Þjóðlíf - 01.05.1987, Side 86
L í F S S T í L L
Sætu húsin
Nærmynd af íbúum Þingholtanna
ÞINGHOLTIN í Reykjavík hafa á síðustu
árum smám saman verið að fyllast af ungu
fólki. Fólki sem kýs nálægðina við miðbæ-
inn, hljóðlátar götur með trjám er slúta
þokkafull yfir gangstéttar, sérkennilegum
húsum, stórum og smáum, timbur- eða
steinhúsum. Timburhúsin vekja mesta at-
hygli vegfarenda — og forvitni. Og timbrið
eitt og sér laðar suma að; því fylgir allt
önnur tilfinning að búa í timburhúsi en
steinhúsi segja sumir, og flytja í gömul hús
og gera upp. Gerast húsbyggjendur, því hús-
in eru mörg hver illa farin og þurfa í öllu falli
mikið viðhald. Göturnar eru á ný farnar að
glymja af hrópum og köllum barna á leið í
eða úr Austurbæjarskólanum. Hver veit
nema Miðbæjarskólinn verði stór barnaskóli
á nýjan leik. Húsin eru ýmist örsmá eða
risavaxin — merki um stéttaskiptingu fyrri
tíma. Við veitum hér nærmynd af fjórum
timburhúsum og íbúum þeirra.
■ Eftir Auði Styrkársdóttur
MAGNÚS REYNIR JÓNSSON
Bergstaðastræti 33B
EITT AF ALMÚGAHÚSUM síns tíma;
byggt þröngt og e.t.v. af vanefnum, um
1907. Það hefur þó óneitanlega sjarma eink-
um þegar inn er komið, en að utan er ýmsu
enn ábótavant. Húsið er lítið, eins og al-
múgafólk sætti sig við fyrr á tímum, vinalegt,
hlýlegt.
Pétur Marvinsson og Sigríður Auðuns-
dóttir keyptu húsið fyrir þremur árum. Þau
eiga og reka vinsælan veitingastað, Við
Tjörnina, í Templarasundi. Þau eiga einnig
hluta af Hótel Búðum á Snæfellsnesi, en það
hótel hefur laðað til sín ferðamenn víðs veg-
ar að vegna afbragðsrétta Rúnars. Hans sér-
grein eru fiskréttir og veitingahúsið Við
Tjörnina er fyrst og fremst fiskréttastaður en
þar má einnig fá afbragðsgóða grænmetis-
rétti.
Hvers vegna að búa í þessu húsi? Ná-
lægðin við miðbæinn. Notalegt hús. Hús sem
enn hefur aðdráttarafl.
■ Úr stofunni. Hún er lítil en einstaklega
vinaleg.
■ Notalegur setkrókur í fremri stofunni þar
sem sjónvarpið er geymt.
■ Rúnar og Sigríður í stofunni.
J