Læknablaðið - 15.05.2012, Síða 4
5. tölublað 2012
LEIÐAR AR
FRÆÐIGREINAR
267
Geir Gunnlaugsson
Embætti landlæknis
eftir sameiningu
Embætti landlæknis hefur
verið í brennidepli fjölmiðla og til
umræðu á bloggsíðum að undan-
förnu. Það ber vott um mikilvægi
verkefna embættisins. Hið nýja
embætti er betur fært um að
sinna fjölbreyttum störfum sínum
eftir sameiningu.
271
Tómas Andri Axelsson, Martin Ingi Sigurðsson, Ásgeir Alexandersson, Húnbogi Þorsteinsson,
Guðmundur Klemenzson, Steinn Jónsson, Tómas Guðbjartsson
Innlagnir á gjörgæslu eftir blaðnám og fleygskurði
við lungnakrabbameini
Tilgangur þessarar afturskyggnu rannsóknar var að skoða ástæður fyrir gjörgæsluinnlögn á þeim
252 sjúklingum sem gengust undir blaðnám, fleyg- eða geiraskurð vegna lungnakrabbameins á
Landspítala á 10 ára tímabili, 2001-2010. Fáir sjúklingar þarfnast innlagnar á gjörgæsludeild eftir
skurðaðgerðir við lungnakrabbameini, og þá frekast þeir sem eru eldri og sem hafa áður fengið
hjarta- og lungnasjúkdóma.
277
Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Erlingur Birgir Richardsson, Kári Jónsson, Anna Sigríður Ólafsdóttir
Holdafar, úthald, hreyfing og efnaskiptasnið meðal
18 ára íslenskra framhaldsskólanema
Niðurstöðurnar benda til að þótt úthald 18 ára framhaldsskólanema sé að jafnaði gott sé hreyfingu
þeirra verulega ábótavant. Hlutfall líkamsfitu þeirra er alltof hátt og of hátt hlutfall þeirra yfir kjör-
þyngd. Einnig fannst hækkaður slagþrýstingur, LDL og þríglýseríð og lækkað HDL hjá um 10%
unglinganna. Krakkar í verknámsskóla virðast auk þess verr á sig komnir en jafnaldrar þeirra í bók-
námsskólum. Aldurshópurinn þarf að hreyfa sig meira og minnka líkamsfitu til að stemma stigu við
fylgikvillum.
269
Hulda Hjartardóttir
Lyfjaávísanir í réttum
höndum?
Ég legg til að fyrirhugað frumvarp
um lyfjaávísanir verði dregið til
baka og haldið verði áfram vinnu
við að fræða ungt fólk um kynlíf og
getnaðarvarnir í góðri samvinnu
lækna, hjúkrunarfræðinga og Ijós-
mæðra.
285
Þórir Svavar Sigmundsson, Bjarni Árnason, Þóra Elísabet Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Vernharðsson
Mannbjörg á Möðrudal á Fjöllum
Ung kona fékk krampa og missti púls utan heilbrigðisþjónustusvæðis. Hún fór með sjúkraflugi suður
og var greind með blóðrek í lungum. Hún útskrifaðist af sjúkrahúsi á 14. degi án skerðingar á heila-
starfsemi. Við erfiðar aðstæður getur lífskeðjan reynst sterk þegar boð um aðstoð berast hratt,
endurlífgun hefst án tafar og sérhæfð meðferð er veitt eins fljótt og hægt er.
289
Inga Jóna Ingimarsdóttir, Lena Rós Ásmundsdóttir, Magnús Gottfreðsson
Tilfelli mánaðarins: maður með sýklasótt og rauðkornasundrun
Sjötugur maður með insúlínháða sykursýki kom á bráðamóttöku með háan hita, verk um ofanverðan
kvið og uppköst. Einkennin höfðu ágerst undanfarna þrjá sólarhringa. Við komu var hann með hita,
40,5°C, andaði 40 sinnum á mínútu, hjartsláttartíðni var 100 slög á mínútu en blóðþrýstingur var
eðlilegur og súrefnismettun án súrefnis sömuleiðis. Hann var vakandi, meðvitund óskert, en litarhaft
heiðgult. Eymsli fundust við þreifingu á kvið.
Hugmynd að dagskrá?
LÆKNADAGAR 2013 VERÐA DAGANA 21.-25. JANÚAR í HÖRPU
Þeir sem vilja leggja til efni í dagskrá Læknadaga sendi hugmyndir sínar
til Margrétar Aðalsteinsdóttur magga@lisJs fyrir 10. maí nk.
Fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að
greiða kostnað vegna komu erlends fyrirlesara.
Undirbúningsnefnd
264 LÆKNAblaðið 2012/98