Læknablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 45
Ú R
_____UMRÆÐA O G FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Eitthvað jákvætt...
Árdís Björk
Ármannsdóttir
ardisaflðgmail. com
Höfundur er almennur læknir
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir
formaður
Valgerður Á Rúnarsdóttir
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir
gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir
rítari
Ágúst örn Sverrisson
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri Pór Ormarsson
Ragnar Victor Gunnarsson
Þórey Steinarsdóttir
I pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna U birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Pistill í Læknablaðið. Um hvað á ég að skrifa?
Eitthvað út frá eigin brjósti. Eitthvað gáfulegt
auðvitað. Eitthvað sem skiptir máli. Eitthvað sem
er í umræðurtni. Eitthvað um lækna.
En hvað?
Kannski um nýtt vaktaplan unglækna á Land-
spítala. Kannski um landflótta íslenskra lækna.
Kannski staðgöngumæðrun. Kannski um nýja
spítalann. Kannski Læknafélagið og stjórn LÍ.
Kannski um Björn Zoéga og stjómunarverðlaunin
hans. Kannski um vanlíðan lækna í starfi á Land-
spítala. Kannski um ógreidda yfirvinnu. Kannski
um FIFL. Kannski um hjúkrunarfræðinga í
stjórnun. Kannski um komandi kjarasamninga.
Kannski um skammarlega lág laun nýútskrifaðra
læknakandídata. Kannski hvemig það er að
vera deildarlæknir á bæklunardeild Landspítala.
Kannski.
Eða ætti ég kannski bara að skrifa um eitthvað
jákvætt. En hvað er jákvætt og skiptir einhverju
máli? Er eitthvað jákvætt sem skiptir máli? Skiptir
einhverju máli að vera jákvæður?
Já, það er best að skrifa eitthvað jákvætt.
Eitthvað jákvætt sem tengist læknum. Eitthvað
sem er jákvætt við það að vera læknir. Af hverju
er ég annars læknir? Og af hverju ætla ég að
halda áfram að vinna sem læknir? Ég velti þessu
stundum fyrir mér og sérstaklega núna þegar ég
er allt í einu heimavinnandi húsmóðir að hugsa
um ungabam - og viti menn, það er bara svona
líka skemmtilegt og það er greinilega margt annað
hægt að gera en að vinna á spítala!
En aftur að þessu jákvæða með lækna ... Ég fór
í læknanám af því ég hélt það væri svo gaman
að vera læknir, eða mig minnir það allavega. Það
var líka ótrúlega gaman að vera læknanemi, ég
sé það mjög vel núna, og kann meira að segja
að meta það. Hvað var samt svona ofboðslega
gaman? Var það verklega efnafræðin á fyrsta ári,
lífeðlisfræðitilraunirnar eða kannski lyfjafræðin?
Eða var það kannski verknámið þegar maður
loksins komst inn á spítalann og fékk að fara í
hvíta sloppinn og hitta sjúkling í fyrsta skipti. Já,
það var alla vega gaman, ég man það.
í raun og vem voru það allir hinir. Allir hinir
læknanemarnir (eða kannski ekki alveg allir...)
sem voru svo skemmtilegir og gerðu það að
verkum að meira að segja verklega efnafræðin,
lífeðlisfræðitilraunirnar og lyfjafræðin voru
skemmtileg, eða að minnsta kosti skemmtilegar
minningar svona eftir á!
Miðað við efni og aðstæður er í raun alveg
stórmerkilegt hvað læknanemar eru skemmtilegt
fólk. Og núna, þegar allir þessir læknanemar eru
orðnir læknar, þá er líka mesta furða hvað flestir
þeirra eru áfram skemmtilegir! Satt að segja hef
ég kynnst alveg einstaklega mörgu góðu fólki
í þessu námi og starfi, vinum sem munu fylgja
mér alla ævi, það er ég viss um og það er jákvætt!
Með sumum þessara vina hef ég meðal annars
ferðast til nokkurra heimsálfa í leik og starfi og
haft af því gagn og gaman og það er jákvætt. Ég
kann núna að spila póker en Pókerklúbburinn
Sápan var stofnaður í byrjun kandídatsárs og
virkaði sem nokkurs konar sjálfshjálparhópur
fyrir veðurbarða og vinnulúna læknakandídata.
Fjallaklúbburinn FOF samanstendur af nokkrum
galvöskum og sérdeilis huggulegum kvenlæknum
sem hafa klifið saman nokkra tinda og eru ekkert
að fíflast með það, það er mjög jákvætt! FAL (Félag
almennra lækna) áður FUL (Félag ungra lækna)
er dæmi um jákvæðan félagsskap ungra lækna
sem hefur komið ýmsu til leiðar og svo er bara
alltaf svo gaman þegar margir ungir læknar koma
saman, jákvætt. Já, ótrúlegt en satt, þá eru læknar
nefnilega bara mjög skemmtilegir og það verður
að teljast jákvætt. Á þessum stutta tíma í starfi
sem læknir hef ég líka fengið að taka lítillega þátt
í kennslu og umönnun læknanema á spítalanum
og er það einstaklega skemmtilegt og gefandi.
Lengi lifi Gleðispítalinn! Svo er líka frábært að fá
sumarfrí.
En er þetta þess virði? Á ég að halda áfram?
Er í alvörunni gaman í vinnunni? Á ég að flytja
til útlanda með litlu fjölskylduna mína og frá öllu
hérna heima á íslandi? Eða á ég kannski að fara að
kenna jóga og baka hrökkbrauð?
Og svarið er víst JÁ, ég ætla að halda áfram, því
þegar öllu er á botninn hvolft finnst mér gaman
að vera læknir og ég hlakka til að verða stór og
fara í sérnám og halda áfram að vera og vinna sem
læknir.
Ætla svo að reyna að hafa það að leiðarljósi
á hverjum morgni að hafa kveikt á jákvæða
fattaranum en ekki þeim neikvæða. Hjá mér
verður því gaman í vinnunni í framtíðinni og
vonandi hjá ykkur líka - en mest af öllu vona ég
þó að við fáum soldið meira borgað fyrir vinnuna
okkar ...
LÆKNAblaðið 2011/97 249
L