Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2012, Side 43

Læknablaðið - 15.02.2012, Side 43
BIÐSTOFUR Læknavaktm Húðlæknastöðin Smáratorgi ■ tQ3 í íí ■ liL 1 d JLl 1 J líði vel með að horfa af stuttu færi beint framan í aðra sjúklinga eða aðstandendur meðan það bíður þess að komast undir læknishendur. Þarna hafði sætauppstill- ingin verið ákveðin algjörlega án tillits til sálfræðilegra þátta. Dæmið er því kjörið til að sýna hversu mikilvægt er að sjónarmið umhverfissálfræðinnar fái sitt rými." Sálfræðileg endurheimt „Rannsóknir undanfarinna ára hafa einnig sýnt að skortur á því að upplifa endurheimt getur haft mjög neikvæð áhrif á heilsufar/' segir Páll Jakob. Hann vitnar í skýrsluna þar sem segir að: „Ólíkt umhverfi er misvel til þess fallið að stuðla að endurheimt en samkvæmt kenningunni um tengsl athygli og endur- heimtar (attention restoration theory) er um- hverfi sem býr yfir tilteknum eiginleikum best til þess fallið að stuðla að endurheimt. Sá eiginleiki sem er mikilvægastur í þessu samhengi er hrifning og vísar hann til þess að í umhverfinu sé að finna áreiti eða ferla sem fólki finnst áhugavert að skoða og rannsaka. Annar eiginleiki er að um- hverfið veki upp tilfinningu um að fjar- veru frá hinu daglega amstri sem krefst athygli og ábyrgðar." Það virðist alveg ljóst af þessu að víða má huga betur að umhverfi sjúklinga á sjúkra- og heilsustofnunum og nýta sér þá niðurstöður rannsókna í umhverfissál- fræðinni til að hitta naglann sem best á höfuðið eða eins og segir í lokaorðum rannsóknarskýrslunnar Betri biöstofur: „Frumskilyrði er þó að frekari aðgerðir byggist á vísindalegum grunni, þannig að hægt sé að bæta umrætt umhverfi með kerfisbundnum hætti, jafnframt því sem hlutlausar mælingar fari fram á árangri þeirra aðgerða sem lagt er út í hverju sinni. Þannig má eins og frekast er unnt tryggja að umhverfið stuðli að endurheimt meðal sjúklinga, auki vellíðan þeirra og velferð." Þess má að lokum geta að við lok verk- efnisins, sem voru formlega í nóvember 2011, gáfu samtökin Umhverfi og vellíðan, með stuðningi frá Actavis, stækkaðar náttúru- og landslagsljósmyndir eftir Pál Jökul. „Áður en þessi verklok fóru fram voru veggir á gangi dag- og göngudeildar krabbameinslækninga (11C), framan við biðstofuna, málaðir í ljósbrúnum litum og myndirnar hengdar upp. Þetta verkefni var ekki hluti af rannsókninni en breyt- ingarnar voru byggðar á niðurstöðum rannsóknarinnar og vísindalegum niður- stöðum innan umhverfissálfræðinnar. Þær voru hugsaðar sem punkturinn yfir i-ið varðandi það hvernig hægt væri að breyta óaðlaðandi spítalaumhverfi í vistlegt og aðlaðandi rými. Aftur er hér um fremur hógværar breytingar að ræða, sem hægt væri svo að bæta við í framtíðinni," segir Páll Jakob að lokum. Læknastofur til leigu Fjórar læknastofurtil leigu að Sogavegi 108 (fyrir ofan Garðsapótek). Nánari upplýsingar veitir Haukur Ingason í síma 8645590. L LÆKNAblaðið 2012/98 115

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.