Læknablaðið - 15.06.2013, Qupperneq 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Stofnendur Kerecis.
Guðmundur F. Sigur-
jónsson verkfræðingur,
Baldur Tumi Baldursson
húðsjúkdómalæknir og
Hilmar Kjartansson
lyf- og bráðalæknir.
Ernest Keitney vantar á
myndina.
I JfeN H 4 1 jr
i
Líffræðileg vefjameðhöndlun með þorskroði
Eftir Guðmund Fertram Sigurjónsson
Talsverð aukning er í notkun á líffræðileg-
um (biologic) vefjameðhöndlunarefnum í
skurðaðgerðum og sárameðhöndlun. Líf-
fræðileg vefjameðhöndlunarefni eru stoð-
efni (scaffolds) sem unnin eru úr vefjum
dýra og manna. Á markaði eru stoðefni
sem unnin eru úr húð, þvagblöðrum,
þörmum og gollurshúsum svína, manna
og nautgripa.
Líffræðileg vefjameðhöndlunarefni eru
framleidd þannig að allar frumur og önn-
ur ofnæmisvaldandi efni eru fjarlægð úr
gjafavefnum svo eftir stendur n.k. stoðefni
eða stoðgrind úr próteinum. Stoðefnið er
dauðhreinsað og því pakkað. Efnisbútnum
er síðan komið fyrir við vefjaskaða og
gefur frumum mannslíkamans stað til að
festa sig í og ef aðstæður eru réttar skipta
frumur sér í efninu og leggja niður nýjan
vef. Sauma má í efnisbútinn og leggja
marga saman ef þörf er á fyllingu.
Líffræðilegvefjameðhöndlunarefni
eru notuð í margskonar aðgerðum, til að
mynda viðgerðum á kviðslitum, endur-
sköpun á kviðarholsvegg og brjóstum,
viðgerð á heilabasti, viðgerð á liðböndum
og síðast en ekki síst í meðhöndlun á
þrálátum sárum.
Líffræðileg vefjameðhöndlunarefni
flokkast sem lækningavörur (medical
devices). I Evrópu er sala á lækningavör-
um háð s.k. CE merkingu.
Til meðhöndlunar þrálátra sára
Kerecis er íslenskt lækningavörufyrirtæki
sem undanfarin ár hefur unnið að þróun
á líffræðilegum vefjameðhöndlarefnum
sem unnin eru úr þorskroði. Vörulínur
fyrirtækisins eru tvær, MariGen stoðefni
til nota í skurðaðgerðum og til meðhöndl-
unar á þrálátum sárum og MariCell sem
eru húðkrem til meðhöndlunar á ýmsum
húðkvillum.
Kerecis var stofnað árið 2009 af tveimur
læknum og tveimur verkfræðingum. Þrír
þessara manna höfðu unnið saman um
árabil hjá íslenska lækningavörufyrir-
tækinu Össuri hf.
Hráefnið sem Kerecis notar í vörur
fyrirtækisins er þorskroð sem ættað er úr
eldiskvíum í ísafjarðardjúpi. Framleiðsla
fer fram á ísafirði í verksmiðju sem upp-
fyllir kröfur bandarískra (FDA) og evr-
ópskra skráningaryfirvalda. Prófanir fara
fram í Reykjavík og í samstarfi við erlend
prófunarfyrirtæki.
Tækni Kerecis býður uppá ýmsa
kosti umfram þær vörur sem fyrir eru á
markaði. Efni Kerecis er þykkara og með-
færilegra en samkeppnisvörurnar. Ekki
eru trúarlegar hindranir við notkun eins
og á við um vörur sem unnar eru úr svína-
vef. Sjúkdómar smitast ekki úr fiskum
í menn sem gerir vöruna örugga með
tilliti til mögulegs smits á vírusum frá
gjafavef. Varan veldur ekki fiskiofnæmis-
viðbrögðum þar sem sameindirnar sem
valda fiskiofnæmi eru í holdi fisksins en
er ekki að finna í roði. Síðast en ekki síst
er að nefna Omega3 innihald roðsins en
Omega3 er ekki að finna í spendýravef.
Fjöldi vísbendinga er að finna um kosti
Omega3 við skaddaðan vef, meðal annars
bólguminnkandi áhrif, minni samloðun
blóðflagna og bættan frumuvöxt.
Fyrsta MariGen vara fyrirtækisins kom
á markað nýlega. Um er að ræða vöru sem
310 LÆKNAblaðið 2013/99