Læknablaðið - 15.05.2012, Side 44
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Kennsluverðlaun Félags læknanema 2012
Sindri Aron Viktorsson, formaður félags læknánema, veitir Magnúsi Karli Magnússyni, prófessor í lyfja- og eitur-
efnafræði, kennsluverðlaun FL 2012. Ljósmynd: Jón Guðmundsson.
Sindri Aron Viktorsson
formaður Félags læknanema
sav2@hi.is
Kennsluverðlaun Félags læknanema hafa
verið veitt síðan 1995. Þau eru viðurkenning
til kennara eða námskeiða sem þykja skara
fram úr í menntun læknanema við Háskóla
íslands hverju sinni og eiga að vera öðrum
kennurum hvatning. Undanfarin ár hafa
farið fram kosningar hjá hverjum árgangi
þar sem nemendur tilnefna kennara eða
kúrs sem þeim finnst eiga verðlaunin skil-
ið. Stjórn félagsins fer yfir tilnefningarnar
og velur verðlaunahafann það árið. Valið
stýrist af kennsluhæfni, þróun nýjunga í
kennsluháttum og vel heppnaðri endur-
skipulagningu námskeiða.
í ár hlaut Magnús Karl Magnússon, pró-
fessor í lyfja- og eiturefnafræði, kennslu-
verðlaunin fyrir að hafa endurskipulagt
námskeið í lyfjafræði á þriðja ári með góð-
um árangri og fyrir einstaka kennslugleði
og jákvætt viðmót gagnvart læknanemum.
Veitti hann verðlaununum viðtöku á árshá-
tíð Félags læknanema á Hótel Sögu þann
17. mars síðastliðinn. Þessi hefð er orðin
órjúfanlegur hluti í starfi félagsins á hverju
ári og er það mat læknanema að verðlaunin
hafi átt þátt í að kennsla í læknadeiid hefur
styrkst og gæði hennar aukist á undanförn-
um árum. Orator, félag laganema við Há-
skóla íslands, veitti í fyrsta sinn verðlaun að
fyrirmynd kennsluverðlauna Félags lækna-
nema í ár. Læknanemar fagna því að fleiri
félög nemenda við Háskóla íslands taki
upp slík verðlaun. Að okkar mati skiptir
ekki síður máli að verðlauna þá sem skara
Verðlaunahafar síðustu 10 ár
fram úr, en að benda á það sem betur má
fara þegar unnið er að þróun menntunar á
háskólastigi.
2002: Engilbert Sigurðsson - geðlæknisfræði
2003: Þóra Steingrímsdóttir - kvensjúkdómafræði & Haukur Hjaltason - taugalæknisfræði
2004: Jóhannes Björnsson og samkennarar - meinafræði
2005: Ásgeir Haraldsson - barnalæknisfræði
2006: Halldór Jónsson Jr - bæklunarlækningar
2007: Finnbogi Jakobsson - taugalæknisfræði
2008: Eiríkur Steingrímsson og samkennarar - lífefnafræði
2009: Gísli H. Sigurðsson og samkennarar - svæfingalæknisfræði
2010: Karl Andersen - lyflæknisfræði
2011: Tómas Guðbjartsson - skurðlæknisfræði
Heimilislæknaþingið 2012
Akureyri 5. - 6. október
Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður að þessu sinni haldið á Hótel KEA dagana 5. - 6. október 2012.
Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í formi erinda og veggspjalda. Þeir sem vilja kynna slík
verkefni eru beðnir að senda ágrip til Jóhanns Ág. Sigurðssonar í rafrænu formi á neftangið: iohsia@hi.is. Ágrip skal skrifa á eitt A4 blað með sama
sniði og á fyrri þingum félagsins, en þar er miðað við Times New Roman letur, stærð 14, um 300 orð eða sem svarar 2000w slögum. Þar skal koma
fram tilgangur verkefnis og þar sem það á við, efniviður, aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Skilafrestur ágripa er til 25. ágúst næstkomandi. Ágripin
verða birt í sérstöku riti þingsins.
Á þinginu verður jafnframt umfjöllun um gæðaþróunarmál bæði í formi fyrirlestra og í vinnuhópum.
Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verður auglýst síðar.
Fh. undirbúningsnefndar
Salome Ásta Arnardóttir
formaður fræðslunefndar FÍH
304 LÆKNAblaðíð 2012/98