Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 57

Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 57
I N N L E N T * Enn kennt með „gamla laginu“. Kennsluhættir á krossgötum? Athyglisverð rannsókn staðfestir grun margra NOKKUR undanfarin ár hefur ís- lenska grunnskólakerfið sætt margvíslegri gagnrýni. Ýmsum hefur þótt sem kennslu hafi hrakað með tilkomu grunnskólalaganna nýju. Höfð eru uppi stór orð, svo sem að hætt sé að kenna börnum nokkurn skapaðan nmt, þau dundi sér við verkefni fram eftir úllum vetri sem ekkert eigi skylt við hefð- uundinn skólalærdóm. Afleiðingin er sú, að Sngn, að börn kunna ekkert lengur í íslands- sögunni, kunni engin ljóð, séu tæpast læs ■yrr en undir fermingu. Og allt á þetta að vera nýju lögunum að kenna, þ.e. grunn- skólalögunum frá 1974 en þá var tekin upp su stefna að markmið grunnskóla væri að '•efla alhliða þroska, félagslegan, tilfinninga- egan og vitrænan.“ Þrátt fyrir alla ofangreinda gagnrýni hefur u,ö farið fyrir rannsóknum á afleiðingum 8runnskólalaganna — og enn minna vita rnenn um hvort almennri þekkingu í landinu hefur hrakað eða hún eflst. Hitt hafa for- eldrar hins vegar lengi haft á tilfinningunni, að e.t.v. sé víða pottur brotinn í skólakerf- inu. Nýtt námsefni ruglar marga í ríminu. Skuldinni er skellt á kennsluhættina, náms- efnið og ef ekki vill betur á kennarana. En er þetta nýju lögunum að kenna? Hef- ur skólakerfið breyst svo við gildistöku lag- anna, að það sé óþekkjanlegt og jafnvel verra en áður fyrir nemendur? Arthur Morthens heldur öðru fram. Hann hefur verið grunnskólakennari í fjöldamörg ár og er nú í framhaldsnámi í sérkennslu í Noregi. Lokaverkefni hans var að taka fyrir áhrif markmiðsgreinar grunnskóla á íslandi og aðalnámskrár á kennsluhætti. Niðurstaða hans kemur eflaust mörgum á óvart. Hún er í stuttu máli þessi: Kennarar almennt starfa ekki eftir mark- miðsgreiningu grunnskólalaganna. f>eir virðast ekki einu sinni hafa kynnt sér mark- miðin. Kennarar telja sig ekki hafa fengið neina tilsögn í nýjum kennsluháttum eða markmiðsgreiningu, telja sig fá lítinn stuðn- ing frá sinni skólastjórn og skólayfirvöldum og kenna langflestir með hefðbundnum hætti, þ.e. með þeim hætti sem var áður en nýju lögin tóku gildi og raðað var í bekki eftir námsgetu. Könnun Arthurs náði til 24 kennara á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Úrtakið var lítið, þannig að tæpast er hægt að alhæfa um alla skóla landsins eða kennara út frá því, en könnunin sýnir þó hvaða straumar eru undir niðri. Athyglisvert er, að svokallaðir „opn- ir“ skólar koma best út úr könnuninni; kennarar í þeim skólum voru ánægðastir í starfi, töldu að markvisst væri unnið í skól- anum að markmiðsgreiningu og töldu sig vinna með nýja kennsluhætti að leiðarljósi, þ.e. sveigjanlegum eftir getu hvers og eins nemanda. Athyglisverð útkoma þetta. Þetta er nokkur áfellisdómur yfir skólum og kennurum landsins. En þeir hafa þó ým- islegt sér til „málsbóta“. Benda má á, að „opnir" skólar hafa ýmis einkenni sem stuðla að þvf að auðvelt er að beita sveigjan- legum kennsluháttum. Þeir eru litlir, færri nemendur eru f hverjum bekk og kennarar eru yfirleitt í skertum stöðum. Þetta síð- astnefnda er ekki hvað síst mikilvægast: vinnuálag kennara bitnar auðvitað á kennsluháttunum. Eða eins og Arthur segir: „Mikil yfirvinna í færibandavinnu er kannski afsakanleg; aðeins hluti fisksins skemmist og fiskur er bara fiskur. En börn, lifandi börn, eru allt annað". Helstu hindranir sem kennarar í al- mennum skólum nefna, er koma að þeirra mati í veg fyrir að þeir geti beitt sveigjan- legum kennsluháttum, eru eftirfarandi: 1. Allt of margir nemendur í bekk. 2. Lítill tími til að sinna nemendum faglega. 3. Lítill tími til að sinna nemendum félags- lega og tilfinningalega. 4. Of mikil kennsluskylda í stað meiri tíma til undirbúnings kennslu. 5. Of mikil yfirvinna (lág laun). 6. Lítið námsefni til námsaðgreiningar. 7. Stundaskrá þrengir námsmöguleika. 8. Lítill tími til samstarfs kennara í skólan- um. OECD-skýrslan margfræga tekur einmitt mjög sterkt undir það, að kennsluhættir hér á landi séu yfirleitt í engu samræmi við grunnskólalögin og aðalnámskrá gunnskóla. Enn sé verið að kenna „með gamla laginu“ — starfsháttum sem eiga engan veginn við í því kerfi sem komið hefur verið á fót með lögunum. Nú sýnist tvennt til í þessu máli: Annað hvort verði grunnskólalögunum breytt til síns fyrra horfs, þannig að ramminn passi aftur utan um myndina - eða slfólayfirvöld, skólastjórar og kennarar taki sér tak og snikki myndina þannig að hún passi í ramm- ann. Hvort vill fólk heldur? ■ Eftir Auði Styrkársdóttur 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.