Læknablaðið - 15.05.2012, Side 35
UMFJÖLLUN O G GREINAR
hratt áhættuaukningin gengur yfir og
Unnur bendir á að strax tveimur til fjórum
vikum eftir greiningu sé áhættan af
dauðsfalli vegna hjarta- eða æðasjúkdóms
aðeins rúmlega tvöföid, og hálfu ári eftir
greiningu sé áhættan nánast sú sama
og hjá öðrum sem ekki hafa greinst með
krabbamein. „Svipaða sögu má segja um
sjálfsvígshættuna sem fellur þó aldrei
alveg niður, heldur er um tvöföld ári eftir
greiningu. Það er því alveg ljóst að fyrstu
vikur og mánuðir eftir greiningu eru sá
tími sem kallar á sérstaka vöktun."
Unnur segist ekki hafa neina ástæðu
til að ætla annað en svipaðar niðurstöður
fengjust ef gerð væri sams konar rann-
sókn byggð á íslenskum gagnagrunnum.
„Við höfum fengið áþekkar niðurstöður í
rannsóknum okkar í öðrum samfélögum,
til dæmis í Bandaríkjunum, og mér finnst
mjög líklegt að við fengjum sömu niður-
stöður hér. Við eigum mjög sambærilegar
upplýsingar hér á íslandi í gagnagrunnum
okkar, það er krabbameinsskrá og dánar-
meinaskrá, og því sjálfsagt að rannsaka
þetta einnig hér á landi. Almennt séð
höfum við íslendingar kannski ekki nýtt
okkur þennan efnivið í sama mæli til vís-
indarannsókna og Svíar, enda er aðgengi
vísindamanna að íslensku gagnagrunn-
„Fyrstu vikurnar og mánuöirnir
eftir krabbameinsgreiningu eru
sá tími sem kallar á sérstaka
vöktun," segir Unnur A. Valdi-
marsdóttir.
unum oft torveldara en til sambærilegra
rannsókna í Svíþjóð. Hér megum við
sannarlega bæta okkur því við íslendingar
höfum einstakt tækifæri til þekkingar-
sköpunar á þessu sviði. Það hlýtur að
vera markmið svo ítarlegra lýðgrundaðra
upplýsingasafna að þau nýtist skilvirkt til
vísindarannsókna sem stuðla að heilbrigði
og bættri heilbrigðisþjónustu þjóðarinnar."
LÆKNAblaðið 2012/98 295