Læknablaðið - 15.05.2011, Side 37
„Ég vil fá fleiri lækna inn í embættið, og við þurfum að vekja áhuga þeirra á að mennta sig á sviði lýSheilsu og starfa með
okkur að fjölþættum verkefnum þess," segir Geir Gunnlaugsson landlæknir.
segir að hjá slíku verði sjaldan komist.
„Endurskipulagning embættisins
hefur haft það meginmarkmið að skapa
öflugt embætti með faglega yfirstjórn
sem stendur undir þeim kröfum sem til
hennar eru gerðar í lögum og reglugerðum.
Mannauður hinnar nýju stofnunar er mjög
mikill og hér er mikil og mjög verðmæt
sérþekking og kunnátta. Ef ég ætti þó
að nefna einhvem vanda við núverandi
mönnun embættisins, þá eru hér of fáir
læknar. Ég vil fá fleiri lækna inn í embættið,
og við þurfum að vekja áhuga þeirra á að
mennta sig á sviði lýðheilsu og starfa með
okkur að fjölþættum verkefnum þess."
Ekki verður hjá því komist að spyrja
hvort læknar fáist til starfa innan stofn-
unarinnar ef yfirmannastöður em þar allar
mannaðar nú þegar?
„Það verður hver og einn að gera
það upp við sjálfan sig. Spurningin er
hvort áhuginn beinist að því að vinna
að verkefnunum eða stjóma öðrum
við þá vinnu. Við megum heldur ekki
gleyma því að sífellt meiri áhersla er
lögð á þverfagleg teymi þar sem læknar,
hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar,
sjúkraþjálfarar, lýðheilsufræðingar og
fleiri fagstéttir vinna saman að tilteknum
verkefnum. Það fer þá eftir eðli verkefnisins
hverju sinni hver í hópnum leiðir hann.
Það hefur auk þess legið fyrir frá upphafi
að endurskipulagning embættisins byggði
á þeirri forsendu að allir núverandi
starfsmenn héldu störfum sínum og að nýir
millistjórnendur kæmu úr hópi þeirra."
Geir segir verkefni hins nýja og
endurskipulagða embættis landlæknis
vera nánast óþrjótandi. „Takmörk okkar
liggja ekki við verkefnin heldur fjármunina
sem við fáum til að sinna þeim. Það er of
langt mál að telja upp öll þau verkefni
sem embættinu eru falin með lögum og
við njótum þess að hafa hér mjög öflugan
hóp starfsfólks þar sem hver og einn
ætti að geta notið sérþekkingar sinnar
við störf sín. Þó get ég sagt að hér eru
næg verkefni fyrir fleiri starfsmenn ef
fjárhagur embættisins leyfði slíkt. Við
þurfum til dæmis að auka eftirlitsþátt
embættisins verulega frá því sem nú er.
Sameining heilbrigðisráðuneytisins og
félagsmálaráðuneytisins er hugsanlegt
sóknarfæri í þessu tilliti."
Læknaskortur til lengri tíma
Eitt af hlutverkum embættis landlæknis er
ráðgjöf til stjórnvalda í heilbrigðismálum
og spumingin sem margir spyrja sig í dag
er hvort heilbrigðiskerfið sé ekki komið að
LÆKNAblaðið 2011/97 317