekki viðfangsefnið og ritgerðin heldur það
að hafa farið þessa leið og tekið út þann þroska
sem hún felur í sér og geta staðið sjálfstætt sem
vísindamaður. Doktorsgráðan opnar vissulega
möguleikann á akademískum starfsferli en nýtist
á margan annan hátt.
íslenskir læknar sækja sérmenntun til margra
landa og algengt er að menn hafi fengið tækifæri
til vísindastarfa. í Svíþjóð fer það oft fram innan
ramma doktorsnáms en í Bandaríkjunum er slíkt
nám gjarnan skipulagt jafnhliða grunnnámi í
læknisfræði (sem þar er á 2. stigi háskólanáms),
sem MD-PhD og hentar það skipulag ekki vel
fyrir erlenda lækna í sémámi. Allnokkrir íslenskir
læknar hafa notfært sér þann möguleika í reglum
læknadeildar HÍ um doktorsnám að geta innritast
á miðri leið. Þá er metin vísindavinnan sem
þegar hefur verið unnin og menn fá formlega
handleiðslu við lokahnykkinn, það er að setja
verkið saman í heildstæða doktorsritgerð.
Fjármögnun rannsókna er ekki auðveld, eins og
talsvert hefur verið rætt að undanförnu. Háskólinn
og RANNÍS hafa í nokkur ár veitt doktorsstyrki.
Með ört vaxandi framboði á doktorsnámi við
HÍ er ásóknin mikil og árangurshlutfall um
þriðjungur. Hér á landi vantar alveg fjármögnun
til rannsókna úr hinum svokallaða þriðja geira,
sem er mjög mikilvægur víða erlendis. Þar koma
að fyrirtæki, hollvinasamtök, stuðningssamtök og
stórefnamenn. Til eru dæmi um að sérgreinafélög
íslenskra lækna reki litla vísindasjóði sem ungir
vísindamenn í viðkomandi sérgrein hafa notið
góðs af. Þetta þyrfti að efla til muna. Það mætti
hugsa sér að stofnaðir yrðu sjóðir sem læknar
gætu lagt í til þess að styrkja efnilega læknanema
og unglækna til doktorsnáms, til dæmis á
tilteknum sérsviðum.
Læknar hafa nokkra sérstöðu í náms- og
starfsferli að því leyti að á sama tíma og
annað háskólafólk einbeitir sér að akademísku
doktorsnámi eru þeir í krefjandi klínísku sérnámi.
Þetta tvennt er ekki auðvelt að sameina. Það gildir
um þjálfun í rannsóknum og vísindum, rétt eins og
um annað nám, að best er að byrja snemma. Þetta
er hugsunin á bak við bandaríska MD-PhD námið
og ýmis dæmi eru um doktorsnám samhliða
grunnnámi í læknisfræði á Norðurlöndum. Reglur
um doktorsnám við Háskóla íslands hafa leyft
þennan möguleika frá upphafi. Einn nemandi
hefur fram að þessu notfært sér hann og er viðtal
við hann í þessu tölublaði Læknablaðsins. Er
athyglisvert að grípa aðeins niður í það sem þessi
efnilegi ungi vísindamaður segir. Hann talar um
þann vanda að hafa áhuga á flestu sem hann hefur
kynnst í læknanáminu, drauminn um að geta
sameinað rannsóknir og klíníska læknisfræði og
að hann sjái fyrirmyndir í mörgum sérfræðingum
Landspítala sem hefur tekist að sameina farsælan
feril í vísindarannsóknum og klíníska læknisfræði.
Þarna er með öðrum orðum innri hvatinn og
vandinn við að sameina vísindi og klínískt starf
sem áður var nefnt, og við bætist gildi góðra
fyrirmynda, sem eru mjög mikils virði. Innan
læknadeildar HÍ verða á næstunni stigin fyrstu
skrefin við að formfesta skipulag doktorsnáms
samhliða grunnnámi í læknisfræði.
Það er ekki kappsmál í sjálfu sér að mikill
fjöldi lækna ljúki doktorsnámi. Gæðin skipta
mestu máli. Reyndir erlendir andmælendur við
doktorsvarnir við læknadeild HÍ hafa látið þau
orð falla að þetta sé besta ritgerð sem þeir hafi
dæmt. Það verða aldrei margir í hverjum árgangi
sem kjósa að fara þessa leið og þeir þurfa að
leggja hart að sér. Þess vegna þarf hvatinn að vera
sterkur og mikilvægt að áhuginn sé einlægur.
Spítalinn og háskólinn þurfa að vinna saman
að því að búa þessu fólki þau skilyrði að það
fái að njóta sín og geti sinnt bæði klíníkinni og
akademíunni með sóma.
LÆKNAblaðið 2011/97 213