Læknablaðið - 15.07.2012, Qupperneq 25
TILFELLI MÁNAÐARINS
Tilfelli mánaðarins
Kona með blóðmigu og
meðvitundarskerðingu
Ólöf Birna Margrétardóttir1 læknir, Guðmundur Geirsson2 læknir, Margrét Agnarsdóttir'* iæknir, Elfar Úlfarsson4 læknir
Tilfellið
’Slysa- og bráðadeild,
2þvagfæraskurðdeild,
3rannsóknastofu í
meinafræði, 4heila-
og taugaskurðdeild
Landspítala.
Fyrirspurnir:
Guðmundur Geirsson
gug@landspitali. is
72 ára kona leitaði á slysa- og bráðadeild vegna nokk-
urra mánaða sögu um slappleika, megrun, ógleði og
lystarleysi auk stórsærrar blóðmigu. Hún átti að baki
um 30 pakkaár og var á lyfjum við háþrýstingi, annars
hraust. Líkamsskoðun og almenn blóðrannsókn við
komu ómarkverð. Þvagstrimilspróf var jákvætt fyrir
blóði en þvagræktun neikvæð. Tölvusneiðmynd af kviði
sýndi 6-7 sm æxli í blöðruvegg en engar eitlastækkanir.
Konan var lögð inn en daginn eftir innlögn varð hún
rugluð og meðvitundarskert. Tölvusneiðmynd af höfði
sýndi fyrirferð í litla heila og mjög þanin heilahólf.
Gerð var bráðaaðgerð þar sem dren var lagt í heilahólf,
létt á vatnsþrýstingnum og lagaðist meðvitundar-
ástand mikið við það. Til nánari greiningar var gerð
segulómskoðun af höfði (mynd 1).
Hver er greiningin?
Greinin barst:
21. desember 2011,
samþykkt til birtingar:
1. júní 2012.
Höfundar tiltaka engin
hagsmunatengsl.
Mynd 1. Segulómskoðunarmynd afhöfði, T1 þversneiðmynd meðgadolinium-skuggaefni til vinstri og T2 þversneiðmynd til hægri.
LÆKNAblaðið 2012/98 413