Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2013, Page 24

Læknablaðið - 15.06.2013, Page 24
UMFJOLLUN O G GREINAR Vel búintt tækjasalur nýtist vel viÖ sjúkraþjálfun dvalargesta. Mannlegi þátturinn er mikilvægastur ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags íslands hefur um áratugaskeið verið boðið upp á meðferð og mataræði í anda náttúrulækningastefnu sem mótaðist í Evrópu á fyrri hluta síðustu aldar. Frum- kvöðlarnir hér á landi mættu lengst af miklum mótbyr en á undanförnum árum hefur hugmyndafræði náttúrulækninga vaxið fiskur um hrygg, jafnvel svo að nú vildu flestir Lilju kveðið hafa. Blaðamaður heimsótti Heilsustofnun á dögunum og ræddi við þá Harald Erlends- son forstjóra og yfirlækni og Inga Þór Jónsson markaðsstjóra um starfsemina í fortíð, nútíð og framtíð. Haraldur lýsir í upphafi í stuttu máli hvernig straumar í menningarlífi evrópu- þjóða á fyrstu áratugum síðustu aldar beindust að því að tengja saman heim- speki, guðfræði, spíritisma og róttækar breytingar á mataræði og lífsstíl. „Við erum að tala um vel menntaða menn sem margir voru áberandi í menningarlífi þjóðanna; hér á íslandi voru menn eins og Þórbergur Þórðarson og forystumenn í Guðspekifélaginu miklir áhugamenn um heilnæmt mataræði samhliða áhuga sínum á andlegum málefnum. í dag er þetta hluti af daglegri umræðu um mataræði og lífs- stíl; en gleymum því ekki að fyrir 80-100 árum voru þeir álitnir sérvitringar og furðufuglar sem stunduðu slíkt líferni og tileinkuðu sér annars konar mataræði." Jónas Kristjánsson stofnandi og fyrsti yfirlæknir Heilsuhælisins í Hveragerði spratt úr þessum jarðvegi. Hann var fædd- ur 1870 og lést árið 1960 en síðustu fimm ár ævinnar var hann fyrsti yfirlæknir hins nýstofnaða Náttúrulækningahælis í Hveragerði. Jónas var hugsjónamaður og í mörgu tilliti langt á undan sinni samtíð. Hann var stofnandi Náttúrulækninga- félags íslands árið 1937 og var óþreytandi að halda hollum lífsstíl og mataræði að landsmönnum en talaði lengst af fyrir daufum eyrum fjöldans. Kollegar hans í læknastétt létu sér margir fátt um finnast og töldu hugmyndir hans og kenningar meira í ætt við skottulækningar en alvöru vísindi. „Þessi viðhorf lifa enn góðu lífi og ég sat málþing fyrr í vetur á vegum Háskóla íslands um óhefðbundnar lækningar þar sem virtur vísindamaður í læknastétt hélt því blákalt fram að allt sem ekki stæðist ströngustu kröfur um vísindaleg vinnu- brögð væri kukl og skottulækningar. Ann- ar þekktur krabbameinslæknir upplýsti að um 80% allra krabbameinssjúklinga leita sér lækninga eftir óhefðbundnum leiðum, ýmist samhliða hefðbundinni meðferð eða í stað hennar. I mörgum tilfellum gefur þetta betri líðan og þá er tilganginum að einhverju leyti náð þó bati sé ekki alltaf niðurstaðan," segir Haraldur. „Mannlegi þátturinn skiptir gríðarlega miklu máli í allri meðhöndlun sjúklinga. Umhverfið og viðmótið hafa verulega mikið að segja ekki síður en lyf og tækjabúnaður," segir Haraldur þegar innt er eftir því hvað ráði ferðinni í nálgun Heilsustofnunar NLFÍ að skjólstæðingum sínum. „Fjölmargar rannsóknir á seinni árum hafa sýnt fram á ótvírætt gildi slíkrar nálgunar. Það er sitthvað sem hefur gleymst í eftirsókn okkar eftir tæknilegum lausnum. Kannski er það við- mótið, kannski tíminn sem við ættum að gefa okkur í meðhöndlun sjúklinganna. Hingað á Heilsustofnun kemur fólk af ýmsum ástæðum. Elstu dvalargestirnir eru oft félagslega einangraðir heima fyrir, treysta sér ekki út svo vikum skiptir yfir k 296 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.