Læknablaðið - 15.02.2012, Blaðsíða 4
2. tölublað 2012
LEIÐARAR
79
Ragnar Danietsen
Skyndidauði íþrótta-
manna: er sjúkdóma-
skimun nauðsynleg?
Myndgreining hjá mikið þjálfuðum
íþróttamönnum virðist benda til
þess að ofþjálfuð hjörtu séu ekki
alltaf eins heilbrigð og áður hefur
verið haldið. Of mikil þjálfun kann
í raun að vera hjartaskemmandi.
81
Elísabet Benedikz
Fótaskortur, forvarnir
og félagsleg ábyrgð í
hálkutíð
Hreinsun gangstétta og hjólastíga
er mikilvæg í hálkunni, ekki síður
en góður skófatnaður og mann-
broddar. Hér bera borgaryfirvöld
mikla ábyrgð og borgararnir líka
því margir detta á bílaplönum og
einkalóðum við hús sín. Við berum
umfram allt sjálf ábyrgð á eigin
öryggi og velferð.
FRÆÐIGREINAR
83
Baldur Þórólfsson, Fríða Rún Þórðardóttir, Gunnar Þór Gunnarsson,
Axel F. Sigurðsson
Skimun fyrir áhættuþáttum skyndidauða íþróttamanna
Rannsóknarþýðið var ekki nógu stórt til þess að draga megi ályktanir um
tíðni undirliggjandi hjartasjúkdóma í þessum hópi en ætti að gefa vísbend-
ingu um algengi áhættuþátta meðal ungra íslenskra íþróttamanna. Þar sem
enginn samanburðarhópur var notaður í rannsókninni er ekki unnt að segja
til um hvort áhættuþættirnir séu algengari meðal íþróttamanna en þeirra
sem ekki stunda íþróttir.
91
Halla Sif Ólafsdóttir, Gylfi Óskarsson, Ásgeir Haraldsson
Kawasaki-sjúkdómur á íslandi 1996-2005, faraldsfræði
og fylgikvillar
Hægt er að draga þær ályktanir af þessari rannsókn að nýgengi og
kynjahlutfall sé sambærilegt við fyrri íslenska rannsókn og rannsóknir frá
Norðurlöndunum. Fá börn greinast með kransæðabreytingar í bráðafasa,
þær breytingar sem greindust gengu til baka hjá öllum nema tveimur og
engir alvarlegir bráðir fylgikvillar urðu af þeirra völdum. Athygli vekur þó al-
gengi míturlokuleka.
97
Sigurbjörn Birgisson
Magaraufun um húð með hjálp speglunar á íslandi
2000-2009.
Ábendingar, fylgikvillar og siðfræðileg álitamál
Rannsóknin bendirtil þess að á íslandi sé hófsemi gætt í notkun PEG-spegl-
unar til næringar sjúklinga með endastigssjúkdóma. Pverfagleg samvinna
meðferðaraðila, sjúklings og aðstandenda er nauðsynleg þegar taka þarf
ákvörðun um að hefja eða hefja ekki gervinæringu og vökvun með PEG
þegar siðferðileg álitamál koma upp.
103
Þóroddur Bjarnason, Sveinn Arnarson
Slys á hættulegustu vegum landsins
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að flest umferðarslys verða á helstu
vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þeir eru jafnframt með öruggustu
vegum landsins þegar litið er til slysatíðni. í þessu felst sú þversögn að hægt
er að fækka slysum mest með því að auka umferðaröryggi þar sem það er
nú þegar mest.
76 LÆKNAblaðið 2012/98