Þjóðlíf - 01.09.1987, Side 27

Þjóðlíf - 01.09.1987, Side 27
ERLENT • Scilla Mac Lean starfar meö The Oxford Research Group en sá hópur komst að þeirri niðurstöðu að uþb. 800 manns taki allar ákvarðanir um kjarnorkuvopn og móti hernaðarstefnu Nató • Hvernig er hægt aö stööva vígbúnaða- kapphlaupið? • Deilumál á að leysa með pólitískum lausnum ekki hernaðarlegum. • Hvernig líta þeir á hlutverk Evrópu eins og staða heimsmála blasir við? • Hver er afstaða þeirra til kjarnorkuvopna- lausra svæða? • Hvaða áform eru uppi varðandi efna- vopn? • Ástand heimsmála hefur breyst mjög frá stofnun NATO en stefna NATO breytist ekki, hvernig skýra þeir það? • Hvernig myndu þeir taka tilboði Varsjár- bandalagsins, um að setjast niður til að ræða hernaðarstefnu bandalaganna (slíkt tilboð kom frá H. Krolikowski formanni miðstjórnar Kommúnistaflokks Austur- Þýskalands þessa daga og kom þeim NATO- mönnum mjög á óvart)? • Af hverju er ekkert samband milli NATO og Varsjárbandalagsins (líkt og símalínan milli Kreml og Hvíta hússins)? • Viðurkennir Nato rétt Austur-Evrópu- búa til að lifa í sósíalísku kerfi? • Hafa þeir hugsað út í, hvaða áhrif það hefur á börn að alast upp í skugga kjarn- orkuvopnanna og að búa við stöðugan ótta? • Gera þeir sér grein fyrir að margar konur vilja ekki eiga börn vegna kjarnorku- ógnarinnar? • Væru þeir tilbúnir til að taka á móti sendi- nefnd kvenna frá Varsjárbandalaginu? kvöldferð um brússel. Að kvöldi var haldið heim, en á leiðinni fór gestgjafi minn með okkur nokkrar í kvöldferð um Brússel. Hún sýndi okkur miðtorg borgar- mnar La Grand Place sem er umkringt hús- um frá 14.-17. öld. Þar voru borgarstjórnin °g gildi handverksmanna til húsa. Allt var uPplýst og fögur hljómlist ómaði. Þetta var e|tt þeirra augnablika þegar fortíðin verður ljóslifandi og ekki kæmi á óvart þótt konur í krínólínum, eða herrar á hnébrókum með skrautleg parrukk, þar sem nánast naktar konur sátu og buðu blíðu sína hverjum þeim sem borga vildi fyrir. Slíkt hafði ég aldrei séð nema í bíó, en sú danska, sem með okkur var, lét þau orð falla að nú væri til orðið tvenns konar verðlag í vændinu, þeir sem vilja gera það með smokk og hinir sem þora að taka áhættuna og borga talsvert meira! Það verður ekki á mannskepnuna logið, hún er til í allt, líka sjálfsmorð. Næsta dag voru konur snemma á fótum, því rétt þótti að mæta tímanlega ef varúðar- ráðstafanir yrðu tímafrekar. Kl. 10 hittist hópurinn við hlið aðalstöðva NATO og hélt áleiðis inn í byggingarnar. Ekki þurfti að kvarta yfir vopna- og sprengjuleit, enda konur þessar heldur sakleysislegar á vor- klæðum í blíðunni. Síðan þurfti hver og ein að bíða þess að verða sótt af fulltrúum síns lands, því til að fara inn á skrifstofurnar þarf sérstaka passa. VIÐRÆÐUR VIÐ SENDIHERRANN. Ég hitti að máli þá Einar Benediktsson sendi- herra og Róbert T. Árnason sem gegnir embætti hernaðarráðunauts íslands hjá NATO. Því miður var tíminn mjög naumur, því á síðustu stundu kom í ljós að fram- kvæmdastjóri NATO, Lord Carrington, gat tekið á móti okkur í nokkrar mínútur og varð að taka þær af viðtalstímanum. Ég lýsti tilgangi heimsóknarinnar fyrir Einari, og sagði honum að konur væru afar áhyggjufullar vegna stöðu vígbúnaðarmála. Ég lagði fyrst fyrir hann þá spurningu, hvort hann hefði trú á því að samningar myndu nást milli stórveldanna um fækkun eldflauga í Evrópu og svaraði hann því til að hann teldi að slíkt samkomulag myndi liggja fyrir í lok ársins. Ég spurði hvort þeir (Róbert var nú kominn inn) teldu að slík fækkun myndi ekki kalla á ný vopn og eflingu hefðbundins víg- búnaðar, en því svöruðu þeir neitandi og vísuðu til NATO-fundarins í Stavanger sl. vor því til staðfestingar. Slíkt ætti ekki og mætti ekki gerast. Ég spurði um tilboðið frá Krolikowski, hinum austur-þýska og hvers Vegna því hefði verið hafnað þegar í stað (það stóð í blöðunum þennan morgun). Ein- ar kannaðist ekki við þetta tilboð, og þar af leiðandi ekki hverjir hefðu tekið ákvörðun um að hafna því, eða hvort það hefði verið gert yfir höfuð. Út frá þessu spunnust um- ræður um hin ýmsu tilboð sem streyma frá Sovét og hvað væri að marka þau. NATO- menn vísa til þess að allir samningar verði að vera trúverðugir, eða hægt að sanna að þeim sé framfylgt (verifiable á ensku), og hafa oft 27

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.