Læknablaðið - 15.04.2011, Side 64
(ziprasidone HCI)
Zeldox N05AE04 (Stytt samantekt á eiginleikum lyfs)
Lyfjaform: Hvert hart hylki inniheldur zíprasídónhýdróklóríðeinhýdrat, sem jafnfgildir 20, 40, 60 eða 80 mg zíprasídon. Ábendingar: Zíprasídon er ætlað til meðferðar á geðklofa hjá
fullorðnum. Zíprasldon er ætlað til meðferðar á geðhæðarlotu eða blandinni lotu í geðhvarfasjúkdómi þar sem einkenni eru meðalsvæsin hjá fullorðnum og börnum og unglingum á aldrinum
10-17 ára(fyrirbyggjandi verkun gegn lotum í geðhvarfasjúkdómi hefur ekki verið staöfest).Skammtar og lyfjagjöf: Fu//orðn/r:Ráðlagður skammtur viö bráða meðferð geðklofa og geðhæð
í geðhvarfasjúkdómi (bipolar mania) er 40 mg tvisvar sinnum á sólarhring, tekið með mat. Skömmtum má síðan breyta, háð klínísku ástandi einstaklingsins, að hámarksskammti sem er
80 mg tvisvar sinnum á sólarhring. Ef þurfa þykir má auka skammta þannig að ráðlagður hámarksskammtur náist á þriðja degi meðferðar. Mikilvægt er að lyfið sé ekki gefið í stærri
skömmtum en hámarksskammti þar sem öryggi lyfsins í hærri skömmtum en 160 mg á sólarhring hefur ekki verið staðfest og zíprasídon getur valdið skammtaháðri lengingu QT-bils.
Sjúklingar í viðhaldsmeðferð eiga að fá minnsta virkan skammt af zíprasídóni; í mörgum tilvikum er nægjanlegt að gefa 20 mg tvisvar sinnum á sólarhring. Aldraðir. Venjulega er ekki gert
ráð fyrir lægri upphafsskömmtum, en hjá 65 ára og eldri þarf hugsanlega að minnka upphafsskammt en það er háð klínísku ástandi.SyúW/ngar með skerta nýmastarfsemi-. Ekki er nauðsynlegt
að breyta skömmtum hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Sjúklingar með skerta //frarstarfsem/.Hugleiða þarf minni skammta fyrir sjúklinga með skerta lifrarstarfsemi. Börn og
unglingar: Geðhæð igeöhvarfasjúkdómi (bipoiar man/a):Ráðlagður skammtur við bráða meðferð geðhæðar í geðhvarfasjúkdómi hjá börnum og unglingum (á aldrinum 10-17 ára) er 20 mg
á fyrsta sólarhring, tekið með mat. (framhaldi skal gefa zíprasídón í tveimur skömmtum á sólarhring með mat, og skal auka skammtinn smám saman á 1-2 vikum í kjörskammt sem er
120-160 mg á sólarhring hjá sjúklingum sem vega a 45 kg eða 60-80 mg á sólarhring hjá sjúklingum sem vega < 45 kg. Skammta skal síðan aðlaga eftir klínísku ástandi einstaklingsins, að
skammtabilinu 80-160 mg á sólarhring hjá sjúklingum sem vega a 45 kg eða 40-80 mg á sólarhring hjá sjúklingum sem vega <45 kg. í klínísku rannsókninni voru leyfðir misstórir skammtar,
þ.e. morgunskammtur sem var 20-40 mg minna en kvöldskammturinn.Mikilvægt er að lyfið sé ekki gefið í stærri skömmtum en hámarksskammti miðað við þyngd (160 mg á sólarhring hjá
börnum > 45 kg og 80 mg hjá börnum < 45 kg) þar sem öryggi lyfsins í stærri skömmtun en hámarksskammti hefur ekki verið staðfest og zíprasídón getur valdið skammtaháðri lengingu
QT-bils. Geð/(/of/:Öryggi og verkun zíprasídóns hjá börnum og unglingum með geðklofa hefur ekki verið staðfest.Frábendingar: Þekkt ofnæmi fyrir zíprasídoni eða einhverju hjálparefnanna.
Þekkt lenging á QT-bili. Meðfætt langt QT-heilkenni. Nýafstaðin bráð kransæðastífla. Ómeðhöndluð hjartabilun. Hjartsláttartruflanir sem eru meðhöndlaðar með lyfjum úr flokki IA og III við
hjartsláttartruflunum.Samtímis meðferð með lyfjum sem lengja QT-bil, svo sem: lyf við hjartsláttartruflunum úr flokki IA og III, arseniktríoxið, halófantrín, levómetadýl acetat, mesórídasin,
tíórídasín, pímósíð, sparfloxasín, gatifloxasín, moxifloxasín, dólasetrón mesýlat, meflókín, sertindól eða cisapríð. Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Svo hægt sé að finna
út hvenær zíprasídón meðferð er ekki ráðlögð þarf læknisskoðun, mat á heilsufarssögu sjúklings og fjölskyldu hans. QT-b//:Zíprasídon veldur litilli eða í meðallagi mikilli skammtaháðri
lengingu á QT-bili. Zíprasídon á því ekki að gefa samtímis öðrum lyfjum sem vitað er að lengja QT-bil. Gæta þarf varúðar hjá sjúklingum með verulega hægan hjartslátt. Börn og
unglinganöryggi og verkun zíprasídons í meðferð við geðklofa hjá börnum og unglingum hefur ekki verið staðfest. Illkynja sefunarheilkenni (neuroleptic malignant syndromej: Greint hefur
verið frá tilvikum af illkynja sefunarheilkenni, sem er sjaldgæft en hugsanlega banvænt, í tengslum við töku geðrofslyfja, þar á meðal zíprasidons. Meðferð við illkynja sefunarheilkenni ætti
m.a. að felast í því að hætta tafarlaust töku allra geðrofslyfja. Siðkomin hreyfitruflun (tardive dyskinesia)V\ð langtímanotkun er hugsanlegt að zíprasídon valdi síðkominni hreyfitruflun (tardive
dyskinesia), sem og öðrum hægfara utanstrýtueinkennum. Ef vísbendinga eða einkenna um síðkomna hreyfitruflun verður vart, þarf að ihuga að minnka skammta eða hætta töku zíprasídons.
Krampar: Mælt er með því að gæta varúðar þegar sjúklingar með sögu um krampa eru meðhöndlaðir. Skert //frarsfarfsem/.Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá sjúklingum með
alvarlega skerta lifrarstarfsemi og á því að nota zíprasídon með varúð hjá þeim sjúklingahópi. Lyfsem innihalda laktósa (mjólkursykur:)Hy\kir\ innihalda laktósa. Sjúklingar með galaktósaóþol,
laktasaþurrð eða glúkósa-galaktósa vanfrásog, sem eru sjaldgæfir aiígengir kvillar, skulu ekki taka lyfið. Aukin hætta á heilablóðfalli hjá sjúklingum með elliglöp. ( klínískri slembiraðaðri
samanburðarrannsókn við lyfleysu kom fram þreföld aukning á tíðni heilabló ðfalls hjá sjúklingum með elliglöp og sem notuðu óhefðbundin geðlyf.Verkunarmáti er ekki þekktur. Ekki er hægt
að útiloka aukna áhættu hjá öðrum sjúklingahópum eða eftir töku annarra geðlyfja.Zíprasidón á að nota með varúð hjá sjúklingum sem eru í aukinni hættu á að fá heilablóðfall. Aukin
dánartíðni aldraðra með elliglöp:Zeldox er ekki ætlað til meðferðar á hegðunarröskunum tengdum elliglöpum. Segarek íbláæðum .Greint hefur verið frá segareki i bláæðum í tengslum við
geðrofslyf. Par sem sjúklingar sem fá meðferð með geðrofslyfjum eru oft með undirliggjandi áhættuþætti fyrir segareki í bláæðum skal greina alla hugsanlega áhættuþætti fyrir segareki í
bláæðum áður en meðferð hefst og meðan á meðferð með zíprasídoni stendur og gera skal fyrirbyggjandi ráðstafanir. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Rannsóknir á
lyfjahvörfum og lyfhrifum milli zíprasídons og annarra lyfja, sem lengja QT-bil, hafa ekki verið gerðar. Ekki er hægt að útiloka að zíprasídon hafi viðbótaráhrif og því ætti ekki að gefa zíprasídon
samtímis lyfjum, sem lengja QT-bil, svo sem lyfjum við hjartsláttartruflunum úr flokki IA og III, arseniktríoxíði, halófantríni, levómetadýl-acetati, mesóridasíni, tíórídasíni, pímósíði, sparfloxasíni,
gatifloxasíni, moxifloxasíni, dólasetrón-mesýlati, meflókíni, sertindóli eða cisapríði. Ekki hafa verið gerðar neinar rannsóknir á milliverkunum zíprasidóns við önnur lyf hjá börnum. Lyf sem
verka á miðtaugakerfið/áfengi:Þar sem zíprasídon hefur fyrst og fremst áhrif á miðtaugakerfiö þarf að gæta varúðar við gjöf þess samtimis öðrum lyfjum með miðlæga verkun og notkun
áfengis. Áhrif ziprasidons á önnur lyf: Rannsókn með dextrómetorfani in vivo sýndi enga marktæka hindrun á CYP2D6 við plasmaþéttni sem er 50% lægri en næst eftir gjöf zíprasídon 40 mg
tvisvar á sólarhring. Niðurstöður in vitro rannsókna benda til þess að zíprasídon geti hamlað CYP2D6 og CYP3A4 vægt /n vitro. Ólíklegt er samt sem áður að ziprasídon hafi klíniskt mikilvæg
áhrif á lyfjahvörf lyfja sem eru umbrotin fyrir tilstilli þessara cýtokróm-P450 ísóensíma.Getnaðarvarnalyf til inntöku: Gjöf ziprasídons olli engum marktækum breytingum á lyfjahvörfum
östrógens- (etinýl östradíól, CYP3A4-hvarfefni) eða prógesterón-samsetninga.L/'fiúm: Samtimis gjöf zíprasidons hafði engin áhrif á lyfjahvörf litiums.Par sem zíprasídon og litíum tengjast
breytingum í rafleiðni hjartans, getur samtímis gjöf þessara lyfja aukið áhættu á milliverkunum sem geta leitt til hjartsláttartruflana. Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um samtímis gjöf lyfja
sem hafa áhrif á skaphöfn karbamasepíns og valpórats.Áhr/7 annarra lyfja á zíprasidon: CYP3A4-hemillinn ketókónazól (400 mg/sólarhring) jók þéttni zíprasídons í sermi um <40%. Péttni
S-metýl-díhýdrózíprasídóns og zíprasídonsúlfoxíðs í sermi við Tmax, sem búist er við fyrir zíprasídon, jókst um 55% og 8% talið i sömu röð. Engin viðbótarlenging á QTc-bili átti sér stað.
Ólíklegt er að breytingar á lyfjahvörfum vegna samtimis gjafar kröftugra CYP3A4 hemla skipti klínisku máli, skammtabreytinga er því ekki þörf. Meðferð með karbamazepíni, 200 mg tvisvar
sinnum á sólarhring í 21 sólarhring, leiddi til um það bil 35% minnkunar á útsetningu fyrir zíprasídoni. Engar upplýsingar liggja fyrir um samtímis gjöf valpórats. Sýrubindandi lyf: Samtímis
notkun endurtekinna skammta sýrubindandi lyfja, sem innihalda ál- og magnesíumsambönd eða címetidin, hefur engin marktæk áhrif á lyfjahvörf zíprasídon, þegar það er tekið með mat.
Serótónvirk iyf: Greint hefur verið frá einstaka tilvikum serótónínheilkenna sem komið hafa fram timabundið þegar zíprasídon er notað með öðrum serótónvirkum lyfjum svo sem SSRI lyfjum.
Einkenni serótóninheilkennis geta verið rugl, æsingur, hiti, aukin svitamyndun, ósamhæfing vöðvahreyfinga, ofviðbrögö, vöðvarykkjakrampi og niðurgangur. Próteinbinding: Zíprasídon er
með mikla próteinbindingu í plasma. Warfarín eða própranolól, lyf sem bæði eru með mikla próteinbindingu, breyttu ekki próteinbindingu zíprasídons i plasma in vitro og zíprasídon breytti
ekki heldur próteinbindingu þessara lyfja í plasma hjá mönnum. Pví er hugsanleg lyfjamilliverkun við zíprasidon vegna tilfærslu ólíkleg. Frjósemi, meðganga og brjóstagjöf: Rannsóknir á
eiturverkunum á æxlun hafa leitt í Ijós aukaverkanir á æxlun í skömmtum sem valda eiturverkunum og/eða slævandi verkun á móðurina. Engin merki sáust um vansköpun. Meðganga: Engar
rannsóknir hafa verið gerðar á þunguðum konum. Ráðleggja á konum á barneignaraldri að nota örugga getnaðarvörn meðan á meðferð með zíprasidoni stendur. Takmörkuð reynsla er af
notkun lyfsins hjá mönnum og því á aðeins að nota zíprasídon á meðgöngu að vandlega athuguðu máli og einungis þegar væntanlegur ávinningur móður er talinn vega þyngra en hugsanleg
hætta fyrir fóstrið.Brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort ziprasídon skilst út i brjóstamjólk. Sjúklingar eiga því ekki að hafa barn á brjósti meðan á meðferð með zíprasidoni stendur. Ef meðferð er
nauðsynleg á að hætta brjóstagjöf. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Ziprasídon getur valdið svefnhöfga og haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Aukaverkanir:
Zíprasídon hefur verið gefið um það bil 6.500 fullorðnum einstaklingum til inntöku í klinískum rannsóknum. Algengasta aukaverkunin, sem kom fram í klinískum rannsóknum á geðklofa, var
slævandi verkun og hvíldaróþol. ( klínískum rannsóknum á geðhæð i geðhvarfasjúkdómi, voru algengustu aukaverkanirnar: slævandi verkun, hvíldaróþol, utanstrýtueinkenni og sundl. Hér
á eftir eru taldar upp aukaverkanir sem komu í Ijós í samsettriskammtimarannsókn (4-6 vikur) á geðklofa við ákveðna skammta og skammtímarannsókn (3 vikur) á geðhæð í geðhvarfasjúkdómi
við breytilegaskammta, með hugsanleg og líkleg tengsl við ziprasídonmeðferð og komu fram oftar en eftir lyfleysu. Frekari aukaverkanir sem greint hefur verið frá eftir markaðssetningu eru
skáletraðar sem „Tíðni ekki þekkt" . Allar aukaverkanir eru flokkaðar eftir tíðni og líffærakerfum: Mjög algengar (>1/10), algengar (>1/100, <1/10), sjaldgæfar (>1/1.000 <1/100), mjög
sjaldgæfar (<1 /1.000) og tíðni ekki þekkt (ekki er hægt að áætla tiðni út frá fyrirliggjandi gögnum). Aukaverkanirnar, sem taldar eru upp hér á eftir, geta líka tengst undirliggjandi sjúkdómi
og/eða samhliða lyfjagjöf. Sýkingar af völdum sýkla og sníkjudýra:Mjög sjaldgæfar: Nefslímubólga..Efnaskipti og næring: Sjaldgæfar: Aukin matarlyst. Mjög sjaldgæfar:
Blóðkalsíumlækkun. Geðræn vandamál: Algengar:Eirðarleysi.Sjaldgæfar: Geðæsing, kvíði, þrenging í hálsi, martraðir. Mjög sjaldgæfar: Kvíðaköst, þunglyndiseinkenni, hæg hugsun
(bradyphrenia), dauf geðhrif, fullnæging næst ekki við samfarir.Tíðni ekki þekkt: Svefnleysi.oflæti/ólmhugur. Taugakerfi Algengar: Truflun á vöðvaspennu (dystonia), hvíldaróþol (akathisia),
utanstrýtueinkenni, parkinsonsjúkdómur (með vélrænum stirðleika í hreyfingum (cogwheel rigidity) seinhreyfingum, vanhreyfingum), skjálfti, sundl, slævandi verkun, svefndrungi, höfuðverkur.
Sjaldgæfar: Almennir þankippukrampar (tonic clonic seizures), síökomin hreyfitruflun, hreyfitruflun, slef, ósamhæfðar hreyfingar (ataxia), tormæli, augnvöðvakreppa (oculogyric crisis), truflun
á athygli, svefnsækni, snertiskynsminnkun (hypoaesthesia), breytt húðskyn, svefnhöfgi.Mjög sjaldgæfar: Hálssveigur (torticollis), lömunarsnertur (paresis), hreyfitregða, ofstæling, eirðarleysi
í fótum.Tíðni ekki þekkt: lllkynja sefunarheilkenni, serótónín heilkenni, lafandi andlit (facial droop). Blóð og eitlar: Mjög sjaldgæfar: Eitilfrumnafæð, fjölgun eósínfikla. Hjarta:Sjaldgæfar:
Hjartsláttarónot, hraðsláttur. Mjög sjaldgæfar: Lenging á QT-bil á hjartalínuriti. Tíðni ekki þekkt:„Torsade de pointes" .Augu: Algengar: Þokusýn.Sjaldgæfar: Ljósfælni. Mjög sjaldgæfar
Sjóndepra, sjóntruflanir, augnkláði, augnþurrkur .Eyru og völundarhús: Sjaldgæfar Svimi, eyrnasuð .Mjög sjaldgæfar Eyrnaverkur. Æðar: Sjaldgæfar Alvarlegur háþrýstingur (hypertensive
crisis), háþrýstingur, réttstöðuþrýstingsfall, lágþrýstingur.Mjög sjaldgæfar. Slagbilsháþrýstingur, þanbilsþrýstingur, óstöðugur blóðþrýstingur. Tíðni ekki þekkt: Yfirlið, segarek í bláæðum.
Öndunarfæri, brjósthol og miðmætkSjaldgæfar: Andnauð, særindi i hálsi.Mjög sjaldgæfar: Hiksti. Meltingarfæri: Algengar: Ógleði, uppköst, hægðatregða, meltingartruflun, munnþurrkur,
of mikil munnvatnsframleiðsla Sjaldgæfar: Niðurgangur, kyngingartregða, magabólga, óþægindi i meltingarvegi, bólgin tunga, þykknun tungu, vindgangur. Mjög sjaldgæfar: Bakflæði i
vélinda eða maga, linar hægðir. Húð og undirhúð: Sjaldgæfar: Ofsakláði.útbrot.dröfnuörðuútbrot (rash maculo-papular), gelgjuþrymlar.Mjög sjaldgæfar: Sóri, ofnæmishúðbólga, hárlos,
bólgið andlit, hörundsroði, örðuútbrot (rash papular), húðerting. Tíðni ekki þekkt: Ofurnæmi, ofsabjúgur. Stoðkerfi og stoðvefur:Algengar: Stirðleiki í stoðkerfi. Sjaldgæfar: Óþægindi í
stoðkerfi, vöðvakrampar, verkir í útlimum, stífleiki í liðamótum. Mjög sjaldgæfar: Kjálkastjarfi (trismus) .Nýru og þvagfæri: Mjög sjaldgæfar. Þvagleki, þvaglátstregða. Tíðni ekki þekkt:
Ósjálfráð þvaglát. Æxlunarfæri og þrjóst: Mjög sjaldgæfar. Getuleysi, aukin stinning, mjólkurflæði úr brjóstum, brjóstastækkun hjá karlmönnum Tíðni ekki þekkt: Standpína ÓnæmiskerfiTíðni
ekki þekkt: Bráðaofnæmisviðbragð Lifur og gall.Sjaldgæfar Aukning lifrarensíma Mjög sjaldgæfar.Óeðlilegar niðurstöður lifrarprófa.Almennar aukaverkanir og aukaverkanir á íkomustað
Algengar Þróttleysi.þreyta.Sjaldgæfar: Óþægindi fyrir brjósti, óeðlilegt göngulag, verkur, þorsti.Mjög sjaldgæfar: Hiti, hitatilfinning. Rannsóknaniðurstöður: Mjög sjaldgæfar: Aukning
mjólkursýruhýdrógenasa í blóði. Bæði skammtima og langtíma klínískar rannsóknir á geðklofa og geðhæð í geðhvarfasjúkdómi sýna að þankippukrampar og lágþrýstingur voru sjaldgæfar
aukaverkanir sem komu fram hjá minna en 1 % þeirra sjúklinga sem fékk zíprasídon. Zíprasídon olli litilli til miðlungs skammtaháðri lengingu á QT-bili. I klínískum rannsóknum á geðklofa
varð 30-60 msek. lenging á hjartalínuritum hjá 12,3% (976/7.941) þeirra sem fengu zíprasídon og 7,5% (73/975) þeirra sem fengu lyfleysu. Lenging um meira en 60 msek. sást á rafritum
1,6% (128/7.941) þeirra sem fengu zíprasídon og 1,2% (12/975) þeirra semfengu lyfleysu. Lenging á QTc-bili um meira en 500 msek. kom fram hjá 3 af 3.266 (0,1%) sjúklingum sem fengu
zi'prasidon og hjá 1 af 538 (0,2%) sjúklingum sem fengu lyfleysu. Sambærilegar niðurstöður fengust úr klínískum rannsóknum á geðhæð í geðhvarfasjúkdómi. Kliniskar rannsóknir á geðklofa
hafa sýnt að við langtímaviðhaldsmeðferð með zíprasídoni hækkaði prólaktingildi sjúklinga stundum en í flestum tilvikum varð það aftur eðlilegt án þess að hætta þyrfti meðferð. Par að auki
komu sjaldan fram greinileg klínísk einkenni (t.d konubrjóst á karlmanni og brjóstastækkun). Börn og unglingar með geðhæð i geðhvarfasjúkdómi (bipolar mania): I klinískum rannsóknum
hefur zíprasídon til inntöku verið gefið 267 börnum og unglingum með geðhvörf. (samanburðarrannsókn með lyfleysu voru algengustu aukaverkanirnar (með tiðni >10%) slævandi verkun,
svefndrungi, höfuðverkur, þreyta og ógleði. Tíðni, tegund og alvarleiki aukaverkana hjá þessum sjúklingum var almennt sambærilegur þeim sem komu fram hjá fullorðnum sjúklingum með
geðhvörf sem meðhöndlaðir voru með zíprasídóni. ( klínískum rannsóknum hjá börnum og unglingum olli zíprasídón litilli til miðlungs skammtaháðri lengingu á QT-bili sem er sambærilegt
því sem komið hefur fram hjá fullorðnum. Ekki var greint frá þankippukrömpum og lágþrýstingi i klinískum samanburðarrannsóknum með lyfleysu hjá börnum og unglingum. Ofskömmtun:
Takmörkuð reynsla er af ofskömmtun zíprasidons. Stærsti staðfesti skammtur til inntöku í einu lagi er 12.800 mg. Einkenni sem greint var frá í því tilviki voru utanstrýtueinkenni og lenging
á QTc-bili (án áhrifa á hjarta) um 446 msek. Algengustu einkennin sem greint hefur verið frá eftir töku of stórra skammta eru utanstrýtueinkenni, svefnhöfgi, skjálfti og kvíði. Hugsanlegt
meðvitundarleysi, krampar eða truflun á vöðvaspennu höfuðs og háls í kjölfar ofskömmtunar getur valdið hættu á ásvelgingu við framkölluð uppköst. Með tilliti til hugsanlegra
hjartsláttartruflana á að fylgjast vel með starfsemi hjarta- og æðakerfis m.a. með hjartalinuriti. Ekkert sértækt mótefni er til gegn zíprasídoni. Afgreiðslutilhögun, greiðsluþáttaka,
pakkningar og hámarkssöluverð (l.janúar 2011): Hylki, hart/20 mg, 56 stk R.*: 25.667 kr„ Hylki, hart/40 mg, 14 stk R.0:10.101 kr„ Hylki, hart/40 mg, 56 stk R.*: 27.228 kr„ Hylki, hart/60
mg, 56 stkR.*: 39.127 kr„ Hylki, hart/80 mg, 56stk R.*: 39.825 kr. Markaðsleyfishafi: PfizerApS, Lautrupvang 8, DK-2750 Ballerup, Danmörk. Heimildir: Samantekt á eiginleikum lyfs (SPC)
janúar 2011. Sérlyfjaskrártexta í heild sinni má nálgast hjá umboðsaðila Pfizer á (slandi, lcepharma hf. og á heimasíðu Lyfjastofnunar: www.lyfiastofnu.nJs
268 LÆKNAblaðið 2011/97