Læknablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 36
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
-■swfc.
Mynd 4. Æðatnynd (DSA) sýnir dæmigert útlit viðflysjnn í innri hálsslagæð.
Fyrstu myndir (a) eftir inndælingu skuggaefnis gefa til kynna strýtulaga lokun
(ör). Sein mynd (b), sýnir daufa fyllingu upp grannt holrúm innri hálsslagæðar
(„string sign", örvar). Æðin innan höfuðkúpu er merkt meðörvaroddi.
Mynd 5. Flæðisviktuð (DWI) seguiómmynd (a) sýnir ferskt drep (ör) á næringarsvæði
vinstri miðhjarnaslagæðar sem er afleiðing af flysjun í vinstri innri hálsslagæð. T1 viktuð
mynd meðfitumettunar púls (b) sýnir margúl í vegg innri hálsslagæðar (ör). Margúllinn
sést sem sigðlaga segulskær rönd umhverfis hol æðarinnar. Enduruppbyggð segulómmynd í
krónuskurði (c) afhálsslagæðum eftir skuggaefnisgjöf í æð sýnir strýtulaga þrengingu á vinstri
innri hálsslagæð (ör) sem er dæmigert útlit fyrirflysjun á innri hálsæð.
rúmi æðar, staðbundin víkkun á eiginlegu
holrúmi æðar eða falskur gúll. Þær myndgrein-
ingarannsóknir sem geta sýnt fram á eina eða
fleiri þessara breytinga eru hefðbundin slag-
æðamyndataka, æðamyndataka með tölvusneið-
myndatæki (TS), æðamyndataka með segulómtæki
(SÓ) og ómskoðun á hálsæðum.
Hefðbundin æðamyndataka getur sýnt ílanga,
oft reglulega þrengingu á holrúmi æðar, svokallað
„string sign" og ef æðin er nær lokuð vegna
flysjunar endar skuggaefnisfyllingin í strýtu eða
keilu (mynd 4).
Ómskoðun kemur einkum að gagni við
upphafsmat og frumgreiningu á flysjun í háls-
slagæðum. Ómskoðun sýnir óeðlilegt flæði í
innri hálsslagæð hjá um það bil 90% tilfella
og í hryggslagæð hjá um það bil 75% tilfella.40
Sértækast er þegar tvö æðaholrúm aðskilin
með ómríkum æðaþelsflipa greinast. Blæðing í
æðarvegg getur sést sem ómríkt svæði umhverfis
þrengt holrúm slagæðar.
Æðaskoðun með segulómtæki er ekki síðri en
hefðbundin æðamyndataka hvað varðar næmi og
sértækni til greiningar flysjunar.34-36 Segulómun
sýnir vel margúl í æðarvegg sem er meinkennandi
fyrir flysjun (sjá mynd 5).37 Margúllinn sést vel
á T1 viktuðum myndum sem teknar eru með
endurteknum fitumettandi púls (fat suppression),
en slík myndröð slær út myndmerki frá róteindum
í fitu, sem þá gefur ekki frá sér myndmerki og er
dökk á mynd. Margúllinn sést hins vegar sem
segulskær rönd umhverfis segulsnautt holrúm
æðarinnar. Rannsókn með skuggaefni sýnir einnig
vel þrengingu eða lokun á holrúmi æðar og falskt
holrúm sem eru dæmigerðar afleiðingar flysjunar.
Segulómrannsókn gefur auk þess glögga mynd af
stærð og staðsetningu heiladreps sem er algeng
afleiðing flysjunar. Greiningargeta segulómunar
þegar flysjun hálsslagæðar á í hlut er því bæði
öflug og fjölbreytileg.
TS-æðaskoðun (mynd 6) er einnig góð rann-
sókn til að greina flysjun í hálsslagæðum.38
Niðurstaða nýlegrar rannsóknar mælir þó með
því að segulómrannsókn sé beitt fyrst til-
greiningar en síðan megi nota TS eða hefð-
bundna æðarannsókn til að svara ákveðnum
viðbótarspurningum sem upp kunna að koma.38
Önnur nýleg rannsókn leggur greiningarhæfni
TS og SÓ að jöfnu.39 Skuggaefnisupphleðsla
í æðarvegg utan óreglulegs/þrengds holrúms
æðar, ásamt auknu heildarþvermáli æðar borið
saman við sömu æð andstæðrar hliðar, er það
teikn sem talið er áreiðanlegast fyrir flysjun
á tölvusneiðmyndarannsókn. TS getur einnig
sýnt flipa frá innsta lagi þar sem rofið verður,
þrengingu, lokun á æð og falskan gúlp.
240 LÆKNAblaðið 2011/97