Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 76

Þjóðlíf - 01.05.1987, Qupperneq 76
L I S T I R Lítil eyja í hafínu Hans Alfredson og uppfærsla hans á Atómstöðinni EF EINHVER SEGIR að ísland sé fallegt, fyllist ég stolti rétt eins og ég eigi einhvern þátt í sköpun þess. Tali einhver um fegurð íslenskrar tungu, líður mér eins og ég hafi fundið hana upp. Og þegar ég frétti að Hans Alfredson ætli að setja upp gamanleik byggðan á Atómstöðinni á Kungliga Drama- tiska Teatern í Stokkhólmi, finnst mér að ég hafi skrifað bókina sjálf og legg á mig 15 tíma lestarferð til að sjá sýninguna. Hans Alfredson er einn vinsælasti leik- stjóri og kvikmyndaleikstjóri Svía. Hann er einn þeirra manna sem telja tíð sáðskipti bæta jarðveginn og auka uppskeruna og starfar því líka sem leikari, skemmtikraftur, rithöfundur, búninga- og leikmyndahönnuð- ur. Ef einhverjar frístundir gefast málar hann. Þekktastur er hann fyrir 25 ára sam- starf sitt við Tage Danielson. Margar kvik- myndir sem þeir félagar hafa gert saman eða hvor í sínu lagi hafa notið vinsælda á íslandi, t.d. Eplastríðið, Ævintýri Picassos, Einfaldi morðinginn (Hans) og Ronja rœningjadóttir (Tage). Myndin um Ronju var síðasta stór- mynd Tage Danielsonar, en hann lést árið 1985. Þeim sem finnast sænskar kvikmyndir leiðinlegar hafa tæplega séð myndir Tage og Hasse! „Er hann til í alvörunni?" spurðu nemend- ur mínir þegar ég tilkynnti þeim að þeir fengju frí því að ég ætlaði til höfuðstaðarins að hitta Hans Alfredson. Þó að hann sé alþýðlegheitin uppmáluð þegar hann birtist í sjónvarpi eða á kvikmyndatjaldi áttu þessir norðlensku krakkar erfitt með að ímynda sér að hann væri af holdi og blóði. Kannske vegna þess að skýrt heyrist á mæli hans að hann er ættaður þaðan sem fólk býr í höllum og herragörðum og skjöldóttar kýr standa á beit í grænu landslagi meirpart árs. Og bara er kippkorn til Kaupmannahafnar. En nem- endur mínir tala harða og skýra norðlensku, sum jafnvel finnsku — Tornedalsfinnsku — að móðurmáli þótt sænsk séu. Landið sem þau byggja er hvorki grænt né gjöfult, held- ur hvítt og kalt. Og það eru 1500 km til Kaupmannahafnar. Til Stokkhólms og leikhúss allra lands- manna eru hins vegar aðeins 1000 km og 14 tíma lestarferð! Eftir klukkutíma seinkun komst Norðanstúlkan til höfuðborgarinnar, en vantaði miða í leikhúsið. Það er alltaf uppselt, sagði blaðafulltrúinn, en lofaði að biðja dyravörðinn að setja fram stól handa mér. Dyravörðurinn sagði „elskan mín, mið- arnir eru bókstaflega rifnir út, enda er þetta góð sýning, boðskapurinn nær til fólks á svo einfaldan og auðskilinn hátt.“ Litla sviðið á Dramaten reyndist ekkert tiltakanlega lítið og salurinn var þéttsetinn 347 áhorfendum. A undan og undir sýning- unni er spiluð dunandi djassmúsík. Sviðið er grátt og rautt og yndislega kauðalegt. Til- breyting frá ofurglæsilegum leikmyndum með reyk og rennandi vatni. Heimili Árland hjóna er fyrir miðju, herbergi Uglu til ann- arrar handar og hús organistans til hinnar. Veggir hans eru fóðraðir íslenskum dag- blöðum og blómin hans máluð á þá. Með litlum tilfæringum breyttist sviðið í götu í Reykjavík, allt heila Norðurland eða revíu- svið fyrir fótmennt og sönglist. Leikararnir eru eins og klipptir út úr teiknimyndasögu. Hans Alfredson hefur sjálfur gert leikmynd og búninga og leggur ■ Lena Nyman og Helena Bergström: Ugla og Aldinblóö. með þeim áherslu á hið táknræna í sýning- unni. Persónurnar, fyrir utan Uglu, eru ekki lifandi heldur fígúrur. Leikstíllinn er þannig- að ekkert fer á milli mála að maður er staddur í leikhúsi. Leikarar eru meðvitaðir um nærveru áhorfenda, eru kannske í hróka- samræðum sín á milli, en snúa sér skyndilega að áhorfendum og láta gullkornin falla beint, til okkar, svona eins og til að undirstrika orð sín. Verfremdungseffekt, kallar Hans þetta. Eftir sýninguna hitti ég tvær íslenskar kon- ur. Þær sögðu að þeim hefði fundist ógur- lega gaman, en þetta væri náttúrulega allt annað verk en bókin. Hans Alfredson sagði mér, er ég hitti hann næsta morgun, að ætli maður að vera skáldsögu hundraðprósent trúr á sviði væri upplestur úr bókinni eina ráðið. Ert þú Atómstöðinni trúr í þinni upp' fœrslu? spyr ég. „Já, það tel ég mig vera að mestu leyti. Ég breyti reyndar atburðarásinni nokkuð, bæú við inngöngunni í NATÓ, en sleppi beina- þættinum, því hann er Svíum óskiljanlegur- Skáldið Jónas Hallgrímsson þekkja menn ekki og skilja ekki samhengið milli róman- tísks skálds og hersetu á fslandi.“ En þú skiptir um nafn... „Mér fannst heiðaríegra að gefa sýning' unni nýtt nafn vegna þeirra breytinga sem ég hef gert. Mér fannst nafnið á lokasöngnun^. 76
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.