Læknablaðið - 15.06.2013, Qupperneq 39
UMFJOLLUN O G GREINAR
ætluð er til meðhöndlunar á þrálátum sárum og heitir hún
MariGen Wound. Kerecis gerði nýlega fyrsta sölusamning
sinn erlendis og er MariGen Wound varan nú seld á Bret-
landi og í Mið-Austurlöndum.
Þrálát sár eru vaxandi vandamál á heimsvísu. Mjög stór
hópur fólks er með þrálát sár og eru t.d. meira en 34 millj-
ónir krónískra sára meðhöndluð á hverju ári. Tíðni þrálátra
sára á íslandi er svipuð og annars staðar í heiminum en um
0,6% fullorðinna einstaklinga yfir 70 ára hafa þrálát fótasár.
Algengustu sárin eru bláæðasár og svo sykursýkis- og slag-
æðasár (Guðbjörg Pálsdóttir, 2010). Þessar gerðir sára er
mjög erfitt að meðhöndla og getur meðferðartíminn verið
nokkur ár sem endar oft með að nema þarf gangliminn
brott.
MariGen Wound var fyrst notað á Sáramiðstöð Land-
spítala-Háskólasjúkrahúss og í gegnum prófanir hefur verið
sýnt fram á góða virkni vörunnar. Fótasár sem höfðu verið
til staðar og ekki svarað hefðbundinni meðferð í yfir fjórar
vikur eða lengur gréru til að mynda eða bötnuðu til muna
þegar þau voru meðhöndluð með MariGen Wound.
Vegna eðlis þrálátra sára koma oft upp sýkingar og því
eru sýklalyfjameðferðir tíðar. Á meðan á notkun MariGen
Wound stóð dró úr sýklalyfjanotkun, sem er mjög jákvætt
þar sem sýklalyfjaónæmi er að aukast í heiminum.
Yfir 100 sjúklingar hafa nú verið meðhöndlaðir með Mari-
Gen Wound og hafa ekki komið upp neinar hliðarverkanir.
Kremin
Kerecis hefur ekki einungis fengist við þróun á stoðefnum
unnum úr roði heldur einnig þróað línu af meðhöndlunar-
kremum sem innihalda meðal annars Omega3 fjölómett-
aðar fitusýrur og markaðssett eru undir nafninu MariCell.
Meginvirkni MariCell kremanna snýr að styrkingu á efnum
sem eru á milli frumanna í hyrnislagi húðarinnar (efsta
lagið).
MariCell Footguard kremið er fyrir ofurþurra fætur, oft
með sprunginni húð. Kremið inniheldur sýru sem mýkir
sigg og efstu lög húðarinnar þannig að Omega3 fitusýrurnar
eiga greiða leið inn í húðina til að styrkja og næra milli-
frumuefni hyrnislagsins.
MariCell Psoria kremið er fyrir húð með einkenni psorí-
asis eða annarskonar hreistursmyndun. Kremið inniheldur
sýru sem losar hreistrið af og eykur gegndræpni húðarinnar
þannig að Omega3 fitusýrurnar eiga greiða leið inn í hana.
Omega3 fitusýrurnar afspenna húðina og draga úr kláða
ásamt því að auka vatnsbindigetu húðarinnar. MariCell
Xma er fyrir þunna og bólgna húð með einkenni exems. í
þunnri og bólginni húð hefur náttúrulegt millifrumuefni
húðarinnar gefið eftir þannig að húðin er gegndræp og
móttækileg fyrir Omega3 fitusýrunum sem hjálpa til við
að minnka gegndræpnina og endurskapa rakabindigetu
húðarinnar.
MariCell Smooth er fyrir húð með rakstursbólur og húð-
nabba (keratosis pilaris). Kremið inniheldur sýru og örlítið
magn af Omega3 sem mýkir efsta lag húðarinnar þannig
að hár vaxa auðveldar í gegnum hana og raksturstbólur
myndast síður.
Á
Calculation Tool
FRAX® WHO Fracture Risk Assessment Too!
Pln«« answor ttw quMtxvw tMtmv to caicutata the tan yMr pratMbity of tr»ctur» wth BMO.
Questionnaire:
J. waght(tg)
<• twghttan)
ONN OIM V*«»»
©NO OT«
@M0 Qt«
@NO OY«
©No Qfm
©No Qym
X un*tfð«r ©Nd 0»«
©(0/0^)
SK
Whiflht Conversion
Haight Convercion
00000054
MauM>>«»acu«n>t
•uðira iu Arajcn
Risk factors
For tho cSmcol r»k factor* a yes or no resporae m asked far. V tha fietö m faft btank. then a *no* response m aaaumed Sea afeo notee on nek
Ahættureiknir fyrir
líkur á beinbrotum
FRAX er heiti á áhættureikni
fyrir beinbrot sem Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin
hefur þróað. Hann hefur verið
notaður um nokkurt skeið
víða um lönd og reynslan af
honum er það góð að nú hefur
verið ráðist í að laga hann að ís-
lenskum aðstæðum. Er hægt að
nálgast hann á vefnum fólki að
kostnaðarlausu.
í þessum áhættureikni er
hægt að reikna út líkur á því
að viðkomandi verði fyrir bein-
broti á næstu tíu árum, annars
vegar mjaðmarbroti (broti á
lærleggshálsi, lærhnútubroti)
eða á hinn bóginn einhverju af
fjórum helstu beinþynningar-
brotunum: á framhandlegg,
upphandlegg, samfallsbroti á
hrygg eða mjaðmarbroti.
FRAX-reiknivélin byggist
á mörgum stórum framsæjum
hóprannsóknum á beinbrotum
og öðrum áhættuþáttum
sem sumir hverjir tengjast
beinþynningu en einnig óháð
henni. Við íslenskun hennar
voru nýgengistölur fyrir við-
komandi beinbrot unnar upp
úr beinbrotaskráningu meðal
kvenna og karla eldri en 40 ára
sem tóku þátt í hóprannsókn
Hjartverndar.
I frétt frá Hjartavernd segir
að FRAX-reiknivélin reikni lík-
ur á beinbroti á næstu tíu árum
sem prósentu. Þar er hins vegar
vitnað til höfunda líkansins
sem leggja á það mikla áherslu
að niðurstöðurnar ráði því ekki
hver verður settur á meðferð
og hver ekki. Það verði áfram
háð ráðleggingum lækna og
vilja einstaklingsins. Þeir benda
einnig á að í mörgum löndum
hafi verið samdar leiðbeiningar
um meðferð við beinbrotum
sem byggjast á áliti sérfræðinga
en styðjast víða einnig við
heilsuhagfræðileg viðmið.
Slíkt hefur ekki verið gert fyrir
ísland ennþá. Mikil notkun
FRAX-reiknivélarinnar bendir
þó til að útreiknuð heildar-
áhætta á alvarlegu beinbroti
gagnist vel við klínískt mat.
FRAX-reiknivélina er að
finna á vefslóðinni http://
www.shef.ac.uk/FRAX/index.
aspx þar sem áframhaldið er:
Áhættureiknir > Evrópa > ís-
land.
LÆKNAblaöið 2013/99 311