Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2011, Page 42

Læknablaðið - 15.04.2011, Page 42
FRÆÐIGREINAR SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Oeder hóf söfnun jurtanna í Noregi, þar sem minnst var vitað um gróðurfar þar. Hann naut aðstoðar Rössler-feðganna frá Múnchen og var sonurinn Martin teiknari og málari, en faðirinn Michael sérfræðingur í koparstungum. Oeder taldi að hægt væri að ljúka verkinu á tveimur sumrum, en reyndin varð sú, að eftir fimm sumur (1755-1759) var mörg jurtin eftir óskoðuð. Eftir heimkomuna gaf Oeder út fyrsta heftið af Flora Danica og í maí 1761 var byrjað að safna áskrifend- um. Þá hafði það runnið upp fyrir ritstjóranum að hann kæmist ekki yfir þetta einn og Oeder ákvað að ráða Johan Gerard König til að flýta fyrir verkinu. Johan Gerard König á íslandi Árið 1764 kom út til íslands með vorskipi Johan Gerard König, þýzkur að kyni, fæddur árið 1723 á Kúrlandi (nú Litháen). Hann hafði verið nemandi sænska grasafræðingsins Carls von Linné og varð síðan lyfjasveinn í apóteki Friðriksspítala við Breiðgötu í Kaupmannahöfn árið 1759. Jón Steffensen segir að þeir Bjarni landlæknir Pálsson hafi vafalaust þekkzt fyrir komu Königs til íslands.3 Erindi Königs hingað út var að safna grösum fyrir nýja útgáfu af Flora Danica. Með König í förinni til íslands var teiknarinn Sören Johannes Helt. Sumrin 1764 og 1765 voru þeir í grasasöfnun. Mun Jón Pétursson mjög lík- lega hafa verið leiðsögumaður þeirra. Jón Steffensen vísar til dagbókar Sveins Pálssonar læknis (ÍB 2-4 8vo)6 frá árinu 1798: „October 23. og 24. Registrjeraj Naturalier Apothjekara]" - og í framhaldi af því fylgir neðanmáls listi yfir um 73 plöntur, sem ber heitið „Ex Herbfarioj chir[urgi] J[óns] P[éturssonar]". Um aðeins eina plöntu er þess getið hvenær hún sé fundin, nefnilega Euphorbia helios[copia] lectu inter Oleo Vidoeensium 1774 [fundin innan um kál í Við- ey 1774]. En allmargra fundarstaða er getið: Tröllaháls, Lundeyjar, Gilsbakka, Tunguheiðar, Gufuness, Odda, Múkaþverár, Eyjafjarðar, Eyrar- bakka og Reykjahvers í Ölfusi. Við naflagrasið, Koenigia islandica, gerir Jón Pétursson þessa athugasemd (ÍB. 2 8vo; minnis- grein undir dagbók 1.-21., apríl 1798): Sama haust fluttum við Koening hana báðir til K[iöben] havn, kallaði eg hana Petræa arctoa og þ[ad] sama nafn féll h[onu]m nógu vel, en þ[a]r þetta var nýfundin urt, describ[erede] Linnæus hana upp á sinn máta, og Koenig vin sín[u]m til æru nefndi hann hana h[an]s nafni hv[er]iu hún hér eftir mun halda.6 Við eftirgrennslan í Botanisk Centralbibliotek í Kaupmannahöfn fengust þær upplýsingar, að farið hafi verið í gegnum öll fylgiskjöl sem eru í „de kongelige regnskaber" og nafn Jóns Péturssonar sé þar ekki að finna, en þess jafnframt getið að upprunalega skjalasafnið hafi brunnið árið 18847 Nám og störf Jóns Péturssonar í Danaveldi Haustið 1765 héldu þeir Jón Pétursson og König utan og 21. desember 1765 var Iohannes Petri skráður í stúdentatölu.8 Hann varð „baccalaureus" 31. júlí 1768. Árið eftir kom út ritgerð eftir Johannes Petersen á dönsku um Den saa kaldede Islandske Skiörbug, beskreven udi en kort afhandling 9 og í bókarlok vottar Christen Lodberg Friis bókina prenthæfa. Prófessor Friis sat í vísindaráði háskólans (Consitorium) og hafði ráðið meðal annars það hlutverk að ritrýna vísindagreinar háskólanema. Um þetta rit segir Jón Ólafur Isberg: Þrátt fyrir heiti bókarinnar virðist sem höfundurinn sé alls ekki að fjalla um skyrbjúg heldur holdsveiki. Hann segir meðal annars: «Varðandi ólík nöfn sjúkdómsins sem ég kalla stundum skyrbjúg og stundum holdsveiki er það til að taka að bæði nöfnin eru notuð yfir sama sjúkdóminn á mismunandi stöðum. Ég er ekki alveg viss um að sjúkdómurinn sé skyrbjúgur ...» Töluverðar líkur eru á að ýmsir hörgulsjúkdómar eins og skyrbjúgur, hugsanlega vatnssýki sem einkennist af þembum í líkamanum og kannski einnig húðsjúkdómar, hafi verið kallaðir holdsveiki. Það má einnig snúa þessu við og gera ráð fyrir að holdsveiki hafi leynst undir ýmsum öðrum nöfnum.10 Þó þarna hafi ekki verið á ferðinni neitt tímamótaverk, átti Jón Pétursson tvívegis eftir að bæta um betur og sanna eftirminnilega að hann hafði ríka hæfileika til þess að draga ályktanir af því sem fyrir hann bar. í Læknum á íslandi segir að Jón hafi verið herlæknir í sjóher Dana1 og farið víða, meðal annars til Spánar, Alsír og Egyptalands og mun það hafa verið á árunum 1770-1771, en á þeim árum héldu Danir úti flotadeild á þessum slóðum. Jón Pétursson lauk ekki læknisprófi frá Hafnarháskóla, en hann gæti hafa stundað nám í Theatrum anatomico-chirurgicum. Skólinn var stofnaður fyrir handlækna, meðal annars með þarfir hers og flota að leiðarljósi og til þess að menn mættu stunda skurðlækningar í ríki Danakonungs þurfti frá árinu 1736 próf þaðan. Tæpast hefði Jón Pétursson verið ráðinn læknir á skipi í flota Danakonungs nema hann uppfyllti áðurgreind skilyrði og þaðan af síður verið skipaður læknir í heilum landsfjórðungi á íslandi og titlaður handlæknir. í lækningabók sinni fyrir almúga11 víkur Jón stuttlega að ferð sinni um Miðjarðarhafið, þegar hann ræðir um áhrif sjóbaða: 246 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.