Læknablaðið - 15.05.2011, Blaðsíða 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Þessi varflokkaður grænn og gat því leyft sér að brosa.
Hér þarf að hafa liraðar hendur og bjarga hinum slasaða undan rútunni.
Stórslys norðan við Blönduós
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Félag læknanema stóð fyrir stórslysa-
æfingu laugardaginn 9. apríl með
þátttöku Björgunarsveitarinnar Ársæls
á Seltjamarnesi og Hjálparsveitar skáta
í Garðabæ. Að sögn Mörtu Berndsen, 5.
árs læknanema og formanns kennslu- og
fræðslumálanefndar Félags læknanema,
tókst æfingin mjög vel og var lærdómsrík
fyrir þátttakendur.
Slysið var sviðsett þannig að rúta full
af farþegum hefði farið út af rétt norðan
við Blönduós og læknarnir þurftu að vera í
sambandi við þyrlu og björgunarfólk
um flutning og umönnun hinna slösuðu
af slysstað og á söfnunarsvæði slasaðra
sem var Slökkvistöðin í Hafnarfirði.
Notast var við gamlan strætisvagn sem
slysavettvanginn.
Stór hópur læknanema tók þátt í
æfingunni, 1. árs nemar léku hina slösuðu,
2. og 3. árs nemar sáu um flutning
sjúklinganna inn á söfnunarsvæðið í
Slökkvistöðinni, þar sem 4. árs nemar mátu
áverka en þeir sinntu einnig áverkamati
á slysstað. Fimmta árs nemarnir veittu
þeim slösuðu fyrstu meðferð og ákváðu
síðan hvert skyldi senda hina slösuðu til
frekari meðferðar og voru í sambandi við
sjúkrahús í Reykjavík og á Akureyri.
„Þetta voru um 25 manns sem
höfðu slasast og við notuðumst við
slysaæfingaráætlun sem Björgunarsveitin
Ársæll átti, en þetta gengur þannig fyrir sig
að hinum slösuðu er skipt í flokka, grænan,
gulan og rauðan eftir alvarleika áverkanna.
Alvarlegustu áverkarnir voru loftbrjóst,
hryggbrot og kviðarholsáverkar og við
Ástand og áverkar hins slasaða skrásettir.
324 LÆKNAblaðiö 2011/97