Læknablaðið - 15.05.2012, Blaðsíða 34
UMFJOLLUN O G GREINAR
Mikil áhætta og
alvarlegar afleiðingar
- rannsókn á afdrifum sjúklinga eftir greiningu krabbameins
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Unnur A. Valdimarsdóttir dósent við
læknadeild Háskóla íslands hefur
nýverið birt niðurstöður mjög yfir-
gripsmikillar rannsóknar á afdrifum
krabbameinssjúklinga fyrstu vikurnar
eftir greiningu. Niðurstöðurnar birtust í
New England Journal of Medicine í apríl
og hafa vakið mikla athygli.
Við rannsóknina fengu Unnur og sam-
starfsfólk hennar aðgang að gagna-
grunnum sænska heilbrigðiskerfisins og
náði hún til 6 milljóna einstaklinga og
spannar 17 ár, frá 1991-2007. Af heildar-
hópnum greindust um 500 þúsund manns
með krabbamein á tímabilinu. Rannsóknin
byggir eingöngu á tölfræðilegum gögnum
úr sænska heilbrigðiskerfinu og segir
Unnur að skráningar Svía séu frábærlega
vandaðar og aðgengilegar vísinda-
mönnum.
„Meginmarkmið rannsóknarinnar var
að kanna hvort krabbameinsgreiningin ein
og sér hafi bein áhrif á tíðni sjálfsvíga eða
dauða af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
Fyrir liggur fjöldi greina og rannsókna þar
sem leiddur eru líkur að því að hækkuð
sjálfsvígstíðni krabbameinssjúklinga stafi
nær eingöngu af aukaverkunum með-
ferðar eða að sjúklingum reynist ofviða
að lifa með sjúkdómnum þegar fram líða
stundir og grípi því til þessara örþrifaráða.
Við erum hins vegar að skoða fyrstu vik-
urnar eftir greiningu, það er tímann áður
en meðferð getur talist hafa veruleg áhrif,
og hvort þessir fyrstu dagar og vikur ein-
kennist af aukinni tíðni dauðsfalla af þess-
um orsökum. Niðurstöður okkar sýna svo
ekki verður um villst að fólk er í tólffaldri
áhættu að fremja sjálfsvíg á fyrstu viku
eftir greiningu og áhættan er nær sexföld
294 LÆKNAblaðið 2012/98
þegar litið er til andláts af völdum hjarta-
og æðasjúkdóma. Þessi áhættuaukning
skýrðist ekki af fyrra heilsufari sjúklinga
og við túlkum því þessar niðurstöður sem
beina afleiðingu af áfallinu sem fylgir því
að fá þessa greiningu."
Mismikil áhætta eftir tegundum meina
Unnur segir að í þessum niðurstöðum
felist skýr skilaboð til heilbrigðisyfirvalda
um að huga verði sérstaklega að heilsufari
fólks á þessum fyrstu dögum eftir grein-
inguna. „Okkar rannsókn er ekki fyrst
til að sýna fram á að alvarleg og óvænt
áföll geti valdið hjarta- eða æðasjúkdóma.
En það kemur hins vegar skýrt fram í
okkar rannsókn hve áhættan er mikil
og afleiðingarnar alvarlegar og því er
sjálfsagt að bregðast við með skipulögðum
forvörnum. Það auðveldar okkur að vera í
viðbragðsstöðu þegar skilaboðin eru veitt,
að kerfið veit hvað getur verið í húfi. Þetta
er gerólíkt náttúruhamförum þar sem
áfallið skellur á öllum að óvörum. Læknar
og annað heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera
meðvitað um þessa áhættu og fylgjast vel
með sjúklingum sínum fyrstu dagana og
vikurnar eftir greiningu."
Unnur segir að næstu skref í rann-
sóknum hennar og samstarfsmanna
hennar sé einmitt að að leita að svörum
við því hvernig megi hafa áhrif til þess
að draga úr áhættunni. Hún nefnir aukið
eftirlit, sálrænan stuðning og lyfjagjöf
sem dæmi um mögulegar íhlutanir heil-
brigðisyfirvalda við þessar aðstæður.
En fleiri rannsóknir þarf vissulega til að
skoða hvaða íhlutanir koma hér að gagni.
í rannsókninni kemur fram að greiningu
nær allra krabbameina fylgir aukin áhætta
sjálfsvíga og andláts af hjarta- og æða-
sjúkdómum. Ahættan er þó mismikil eftir
tegundum krabbameina. „Greining meina
með góða horfur, svo sem margra húð-
krabbameina, fylgir lítil sem engin aukin
áhætta, en öðrum krabbameinum eins og
í blöðruhálskirtli og brjósti fylgir töluvert
aukin áhætta, en þeim krabbameinum
sem telja má hvað erfiðust í meðferð fylgir
mesta áhættan. Ahættuaukningin er sem
sagt einnig til staðar hjá þeim sem greinast
með krabbamein sem að öllu jöfnu svara
vel meðferð og eru jafnvel læknanleg.
Þarna er því ástæða til að fræða fólk með
það fyrir augum að draga úr áfallinu
sem fylgir alltaf krabbameinsgreiningu.
Það má líka benda á að rannsóknin tekur
einungis til dauðsfalla eftir greiningu og
skoðar ekki hversu margir fengu með-
höndlun vegna geðraskana, fengu hjarta-
áfall eða blóðtappa en lifðu það af."
Einstakt tækifæri til þekkingarsköpunar
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa gildi
fyrir heilbrigðisyfirvöld og hvernig við
sinnum þjónustu nýgreindra einstaklinga
með krabbamein. En rannsóknin rennir að
sögn Unnar vísindalegum stoðum undir
þá alþýðuhugmynd að hægt sé að deyja
úr skelfingu. „Við skyndilegt og alvarlegt
áfall streymir mikið magn stresshormóna
út í líkamann og veldur gríðarlega auknu
álagi á hjarta- og æðakerfi sem getur haft
þessar alvarlegu afleiðingar. Svipaðar
niðurstöður hafa einnig sést í rannsóknum
sem skoðað hafa hópa sem hafa orðið fyrir
mikilli sorg eða ástvinamissi, lent í nátt-
úruhamförum eða stríðsátökum."
Það er athyglisvert hversu hratt
áhættan stígur eftir greiningu og hversu
J