Læknablaðið - 15.06.2013, Side 33
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
YFIRLÆKNIR
LYFLÆKNISSVIÐS
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í lyflækningum í stöðu yfirlæknis. Leitað er eftir lækni
með fjölþætta reynslu í almennum lyflækningum og bráðalækningum.
Um er að ræða 100% stöðu frá 1.8.2013, eða eftir nánara samkomulagi. Starfið felur í sér bakvaktir.
Laun samkvæmt kjarasamningi og stofnanasamningi.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Kr. Sigmundsson framkvæmdastjóri lækninga, í s: 4504500 netf: helgi@hvest.is
eða Þröstur Óskarsson, forstjóri í síma 4504500, netf: throstur@hvest.is
Vinsamlegast sendið umsóknir til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, bt. Þrastar Óskarssonar, Torfnesi, 400 ísafirði.
Umsóknareyðublað er að finna á vefnum www.hvest.is undir viðkomandi starfsauglýsingu eða í afgreiðslu á
Torfnesi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin.
Staða læknis hjá VIRK-
Starfsendurhæfingarsjóði
VIRK - Starfsendurhæfingarsjóður óskar eftir að ráða lækni í um 20% starf. Um er að ræða fjölbreytt verkefni á sviði
starfsendurhæfingar þar sem markmiðið er að koma einstaklingi í launað starf á vinnumarkaði. Læknir VIRK vinnur í
náinni samvinnu við sviðsstjóra Starfsendurhæfingarsviðs VIRK. Meðal verkefna læknis VIRK eru:
• Ráðgjöf fyrir ráðgjafa og sérfræðinga VIRK
• Uppbygging á þjónustu og markvissu samstarfi við heilsugæslu og aðrar velferðarstofnanir
• Þátttaka í ýmsum þróunarverkefnum og rannsóknum
Hér gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu, þróun og þjónustu í stofnun sem er í hraðri uppbyggingu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sérfræðiviðurkenning í læknisfræði
• Reynsla á sviði endurhæfingar og/eða starfsendurhæfingar
Að VIRK - Starfsendurhæfingarsjóði standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
Hlutverk sjóðsins er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar
örorku með aukinni virkni, eflingu starfsendurhæfingar og öðrum úrræðum. Nánari upplýsingar um VIRK -
Starfsendurhæfingarsjóð er að finna á heimasíðu sjóðsins www.virk.is
Upplýsingar um starfið veitir Ása Dóra Konráðsdóttir sviðsstjóri Starfsendurhæfingarsviðs VIRK í síma 5355700 eða í
tölvupósti asadora@virk.is. Umsóknir berist fyrir 1. ágúst nk. á tölvupóstfangið asadora@virk.is
LÆKNAblaðið 2013/99 305