Læknablaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 56
UMRÆÐUR 0 G FRETTIR
SPÁNSKA VEIKIN
Minning um spánsku veikina
Stutt spjall
við Geir R.
Tómasson,
tannlækni
Þorkell
Jóhannesson
Dr.thorkell@simnet.is
Höfundur er læknir og
fyrrum prófessor í lyfjafræði
- og áhugamaður um sögu
læknisfræðinnar.
Árið 2008 freistaðist ég til þess að birta í Lækna-
blaðinu (94: 768-74) grein sem nefndist: Þankabrot
um spánsku veikna 1918-1919. Kveikjan að
þessum skrifum var BA-ritgerð í sagnfræði við
Háskóla íslands. Ég taldi höfund ritgerðarinnar
meðal annars til ágætis, að vitnað væri til viðtala
við fólk sem mundi veikina, en væri nú gengið til
feðra sinna. Mér kom þá alls ekki í hug að ég væri
í vinfengi við mann sem myndi spánsku veikina,
þótt segja mætti að í litlu væri. Þessi maður er Geir
R. Tómasson, tannlæknir, sem þrátt fyrir háan
aldur (hann er fæddur á Jónsmessu sumarið 1916)
er enn nær í fullu fjöri. Ég vil ekki láta hjá líða að
festa þessa minningu Geirs á blað sem eins konar
bragarbót við fyrri skrif.
Geir ólst upp með einstæðri móður sinni,
Kristínu Hansdóttur (1878-1971). Haustið 1918
bjuggu þau Geir og móðir hans í Pósthússtræti
6 að hann minnir. Þegar kom fram í nóvember
og spánska veikin var í hámarki, lagðist móðir
hans í veikina og var þungt haldin. Þótt Geir
væri ekki nema á þriðja ári, er honum í lifandi
minni hve móður hans leið illa og að hún missti
mestallt hárið í veikinni. Læknir þeirra mæðgina
var Matthías Einarsson (1879-1948). Geir man
að Matthías kæmi heim til þeirra og léti flytja
hann á bamaheimili sem komið hafði verið upp
í Miðbæjarbarnaskólanum. Farið var með hann
í stofu á annarri hæð hússins og var hann settur
þar í rúm. Voru þar fyrir í rúmum mörg börn á
hans reki, en eldri börn voru höfð annars staðar.
Geir segir að mikill grátur og angist hafi fyrst
verið í stofunni, en smám saman róaðist hópurinn
og börnin fóru að leika sér. Þeim var færður
matur í stofuna. Hann segist ekki hafa veikst og
telur að hið sama hafi gilt um hin börnin. Geir
man eftir að séra Jóhann Þorkelsson (1851-1944),
dómkirkjuprestur, kæmi í heimsókn í stofuna og
Matthías Einarsson hefði litið til hans. Hann segist
ætíð hafa litið upp til Matthíasar og viljað verða
læknir með hann að fyrirmynd, þótt það ætti
raunar fyrir honum að liggja að verða tannlæknir.
Dvölinni í Miðbæjarbarnaskólanum lauk svo
Geir Reynir Tómasson (f. 1916). Stúdentspróffrá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1937. Lauk tannlæknaprófi í Köln 1941
og doktorsprófi á sama stað 1943. Starfaði í Svípjóð 1943-
1946. Rak tannlæknastofu í Reykjavík 1947-1996.
(Ljósm. á heimili Geirs 3.3.2011; Þorkell Þorkelsson).
þegar móðir hans var orðin heil heilsu á ný.
Því má svo bæta hér við, að Geir hefur
ætíð verið mikill trúmaður og hefur lengi
starfað í safnaðarnefnd Dómkirkjunnar. Fyrsta
sunnudag í aðventu á síðastliðnu ári flutti Geir
aðventuhugvekju í kirkjunni. Hann lagði út
af þeim sígilda sannleika að hið eina sem við
höfum á höndum hverju sinni, er dagurinn í dag,
og mæltist svo: Horfðu því til dagsins í dag - því
það er lífið. Dagurinn í gær er þegar draumur og
morgundagurinn aðeins hugsýn. En verjirðu deginum
í dag vel, verður sérhver gærdagur draumur hamingju,
og sérhver morgundagurhugsýn vonar.
Orð Geirs eru leiðsögn til gæfu og gengis í starfi
hvers manns og þá ekki síður í starfi lækna en
annarra. Sjálfur er Geir nú nær 95 ára að aldri og
horfir hress og ótrauður til morgundagsins!
Til sölu eða leigu húsnæði fyrir heilsutengda
starfsemi við Álfabakka 12 í Mjóddinni
Húsnæðið er 231 fm að stærð og er tilvalið fyrir heilsutengda starfsemi, meðferðarstofur, nuddara, sjúkraþjálfara eða læknastofur. Lyfta er
í húsinu og gott aðgengi. Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist í 7 lokaðar vinnustofur sem eru á bilinu 7-20 fm, sal (sem áður var skurðstofa),
eldhús, innréttaða móttöku og tvö salerni (annað með sturtu). Dúkur á gólfi, lagnastokkar með veggjum og kerfisloft. Ekki vsk. húsnæði.
Húsnæðið er til sölu eða langtímaleigu.
Upplýsingar veitir Sigurður Þór í síma 823 7079.
260 LÆKNAblaðið 2011/97