Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2012, Side 34

Læknablaðið - 15.05.2012, Side 34
UMFJOLLUN O G GREINAR Mikil áhætta og alvarlegar afleiðingar - rannsókn á afdrifum sjúklinga eftir greiningu krabbameins ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Unnur A. Valdimarsdóttir dósent við læknadeild Háskóla íslands hefur nýverið birt niðurstöður mjög yfir- gripsmikillar rannsóknar á afdrifum krabbameinssjúklinga fyrstu vikurnar eftir greiningu. Niðurstöðurnar birtust í New England Journal of Medicine í apríl og hafa vakið mikla athygli. Við rannsóknina fengu Unnur og sam- starfsfólk hennar aðgang að gagna- grunnum sænska heilbrigðiskerfisins og náði hún til 6 milljóna einstaklinga og spannar 17 ár, frá 1991-2007. Af heildar- hópnum greindust um 500 þúsund manns með krabbamein á tímabilinu. Rannsóknin byggir eingöngu á tölfræðilegum gögnum úr sænska heilbrigðiskerfinu og segir Unnur að skráningar Svía séu frábærlega vandaðar og aðgengilegar vísinda- mönnum. „Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort krabbameinsgreiningin ein og sér hafi bein áhrif á tíðni sjálfsvíga eða dauða af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Fyrir liggur fjöldi greina og rannsókna þar sem leiddur eru líkur að því að hækkuð sjálfsvígstíðni krabbameinssjúklinga stafi nær eingöngu af aukaverkunum með- ferðar eða að sjúklingum reynist ofviða að lifa með sjúkdómnum þegar fram líða stundir og grípi því til þessara örþrifaráða. Við erum hins vegar að skoða fyrstu vik- urnar eftir greiningu, það er tímann áður en meðferð getur talist hafa veruleg áhrif, og hvort þessir fyrstu dagar og vikur ein- kennist af aukinni tíðni dauðsfalla af þess- um orsökum. Niðurstöður okkar sýna svo ekki verður um villst að fólk er í tólffaldri áhættu að fremja sjálfsvíg á fyrstu viku eftir greiningu og áhættan er nær sexföld 294 LÆKNAblaðið 2012/98 þegar litið er til andláts af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Þessi áhættuaukning skýrðist ekki af fyrra heilsufari sjúklinga og við túlkum því þessar niðurstöður sem beina afleiðingu af áfallinu sem fylgir því að fá þessa greiningu." Mismikil áhætta eftir tegundum meina Unnur segir að í þessum niðurstöðum felist skýr skilaboð til heilbrigðisyfirvalda um að huga verði sérstaklega að heilsufari fólks á þessum fyrstu dögum eftir grein- inguna. „Okkar rannsókn er ekki fyrst til að sýna fram á að alvarleg og óvænt áföll geti valdið hjarta- eða æðasjúkdóma. En það kemur hins vegar skýrt fram í okkar rannsókn hve áhættan er mikil og afleiðingarnar alvarlegar og því er sjálfsagt að bregðast við með skipulögðum forvörnum. Það auðveldar okkur að vera í viðbragðsstöðu þegar skilaboðin eru veitt, að kerfið veit hvað getur verið í húfi. Þetta er gerólíkt náttúruhamförum þar sem áfallið skellur á öllum að óvörum. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera meðvitað um þessa áhættu og fylgjast vel með sjúklingum sínum fyrstu dagana og vikurnar eftir greiningu." Unnur segir að næstu skref í rann- sóknum hennar og samstarfsmanna hennar sé einmitt að að leita að svörum við því hvernig megi hafa áhrif til þess að draga úr áhættunni. Hún nefnir aukið eftirlit, sálrænan stuðning og lyfjagjöf sem dæmi um mögulegar íhlutanir heil- brigðisyfirvalda við þessar aðstæður. En fleiri rannsóknir þarf vissulega til að skoða hvaða íhlutanir koma hér að gagni. í rannsókninni kemur fram að greiningu nær allra krabbameina fylgir aukin áhætta sjálfsvíga og andláts af hjarta- og æða- sjúkdómum. Ahættan er þó mismikil eftir tegundum krabbameina. „Greining meina með góða horfur, svo sem margra húð- krabbameina, fylgir lítil sem engin aukin áhætta, en öðrum krabbameinum eins og í blöðruhálskirtli og brjósti fylgir töluvert aukin áhætta, en þeim krabbameinum sem telja má hvað erfiðust í meðferð fylgir mesta áhættan. Ahættuaukningin er sem sagt einnig til staðar hjá þeim sem greinast með krabbamein sem að öllu jöfnu svara vel meðferð og eru jafnvel læknanleg. Þarna er því ástæða til að fræða fólk með það fyrir augum að draga úr áfallinu sem fylgir alltaf krabbameinsgreiningu. Það má líka benda á að rannsóknin tekur einungis til dauðsfalla eftir greiningu og skoðar ekki hversu margir fengu með- höndlun vegna geðraskana, fengu hjarta- áfall eða blóðtappa en lifðu það af." Einstakt tækifæri til þekkingarsköpunar Niðurstöður rannsóknarinnar hafa gildi fyrir heilbrigðisyfirvöld og hvernig við sinnum þjónustu nýgreindra einstaklinga með krabbamein. En rannsóknin rennir að sögn Unnar vísindalegum stoðum undir þá alþýðuhugmynd að hægt sé að deyja úr skelfingu. „Við skyndilegt og alvarlegt áfall streymir mikið magn stresshormóna út í líkamann og veldur gríðarlega auknu álagi á hjarta- og æðakerfi sem getur haft þessar alvarlegu afleiðingar. Svipaðar niðurstöður hafa einnig sést í rannsóknum sem skoðað hafa hópa sem hafa orðið fyrir mikilli sorg eða ástvinamissi, lent í nátt- úruhamförum eða stríðsátökum." Það er athyglisvert hversu hratt áhættan stígur eftir greiningu og hversu J

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.