Læknablaðið - 15.06.2013, Blaðsíða 35
UMFJÖLLUN O G GREINAR
telur upp kostina fyrir sérfræðimennt-
aðan lækni að búa erlendis. „Aðstaða til
rannsókna á stærsta háskólasjúkrahúsi
Svíþjóðar er eflaust betri og þar í landi
eru gagnagrunnar heilbrigðiskerfisins
mun stærri en hér, sem er kostur fyrir þær
faraldsfræðilegu rannsóknir sem ég hef
verið að gera. Styrkjaumhverfið er líka
hagstæðara, styrkir eru fleiri og stærri.
Launin eru miklu betri en hér svo ekkert
af þessu stenst í rauninni samanburð.
Hvað togar mann þá heim? Það er allt hitt
„Ég heffengið mjöggóðar undir-
tektir við styrkumsóknum mínum
hér heima og tryggt fjármagn bæði
frá innlendum og erlendum aðihim
til rannsókna næstu þrjú árin," segir
Sigurður Yngvi Kristinsson prófessor í
blóðsjúkdómum.
sem skiptir máli til að lifa góðu lífi. Það
er stórfjölskyldan, vinirnir, umhverfið,
landið og náttúran og svo er þetta ekki síst
ákvörðun um hvar maður vill að börnin
alist upp. Svo bauðst mér rannsóknarstaða
sem gerir mér kleift að byggja upp rann-
sóknarhóp í kringum það sem ég hef verið
að gera á Karolinska sem hafði vitaskuld
einnig áhrif á ákvarðanatökuna. Að öllu
samanlögðu erum við hjónin algjörlega
sammála um að þetta hafi verið rétt
ákvörðun hjá okkur."
Enn með tengsl við Karólinska
Sigurður Yngvi leggur áherslu á að þrátt
fyrir flutninginn sé hann ekki búinn að
slíta tengslin við fyrri vinnustað. „Ég er
með áframhaldandi samstarf um rann-
sóknir við Karolinska Institutet og fjölda
annarra rannsókna sem unnar eru í sam-
starfi við National Institute of Health í
Bandaríkjunum og það er ekkert meira
mál að sinna þeim héðan en annars staðar.
Rannsóknaumhverfið er orðið svo alþjóð-
legt og tæknin er orðin svo handhæg að
það er nánast sama hvar maður er stað-
settur."
Hann segist hafa undirbúið flutninginn
til íslands vel og lengi og kynnt sér vel
hvaða rannsóknir hann gæti stundað hér
ásamt því að halda áfram þeim rann-
sóknum sem hann hefur þegar hafið. „Ég
hef fengið mjög góðar undirtektir við
styrkumsóknum mínum hér heima og
LÆKNAblaðið 2013/99 307