Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 24
RANNSÓKN
Tafla I. Klínískar upplýsingar um 44 sjúklinga fyrir aögerð sem gengust
undir 47 fleyg- eða geiraskurði við lungnakrabbameini öðru en smá-
frumukrabbameini á (slandi 1994-2008. Gefinn er upp fjöldi tilfella og
prósentur í sviga. Prósentutölur miðast við 47 tilfelli en ekki sjúklinga.
Öndunarmælingu vantaði í átta tilfellum.
Upplýsingar n (%)
Saga um reykingar 46 (97,9)
Langvinn lungnateppa 19(40,4)
FEV, <75% af spáðu (41,0)
FVC <75% af spáðu (33,3)
Kransæðasjúkdómur 26 (55,3)
Saga um hjartsláttartruflanir 8(17,0)
ASA-flokkun:*
I 2 (4,3)
II 15(31,9)
III 29(61,7)
IV 1 (2,1)
'American Society of Anesthesiologists
Sjúklingagögn voru fengin úr tveimur aðskildum skrám,
aðgerða- og greiningaskrám Landspítala og úr gagnagrunni
rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði. Fengnar voru upp-
lýsingar úr Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands um fjölda
nýgreindra lungnakrabbameina ÖES á rannsóknartímabilinu
og þannig reiknað hlutfall þeirra sem fóru í þessar aðgerðir af
öllum greindum tilfellum. Klínískar upplýsingar voru fengnar úr
sjúkráskrám og öll vefjasýni skoðuð að nýju af tveimur höfunda
(ÁAogHJÍ).
Ur sjúkraskrám voru skráðar rúmlega 80 breytur í tölvuforritið
Excel, meðal annars einkenni, áhættuþættir og ástand sjúklinga
fyrir aðgerð, fylgikvillar eftir aðgerð og legutími. Skráð var ASA-
flokkun (American Society of Anesthesiologists) sjúklinga sem
metur heilsufar og klínískt ástand sjúklings fyrir aðgerð14 auk
Mynd 1. Staðsetning æxla í lungum, sem voru fiarlægð lijá 44 sjúklingum sem gengust
undir 47 fleyg- eða geiraskurði við lungnakrabbameini öðru en smáfrumukrabbmeini á
íslandi 1994-2008. Alls voru 48 æxli fjarlægð með skurðaðgerð. Gefinn er upp fjöldi æxla
og prósentur í sviga.
Mynd Ásgeir Alexandersson.
helstu gilda úr öndunarmælingum, sérstaklega fráblástur á fyrstu
sekúndu útöndunar (forced expiratory volume in 1 second, FEVf) og
heildarfráblástur (forced vital capacity, FVC). Einnig voru skráðar
ástæðurnar sem skurðlæknir tiltók í aðgerðarlýsingu fyrir því hvers
vegna gerður var fleyg- eða geiraskurður í stað stærri aðgerðar.
Ur vefjasvörum meinafræðings (PAD-svar) voru skráð vefjagerð,
þroskunargráða æxlis,15 mesta þvermál æxlis og hvort skurðbrúnir
voru án æxlisvaxtar. Við endurskoðun vefjasýna þurfti að meta
þroskunargráðuna í sex tilfellum þar sem gráðuna vantaði á
upprunalega svarið. I þremur tilfellum breyttist gráðan við
endurskoðun. Allir sjúklingarnir voru stigaðir samkvæmt TNM-
stigunarkerfinu (6. útgáfa)16 og miðast niðurstöður við upplýsingar
sem lágu fyrir eftir vefjaskoðun sýnis úr aðgerð (pTNM). Stigun
fyrir aðgerð (cTNM-stigun) var ekki stöðluð og var því ekki skráð
sérstaklega en fólst aðallega í röntgenmyndatöku af lungum og
TS af brjóst- og kviðarholi. Beinaskann og TS af höfði voru gerð ef
einkenni þóttu gefa tilefni til. Einnig var gerð berkjuspeglun hjá 28
sjúklingum og ástunga á æxli í gegnum brjósthol í 20 tilfellum. Einn
sjúklingur fór í miðmætisspeglun.
Aðgerðirnar framkvæmdu fimm skurðlæknar og framkvæmdi
hver þeirra á bilinu 4-19 aðgerðir. Sjúklingar voru svæfðir með
tvíopa berkjurennu og það lunga fellt saman sem gerð var aðgerð
á. Aðgerðirnar voru yfirleitt framkvæmdar með fremri (55,3%)
eða aftari (42,6%) hliðarskurði og æxlið fjarlægt með heftibyssu. í
tveimur tilfellum var reynd aðgerð með brjóstholssjá en í báðum
tilvikum þurfti að breyta yfir í opna aðgerð. Hjá einum sjúklingi
var aðgerðin gerð í gegnum bringubeinsskurð og í sömu aðgerð
gerð kransæðahjáveituaðgerð. í lok aðgerðanna var komið fyrir
einum eða tveimur brjóstholskerum sem hafðir voru í nokkra daga
(miðgildi 3, bil 1-21).
Flestir sjúklinganna dvöldu á vöknunardeild í fjórar til sex
klukkustundir eftir aðgerð (63,8%). í 17 tilfellum (36,2%) þurftu
sjúklingar að liggja á gjörgæslu vegna vandamála sem upp komu í
aðgerð eða til eftirlits, en 13 (76,5%) þeirra dvöldu þar aðeins eina
nótt.
Afdrif sjúklinganna voru könnuð með upplýsingum úr þjóðskrá
þar sem meðal annars fengust upplýsingar um hvort sjúklingamir
væru lífs eða liðnir þann 10. janúar 2010. Meðaleftirfylgni var
55 mánuðir (bil 0,2-13,7 ár). Skurðdauði (operative mortality) var
skilgreindur sem andlát innan 30 daga frá aðgerð en einnig var
kannað hversu margir höfðu látist innan 90 daga frá aðgerð.
Tölvuforritin Excel og R voru notuð við tölfræðiúrvinnslu.
Heildarlífshorfur (overall survival) voru reiknaðar með aðferð
Kaplan-Meier. Kí-kvaðrat, Fisher exact-próf og t-próf voru notuð til
að bera saman tímabil og hópa. Lífshorfur voru bornar saman með
log-rank prófi og miðast marktækni við p-gildi <0,05.
Öll tilskilin leyfi frá Persónuvemd, Vísindasiðanefnd og
framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala lágu fyrir áður en
rannsóknin hófst.
Niöurstöður
Af 47 aðgerðum voru 42 fleygskurðir (89,4%) og fimm geiraskurðir
(10,6%), en þrír sjúklingar gengust undir tvær aðgerðir. Annar
sjúklingur greindist með tvö frumæxli sem voru fjarlægð í sömu
aðgerð og voru því 48 æxli fjarlægð í heildina. Rúmlega helmingur
aðgerðanna (55,3%) var framkvæmdur á konum og var meðalaldur
304 LÆKNAblaðið 2011/97