Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 37

Læknablaðið - 15.05.2012, Qupperneq 37
UMFJÖLLUN O G GREINAR ger að meðhöndla blöðruhálskrabbamein með radíumnálum. Árið 1952 gerði Rubin H. Flocks tilraunir með að sprauta inn geislavirku gulli við opnar aðgerðir og 20 árum síðar setti Willet Whitmore inn Joð- 125 við opnar aðgerðir. „Árangurinn af þessu var satt að segja hörmulegur því ónákvæmnin við stað- setningu hins geislavirka efnis var svo mikil að fylgikvillar og bruni á nálægum líffærum var skelfilegur. Það var ekki fyrr en Daninn Hans Henrik Holm hóf að beita ómunartækni árið 1981 við að stýra nálunum með kornin, að með- ferðin varð valkostur fyrir ákveðinn hóp sjúklinga. Annar læknahópur í Seattle í Bandaríkjunum (Ragde & Blasko 1987) bætti geislaplönuninni við aðgerðina og þá varð þetta virkilega raunhæft. Það er eiginlega verst að þetta skuli alltaf ganga undir sama nafni, því í rauninni er þetta allt önnur aðgerð en áður var. Sumir eldri læknar hrylla sig þegar Brachy-terapía er nefnd og hafa þá fyrir sér gömlu sögurnar um fylgikvilla. Sjúklingarnir fyllast líka skelfingu þegar þeir leita sér upplýsinga á netinu en þar er að finna úreltar upp- lýsingar um meðferðina og oft þarf maður að leiðrétta alls kyns misskilning um þetta og beina sjúklingum inn á réttar brautir í upplýsingaöflun á netinu áður en hægt er að halda áfram. Það má eiginlega segja að hið slæma orðspor hafi hindrað framgang meðferðarinnar því tæknin hefur verið til staðar frá því um 1990. Þá hafa menn einnig verið að bíða eftir niðurstöðum um árangur og nú höfum við staðfestar tölur um lifun í 15 ár eftir aðgerð og þær eru algjörlega sambærilegar og tölurnar um árangur af skurðaðgerðum þegar sams konar sjúklingahópar eru skoðaðir." Erfitt að greina sjúkdóminn nákvæmlega Talsverð umræða hefur verið um nauðsyn skimunar og eftirlits við blöðru- hálskirtilskrabbameini hjá körlum 50 ára og eldri og segir Baldvin umræðuna hafa vakið mikilvæga athygli á þessum erfiða sjúkdómi. „En þetta er marghöfða þurs og birtingarmyndir sjúkdómsins eru margar. Við getum sagt að 80% karla sem orðnir eru 70 ára og eldri og greinast með sjúk- dóminn á byrjunarstigi muni aldrei finna fyrir vandræðum vegna hans; þeir verða dánir af öðrum orsökum áður. Það er hins vegar lítil huggun fyrir þau 20% sem útaf standa. Þegar við skoðum aldurshópinn 50-70 ára verður annað upp á teningnum, því við erum í vandræðum með að greina sjúkdóminn nægilega nákvæmlega. Annars vegar erum við að ofmeðhöndla þá sem greinast snemma og eru með mjög hægfara þróun sjúkdómsins en hins vegar náum við ekki alltaf að greina þá nægilega snemma sem þróa sjúkdóminn hratt. Þar liggur hin háa dánartíðni. Mæling á PSA er því ekki nægilega góð viðmiðun til að réttlæta skimun en er hins vegar nokkuð gott viðmið þegar fylgjast á með þróun krabbameinsins. Helstu forspárgildin sem við höfum eru Gleason score, PSA-gildi og aldur einstaklingsins, en okkur vantar lykilinn sem við getum notað til að geta sagt til um hvort viðkomandi verði í vand- ræðum innan 5 ára eða ekki og þar með Baldvin Kristjánsson þvagfæra- skurðlæknir mundar nálina scm notuð er við innsetningu geislavirkra korna í blöðruhálskirtil. Myndir: Ásvaldur Kristjánsson hvort bregðast þurfi við strax eða hvort nægi að hafa hann undir eftirliti næstu árin. Maður bindur auðvitað vonir við að fram komi rannsókn sem afhjúpar lykilinn að þessu." Góð samvinna Sjúkratrygginga og Landspítala Aðdragandinn að því að Landspítali hóf að framkvæma þessa meðferð er orðinn talsvert langur og byggir á góðri sam- vinnu við Sjúkratryggingar íslands. „Við höfum verið í góðu sambandi við krabba- meinsdeild háskólasjúkrahússins í Lundi í Svíþjóð þar sem íslenskur læknir, Margrét Einarsdóttir, hefur þróað og byggt upp þessa meðferð. Við höfum verið í mjög góðu sambandi við Margréti og hennar fólk í Lundi og byggjum meðferðina hér algerlega á þeirra fyrirmynd. Margrét var viðstödd fyrstu aðgerðirnar hér í febrúar ásamt eðlisfræðingi, Inger-Lena Lamm, frá deild hennar okkur til ráðgjafar. Við áætlum að meðhöndla um 10-12 sjúklinga í tveimur til þremur lotum árlega." Baldvin segir að á árunum 2005-2010 hafi farið héðan um 10 sjúklingar árlega til Lundar en þegar á árinu 2008 voru uppi áætlanir um að hefja þessa með- ferð á Landspítala. „Með hruninu voru allar áætlanir um það lagðar á hilluna en síðan var tekið fyrir þessar aðgerðir á útlendingum í Svíþjóð þar sem biðlistar þeirra voru orðnir svo langir að erfitt var að réttlæta að taka sjúklinga annars staðar frá framfyrir. Þá lentum við í verulegum vandræðum með okkar sjúklinga og það varð til þess að samkomulag náðist við Sjúkratryggingar íslands um að greiða Landspítala fyrir ákveðinn fjölda aðgerða næstu þrjú ár, en Sjúkratryggingar höfðu borið meginhluta kostnaðarins við að senda sjúklingana til Svíþjóðar. Þetta samstarf er algjör forsenda þess að af þessu gat orðið, þar sem meðferðin kostar ríflega tvær milljónir á mann, en segja má að kostnaður sé hinn sami eða meiri sé sjúklingurinn sendur utan. Þetta er því gott dæmi um að þegar hugsað er útfyrir þröngan stofnanarammann njóta allir góðs af." LÆKNAblaðið 2012/98 297
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.