Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 38

Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 38
INNLENT Islendingur í eyðnimálum Helsta vandamálid eróttinn - Fulllrúar okkar hjá Sameinuðu þjóðun- um hafa setið hjá þegar greidd hafa verið atkvœði um ýmsar afvopnunartillögur á síð- ustu árum s.s. tillögu Svíþjóðar og Mexíkó um frystingu og tillögu Mexíkó um tilrauna- bann. Petta hefur verið talsvert gagnrýnt hér á landi. Má búast við jákvœðari afstöðu af okkar hálfu til slíkra tillagna í samrœmi við þá stefnu stjórnarinnar að styðja alla raun- hœfa afvopnunarviðleitni? „Ég mun taka þá hluti alla til endurskoð- unar. - Ilvað með kjarnorkuvopnalaus Norður- lönd? „Mér finnst sjálfsagt að taka þátt í þeirri umræðu en ef samkomulag næst í Genf þá er það að vissu leyti miklu víðtækara. En á þessum vettvangi getum við líka notað tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi þess að draga úr kjarnorkuvopnum í hafinu. Ég geri mér Ijóst að Norðurlöndin geta ólík- lega samið um að engin kjarnorkuvopn verði í hafinu á milli þessara þjóða en við getum alltaf látið raddir okkar heyrast og lýst and- stöðu okkar við slíka uppbyggingu í hafinu.“ - I lokin langar mig að víkja aðeins að viðskiptamálunum. Pú hefur lýst því yfir að þú viljir bœði efla og breyta utanríkisvið- skiptunum. Hvernig? „Já, ég tel að utanríkisviðskiptin og sér- staklega tengslin við Evrópubandalagið hafi vaxandi þýðingu. Helmingurinn af okkar út- flutningi fer þangað. Við þolum ekki að ganga í bandalagið en ég vil leita eftir því innan Efnahagsbandalagsins, innan GATT og innan EFTA, að fiskur verði viðurkennd- ur sem iðnaðarvara og komist inn fyrir toll- múra. Við eigum að nálgast Evrópubanda- lagið með því að segja: Við skulum útvega ykkur ómengaðan gæðafisk, og fá þá tollana lækkaða um leið. Ég veit að margar þjóðir innan bandalagsins vilja þetta en það eru líka nokkrar fiskveiðiþjóðir sem ennþá halda dauðahaldi í nokkra úrelta togara og fiski- báta og vilja komast til veiða í okkar lögsögu. Skoðanir eru því skiptar um þessi mál innan bandalagsins. Það verða viðræður á milli okkar og Evrópubandalagsins á næstu mán- uðum um þessi mál. Nýlega höfum við stækkað sendiráð okkar í Brussel og komið upp viðskiptadeild undir stjórn Einars Benediktssonar, sendiherra, og ég geri mér vonir um að í gegnum það verði okkar tengsl beinni við Evrópubandalagið og ákvarðana- töku þar.“ -Búast má þá við að viðskipti okkar við Vestur-Evrópu aukist enn á nœstu árum? „Já, ég tel að þau muni fara vaxandi.“ • Ómar Friöriksson RAGNAR GUNNARSSON er íslenskur sál- fræðingur sem hefur starfað í Danmörku undanfarin tíu ár við ýmsar greinar sálfræð- innar, s.s. barnasálfræði og endurhæfingar- sálfræði. Hann starfar nú við Marsellisborg hospitalet í Árósum við ráðgjöf fyrir eyðni- sjúklinga og er einnig sálfræðingur hjá M.S. Foreningen með ráðgjöf fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þrátt fyrir mikið vinnuálag heldur hann einnig oft fyrirlestra um endurhæfingarsálfræði þar sem hann er einn af fáum sálfræðingum í Danmörku með þá menntun. Ég spurði Ragnar hver væru helstu vanda- mál eyðnisjúklinga. „Eitt helsta vandamálið er óttinn sem grípur fólk þegar það fær þann úrskurð að það er srnitað," segir Ragnar. „Það sem fólk heyrir fyrst og fremst er eitt orð sem ekki er nefnt, það er dauðinn. Læknar eru oft á tíð- um mjög tillitslausir þegar þeir hveða upp dóminn. Þeir segja ef til vill einungis: „Þú ert pósitífur“ - án þess að útskýra hvað það þýðir. Það er ekki vitað með vissu hvort allir þeir sem smitast fái sjúkdóminn á lokastigi og það er líka mjög óvíst hvað menn geta verið lengi smitaðir áður en þeir fá sjúkdóm- inn. Það er allur gangur á því. Þetta er fyrsta sjokkviðbragðið. Síðan kemur óttinn við al- menningsálitið og hugarangur um við hvern á að tala. Þeir hafa það verst sem ekki opna sig og treysta sér ekki til þess að tala við nokkurn mann um ástand sitt. Bisexual fólk getur lent í gífurlegum krís- um. Menn geta verið giftir og geta verið bún- ir að smita konurnar sínar áður en þeir upp- götva að þeir eru smitaðir og sektarkenndin og skömmin sem því fylgir getur verið meiri en hjá hommum." Pú ert sem sagt að hjálpa sjúklingunum að vinna með óttann? „Já, ég er að hjálpa þeim að komast yfir hann og snúa sér að því að lifa lífinu. Menn geta komið til mín alveg vonlausir og bitrir. Ég get í rauninni ekkert ráðlagt eða sagt þeim hvernig þeir eigi að lifa lífinu, aftur á móti get ég fengið þá til að vega og meta möguleikana sem þeir hafa. Þeir sem eru tilbúnir til að taka þá afstöðu komast yfir sorgina og geta tekið dauðann og sjúkdóm- inn í sátt.“ Finnst þér sú mikla frœðsla sem fer fram í Danmörku hafa á einhvern hátt neikvœð áhrif eyðnisjúklinga? „Já, hún getur haft það þótt fræðsla sé nauðsynleg. Það er aðallega hvernig fréttirn- ar eru settar fram sem getur haft slæmar afleiðingar bæði fyrir sjúklingana og al- menning. Æsifréttamennska hefur oft þær afleiðingar að fólk verður hrætt að óþörfu og fordómar gagnvart sjúklingum geta aukist. Til dæmis var æsifréttablað með þá fyrirsögn á forsíðu að allir sem smitast fái sjúkdóminn og deyi af honum. Þetta er ekki vitað enda kom í Ijós í smáa letrinu að aðeins tveir-þrír amerískir sérfræðingar væru á þessari skoð- un. Fræðsla í þeim tilgangi að hræða hefur lítil varanleg áhrif. Menn geta verið gripnir ótta við að smitast um tíma en síðan dvínar óttinn og þar með áhrif fræðslunnar. Það er nauðsynlegt að vera raunsær um þessi mál og höfða til skynsemi fólks. Það er óþarfi að hræða fólk, því það er hrætt fyrir. Fólk í nútímaþjóðfélagi afneitar dauðanum, reynir að útiloka hann og það álítur dauðann eitthvað sem gerist á stofn- unum. í rauninni er dauðinn hluti af lífinu sjálfu og var það hér áður en hann var lokað- ur inni á stofnunum." Hvaða breytingar hefur það í för með sér fyrir manneskju að vita að hún á ekki nema ár eða svo eftir ólifað? „Eins og ég sagði áðan fer það mjög eftir afstöðu fólksins sjálfs. Taki fólk þá afstöðu að það vilji vinna með sorgina og að það vilji lifa á það möguleika á að njóta lífsins það sem eftir er og jafnvel framlengir líf sitt með jákvæðri afstöðu. Sumir fara í afneitun a vandamálinu, vilja ekki tala við neinn og er nákvæmlega sama hverja það smitar. Fyrir þessa menn er ekkert hægt að gera. Það er undir þeim komið hvort þeir vilja sálfræði- lega hjálp eða ekki. Það er ekki hægt að móralisera yfir fólki því þá fer það upp á móti manni. Það sem ég geri er að vinna trúnaðar- traust þeirra og á þeim grundvelli er hægt að vinna. Það geta gerst mjög jákvæðir hlutir í ltfj manns sem fær eyðni, þótt ótrúlegt meg1 virðast. Komist menn yfir sorgina fara þe'T að endumeta líf sitt og nýir hlutir fá forgang1 lífi manna. Menn fara að njóta þess sem gef' ist í kringum þá. Jafnvel svo einfaldar stað- reyndir eins og að fuglarnir syngja og grasið grær. Sumir ná mun betra sambandi við for- elda eða aðra ættingja, af því að þeir fara að líta þá öðrum augum. Samböndin verða oft færri en yfirleitt miklu betri en áður. Það er 38
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.