Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 35
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Stöndum saman! Sigurveig Pétursdóttir sigurpet<3landspitali.is Höfundur er bæklunarlæknir á Landspítala í ÍSLENSKA ÞJÓÐFÉLAGINU hafa verið umhleypingatímar rétt eins og í veðrinu síðustu daga. Ljóst er að staða lækna hefur stöðugt farið versnandi, bæði hvað varðar launakjör og einnig vinnuaðstæður. Hvemig launamálin hafa þróast þarf næstum ekki að ræða hér. Klipið og skorið hefur verið í hvívetna og sjúkrahúslæknar, heilsugæslulæknar sem og sjálfstætt starfandi læknar finna allir mikið fyrir því. Þetta hefur svo, eins og fólki hefur orðið tíðrætt um, valdið því að læknum á íslandi fer fækkandi. Yngri læknarnir fara fyrr í sérnám en áður, hluti sérfræðinga hefur flust af landi brott. Engar tölur eru til um hve margir læknar búsettir á íslandi vinna að hluta til erlendis, en vitað er að þeim fjölgar jafnt og þétt. Þetta hefur mikil áhrif á alla læknastéttina. Heilsugæslulæknir sem er yfirhlaðinn störfum og sér ekki fram úr sjúklingafjöldanum reynir að vísa þeim veikustu á sérfræðinga, sjálfstætt starfandi eða á sjúkrahúsum. Þar er hins vegar allt yfirfullt og ómögulegt að bæta á sig meiri vinnu. Kandídatar og læknar í sérnámi hérlendis vinna undir miklu álagi og flýta sér eins og unnt er til útlanda í sérnám. Ymsar starfsstöðvar hafa verið sameinaðar og starfsaðstaða versnað til muna, sem eykur verulega vinnuálag. Sem sagt sitja allir í sömu súpunni þegar læknum fækkar. Það er mikilvægt fyrir framtíð lækninga á Islandi að bæta bæði vinnuaðstæður og launakjör lækna hérlendis. Það er ekki hagur þjóðarinnar að þessi þróun haldi áfram. Það er ekki lengur eftirsóknarvert að koma heim til íslands að sérnámi loknu. Það er mikil breyting frá því sem áður var. Víða eru auglýstar lausar stöður lækna og enginn sækir um. Launin þykja léleg og vinnuaðstaða víða lök. Fæstir heillast líka af mikilli vaktabyrði og vinnuálagi. Sá tími er liðinn að það þyki fínt að vinna sér til óbóta. Mikið hefur breyst frá þeim tíma þegar læknum erlendis þótti mikill fengur í að því að fá eitt Morgunblað til aflestrar. Tölvutæknin og tíðar flugferðir hafa meðal annars orðið til þess að fjarlægðin frá heimahögunum er ekki svo mikil þótt búið sé erlendis til langframa. Fáir flytja til Islands að sémámi loknu af einskærri heimþrá og sennilega enginn af skyldurækni við íslenskt þjóðfélag. Það er því ótrúlega mikilvægt þegar kemur að kjarabaráttu lækna, sjálfstætt starfandi sem annarra, að við stöndum saman, ung sem aldin. Við þurfum hvert á öðru að halda til að halda heilbrigðis- kerfinu gangandi. Við verðum að fá kjör bætt svo læknar snúi aftur að sérnámi loknu og einnig að okkur takist að halda kandídötum og læknum í upphafi sérnáms við störf á Islandi. Hvar sem við vinnum þá er mikilvægt að við tölum einum rómi og stöndum vörð um sameiginleg hagsmunamál. Ef fækkun heldur áfram verður óvinn- andi hér fyrir lækna. Stöndum því saman í baráttunni þótt ekki vinni allir á sama kjarasamningi. Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir formaður Valgerður Á. Rúnarsdóttir varaformaður Sigurveig Pétursdóttir gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritari Ágúst Örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Þór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Þórey Steinarsdóttir í pistlunum Úrpenrta stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknadagar 2012 Undirbúningur er hafinn fyrir Læknadaga sem haldnir verða 16.-20. janúar 2012. Gengið verður frá stærstum hluta dagskrár í byrjun sumars og eru þeir sem vilja leggja til efni beðnir að senda hugmyndir að einstökum dagskráratriðum fyrir 16. maí nk. (eða síðar eftir samkomulagi) til Margrétar Aðalsteinsdóttur á netfangið magga@lis.is Nauðsynlegt er að fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að greiða kostnað vegna komu erlends fyrirlesara. Undirbúningsnefnd LÆKNAblaðiö 2011/97 315
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.