Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 17

Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 17
ERLENT meðal annarra þjóða og gera þá aftur gjald- genga á alþjóðavettvangi. Sá skerfur sem Brandt lagði af mörkum til bættrar sambúð- ar austurs og vesturs leiddi til þess, að ákveð- 'ð var að veita honum friðarverðlaun Nóbels arið 1971. Ég minnist þess að þegar ég átti tal við Brandt á síðasta ári, sagði hann mér að friðarverðlaunin hefðu glatt sig mest fyrir þá sök að með þeim hafi nafn Þýskalands verið tengt við friðinn, - sem hafi verið allt annað en sjálfsagt eftir þær hörmungar, sem °gnarstjórn nasista leiddi yfir þjóðirnar fyrr á öldinni. Þrátt fyrir þá hylli sem Willy Brandt hefur löngum notið á alþjóðavettvangi hefur hann att við ramman reip að draga sem formaður Jafnaðarmannaflokksins. Eftir sigurgöngu Bokksins á síðasta áratug, hefur fylgi hans dalað mjög á undanförnum árum. Það á að líkindum, meðfram öðru, rætur að rekja til þess að frá þvi að síðasti kanslari jafnaðar- nianna, Helmut Schmidt, dró sig í hlé, hefur verið skortur á hæfum leiðtogaefnum í flokknum. Enda þótt Schmidt, sem sat á kanslarastóli í 8 ár, hafi orðið að þola margs konar gagnrýni frá flokksbræðrum sínum, sem mörgum hverjum þótti hann einum of ■haldssamur, þá var hann ótvírætt mikilhæf- ur og virtur leiðtogi. Engum blandaðist hug- ur um að þeir þrír menn, sem réðu lögum og 'ofum í flokknum á síðasta áratug, Brandt, Schmidt og „pípumaðurinn" Herbert Wehner, formaður þingflokksins, voru allir hl forystu fallnir - hver með sínum hætti. Eins og oft vill verða, þegar slíkir skörungar e‘ga í hlut, voru þeir ekki alltaf á sama máli. Hvað sem öllum ágreiningi leið hefur vegur Jafnaðarmanna aldrei verið meiri en á þeim arum, þegar þetta litríka þríeyki var við völd. Onnur ástæða þeirrar lægðar, sem Jutnaðarmannaflokkurinn hefur verið í, er græningja á síðustu árum. gegn kjarnorkunni og fyrir uukinni náttúruvernd hefur þeim grænu tek- lst að krækja í atkvæði margra óánægðra un eta sigurganga Með baráttusinni jafnaðarmanna. Þar við bætist að „hægri- bylgjan" sem hefur flætt yfir Evrópulönd á undanförnum árum, hefur að sjálfsögðu haft sín áhrif í Þýskalandi sem annars staðar. Það kemur jafnaðarmönnum ævinlega í koll, þegar það dettur í „heimsandann" að gera sér dælt við frjálshyggju og annars konar íhaldsspeki. WILLY BRANDT verður engan veginn kennt um þá kreppu, sem ríkt hefur meðal vesturþýskra jafnaðarmanna í seinni tíð. Þvert á móti er ótvírætt, að persónufylgi for- mannsins hefur átt sinn þátt í að forða flokknum frá enn meira fylgistapi en raun ber vitni. Nýkjörinn formaður tlokksins, Hans Jochen Vogel, er atorkusamur og dugandi stjórnmálamaður. Hann hefur verið for- maður þingflokks jafnaðarmanna um árabil og gegnt ýmsum mikilvægum trúnaðarstörf- um öðrum. Vogel var m.a. borgarstjóri í Múnchen í 8 ár og naut mikilla vinsælda í hinni bjórglöðu höfuðborg Bæjaralands. En þótt enginn væni þennan eftirmann Brandts um góðan vilja, dugnað og greind, þá þykir hann ekki líklegur til að sópa að sér fylgi. Til þess vantar hann einfaldlega þá reisn og þann glæsibrag sem menn á borð við Brandt og Schmidt hafa til að bera. Þetta var jafnaðarmönnum án efa ljóst, þegar þeir kusu Vogel formann á aukaþingi flokksins í júní. Hins vegar áttu þeir ekki annarra kosta völ. Oskar Lafontaine, forsætisráðherra fylkisins Saarlands, sem um tíma var talinn vænlegur arftaki Brandts, nýtur að vísu mik- illar hylli róttækari armsins í flokknum en íhaldssamari jafnaðarmenn eru honum and- snúnir. Lafontaine var því ekki líklegur til að stilla til friðar milli stríðandi aíla í flokknum. Allt um það hefði Willy Brandt eflaust frem- ur kosið að hinn ungi forsætisráðherra Saar- lands leysti sig af hólmi, enda Lafontaine bæði eftirlæti og „pólitískur uppeldissonur" Brandts. Hans Jochen Vogel á erfitt verk fyrir höndum. Hann tekur við formennsku í flokki sem hefur einkennst af sundurlyndi, agaleysi og öðrum meinlegum pólitískum kvillum. Vogel hefur lýst því yfir að hann muni láta hendur standa fram úr ermum við að kúska flokksbræður sína til hlýðni og aga á komandi tímum. Vegna þess, hve Vogel þykir læriföðurlegur í fasi, hafa gárungar gefið honum viðurnefnið „yfirkennari". Það á eftir að koma í ljós, hvort kennarahæfileik- ar hins nýja formanns nægja til þess að þagga niður í óróaseggjum og koma á friði og póli- tískri einingu meðal vestur-þýskra jafnaðar- manna á komandi tímum. • Arthúr Björgvin Bollason • Hans Jochen Vogel tók við formennsku af Brandt en þykir skorta reisn hans og glæsimennsku • „Pípumaöurinn" Herfoert Wehner, formaður þingflokksins 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.