Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2011, Page 54

Læknablaðið - 15.04.2011, Page 54
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI GERVIGANGRÁÐUR R Fyrsta ígræðsla gervigangráðs á íslandi Ársæll Jónsson arsaell@simnet.is Guðmundur Bjarnason Ársæll er öldrunarlæknir og Guðmundur er barnaskurðlæknir. Þeir eru báðir sestir í helgan stein. Lesa má um áhugaverða sögu gervigangráða á netinu: en.wikipedia.org/wiki/ ArtificiaLpacemaker Það er beinlínis ætlast til þess að læknar sem komnir eru á eftirlaun iðki sitt golf af kappi. Ársæll lét af störfum í 70 ára afmælismánuðinum í nóvember 2009. Um vorið var byrjað að leika golf á ný en allt kom fyrir ekki, forgjöfin fór hækkandi. Á læknamóti í Leirunni gekk brösuglega og flugu fjórir golfboltar út í sjó. Verst var þó að það fannst fyrir mæði og erfitt var að ýta golfkerrunni áfram. Þegar heim var komið mældist blóðþrýstingur lágur og púlsinn hægur (96/64, p.38/mín). Þrátt fyrir mótmæli komu röggsamar konur (maki, dóttir og gigtarlæknir) Ársæli niður á móttökudeild Landspítala og tveimur dögum síðar var græddur í hann gervigangráður vegna Mobitz typu 2 hjartablokks. Á hjartadeildinni rifjaðist það upp fyrir Ársæli að hann hafði aðstoðað Guðmund Bjamason bamaskurðlækni við fyrstu gervigangráðsísetn- ingu á íslandi. Guðmundur notaði skemmtileg orð um tækið sem pantað var flugleiðis. Sjúklingurinn var silfurhærð eldri kona og fékk margar og langar pásur í rafleiðni hjartans og aðstoðarlæknar á lyflæknisdeildinni voru ærið oft kallaðir til bjargar. Rifjað var upp hið gleðilega augnablik er hún gekk ein og óstudd út úr sjúkrahúsinu með ánægjubros á vör. Snorri Páll Snorrason var ábyrgur sérfræðingur. Guðmundur man líka vel eftir þessu og með góðum vilja og aðstoð tókst að hafa upp á sjúkraskýrslu konunnar, sem var lögð inn á hjartadeild Landspítalans í júlí 1968. Konan var 75 ára gömul ekkja, fimm barna móðir sem hafði verið með vaxandi hjartsláttarköst í rúmt ár. Hún hafði tvívegis alveg misst meðvitund og einnig fundið fyrir dofa- og máttleysisköstum með yfirliðskennd. Hún hafði fengið svæsna bamaveiki 16 ára og slæma mislinga 23 ára. Liðverkir og liðbólgur eftir barnaveikina allt fram undir fimmtugsaldur. Magaskurður 1956. í sjúkraskrá er einnig sagt frá því að hún hafi verið skýr í viðtali en þreyttist við að tala. Grannholda með hryggskekkju. Púls 30/mín. Ekki merki um hjartabilun. Hjartarafrit sýndi total AV blokk, vinstri greinrof og stækkun. Hún var í fyrstu meðhöndluð með atrópíni og isupreli. Á sjúkrahúsinu fékk hún endurtekin aðsvifsköst með hjartsláttartruflunum, ýmist sleglatif eða hraðsláttarglöp, en einnig hjartastopp. Það tókst ætíð að koma hjartslætti í gang og notað til þess rafstuð og pronestyl. Aðsvifsköstin héldu áfram og löguðust ekki fyrr en settur var ytri gervigangráður, sem staðsettur var á deildinni. Nokkurn tíma tók að fá ígræðanlegan gervi- gangráð til landsins, svo að þetta tæki var nýtt til bráðabirgða þar sem ástand sjúklings bauð ekki upp á marga daga bið. ísetningin var ekki mikið frábmgðin því sem nú er. Innri hóstaræð, hægra megin á hálsi, var frílögð og niður þá æð var elektróðan þrædd niður í hægri gátt og áfram niður í hægri slegil. Leiðslan var síðan tekin út á yfirborðið neðan við viðbein og gangráðurinn tengdur. Hjartsláttur varð þegar eðlilegur. Röskum tveim vikum síðar fékkst svo annar gervigangráður til landsins og var hann lagður undir húð framan á brjóstkassa. Þegar þræðirnir úr eldra tækinu voru klipptir, datt hjartsláttur niður í 34 slög, en jafnaði sig strax eftir endurtengingu. Konan náði fljótt upp fullri fótaferð og útskrif- aðist á Vífilsstaði. í útskriftarbréfi (ÁJ) stendur: eftirlit veröur aðallega fólgið í því að telja púls, sem á að vera sem næst 70/mín og reglulegur. Verði aukaslög tíð, kemur til greina að setja hana aftur á Pronestyl. Sj. verður kölluð inn mánaðarlega til eftirlits fyrst um sinn. P.S.; sj. má ekki fá rafmagnsstuð, stuttbylgjur, diathermi, electrocoagulation eða hita localt. Gæta ber aðjarðtengja EKG-tæki áður en rit er tekið. Greining leiðslutruflana í hjarta byggist á töku hjartalínurits en klínísk saga segir til um hversu lengi sjúkdómurinn hefur varað. Lyfjameðferð dugar skammt en ígræðsla gervigangráðs skiptir sköpum og sjúklingurinn nær sér fljótt. Nú á dögum er gervigangráður mun léttari og endist 258 LÆKNAblaðið 2011/97

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.