Þjóðlíf - 01.09.1987, Side 48
LISTIR
allt inn í ríki þagnarinnar. Fyrir einhverjum
árum var tildæmis fært upp eftir hann leik-
verkiö Andardráttur. Paö tók hálfa mínútu í
flutningi. A sviðinu var ekkert annað en sorp
og öskutunnur á stangli. Það heyrðist lágur
andardráttur sem ágerðist og fjaraði síðan
út. Tjaldið fellur.
Árna Ibsen þykja þessar kenningar um að
Beckett hafi skrifað sig í sjálfheldu heldur
einfaldar. „Vissulega er hann frammi á
gnípunni, úti við jaðarinn," segir hann. „En
það er ekki til nein þumalfingursregla um að
einhver fylgni sé milli lengdar verks og inni-
halds þess. Síðari verk hans eru knappari en
ekkert efnisrýrari. Hann er sífellt að útvíkka
vitundina, að komast nær einhverri reynslu
sem vandasamt er að koma í orð. Þótt stund-
um sé sagt að hann skrifi eins konar and-
leikrit, þá þykist ég vita að hvert verk sé
honum gífurlega erfitt.“
Sýnisbókin á verkum Becketts sem út
kemur í haust hefur að geyma sjö leikverk
eftir hann. Þar á meðal eru nýjar þýðingar á
Beðið eftir Godot og Endatafli. Hin leikritin
eru öll styttri, en nokkur þeirra hefur Árni
sjálfur sett upp: Allir þeir sem við falli er
búið, Komið og farið og Ohio Inpromptu.
Að auki birtast þarna sex prósaverk eða
smásögur og um tugur Ijóða. Það er Svart á
hvítu sem gefur bókina út.
SAMUEL BECKETT er frægur fyrir að vera
dulur maður sem lítið er á mannamótum. Þá
sjaldan að hann fæst til að gefa viðtöl, svarar
hann yfirleitt á skjön og út í hött. Um hann
hefur í lifanda lífi skapast ákveðin goðsögn,
sem hefur fengið að vaxa og dafna í blaða-
greinum og ævisögum. Það er næstum einsog
sumir álíti að Samúel sé ekki af þessari jörð;
hann sé tómhyggjumaður sem hafi sagt sig úr
samfélagi manna. Miklu líklegri skýringu
álítur Árni þó þá að hann vilji hreinlega fá að
vera í friði fyrir argaþrasi og hégóma. Þó eru
af því sögur að íslendingar hafi séð Samúel,
eða réttara sagt skuggann af honum. Sögur
af mönnum sem hafa naumlega misst af
Beckett kváðu vera fleiri en sögur af mönn-
um sem hafa hitt hann í eigin persónu. Árni
Ibsen segist hafa orðið var við skuggann af
honum í útskoti á Royal Court-leikhúsinu í
Lundúnum, þar sem verk hans eru leikin af
mestri list. Fyrir nokkrum árum skrifaði
Illugi Jökulsson skemmtilega grein um það
hvernig hann eltist við skuggann af Samúel í
París einn góðviðrismorgun. Líklega hefur
Thor Vilhjálmsson þó komist einna næst
holdlegu sambandi við Samuel Beckett.
Raunar er ekki vitað til þess að af þeirra
fundi hafi orðið, en Thor mun einhvern tíma
hafa haft af því spurnir að Samúel hafi
komist í tæri við svarta dauða og þótt sá
drykkur harla góður. Hann hafði þá nýskeð
fengið Nóbelsverðlaun og Thor áleit að gjöf
frá sér og íslandi gæti glatt Samuel Beckett:
Náttúrulega tvær flöskur af svarta dauða...
• Egill Helgason
ARI JÓHANNESSON
• Listamennirnir fimm sem sýna í Gallery Svart á hvítu í haust frá vinstri: Sveinn, Georg Guðni,
Sigurður, Helgi Þorgils og Margrét
Stórsýmngar____________
Stórir Hstamenn hugsa sér til hreyfings
HELGI ÞORGILS Friðjónsson sýnir um
þessar mundir á tveimur stöðum í bænum; í
Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg sýnir
hann grafík, vatnslitamyndir og olíupastel; á
Kjarvalsstöðum olíumálverk. Sýningar hans
voru opnaðar 4. þessa mánaðar og þeim mun
ljúka 20. september.
Þegar við komum við í vinnustofu hans
vestur í bæ var Helgi Þorgils að undirbúa
sýningar sínar. Innrömmuðum myndum var
staflað upp við vegg en forvitnir gestir fengu
að „fletta“ þeim. Aðspurður um þær til-
vísanir í gríska goðafræði sem gestunum
fannst mega Iesa í myndunum sagði Helgi
Þorgils að ekki væri minna um tilvísanir í
okkar eigin goðafræði. Hann kvaðst ekki
vilja túlka myndir sínar. „Ég reyni að
illústrera," segir hann, „ég teikna ekki
skýringarmyndir. Ég vil helst að fólk ákveði
sjálft hvað það sér í myndunum mínum - og
það á að vera tiltölulega auðvelt að sjá eitt-
hvað út úr þeim.“
Við mynduðum Helga Þorgils fyrir fram-
an stór olíumálverk til þess að gefa lesendurn
innsýn í myndaheim hans.
Önnur stór nöfn verða annars á ferðinm 1
vetur hjá þessu sama galleríi. Næstur veröur
þar Sigurður örlygsson sem sýna mun mál-
verk frá 26. september til 11. október. Ham1
mun einnig sýna á Kjarvalsstöðum í mars <
vetur.
Á sýningu sinni í galleríinu segist Siguröur
munu sýna verk sem séu býsna ólík því sen1
hann hafi fengist við - í myndunum sé bæð‘
þrívídd og landslag. Á Kjarvalsstöðum nm11
Sigurður hins vegar sýna risastór málverk-
svo sem sjá má á ljósmyndinni sem fyte|r
þessari grein. Á þeim tekur Sigurður fyr,r
myndseríu með púðurkvörn og leikur sér a
formi. Af öðrum stórmálurum sem munu
brátt sýna í Galleríi Svart á hvítu viljum
við
nefna Georg Guðna, sem sýna mun olíuma
verk, teikningar og vatnslitamyndir dagana
17.október - 1 .nóvember, og Margréti Ar,ul
dóttur Auðuns, sem sýnir málverk fra
nóvember - 22.nóvember.
48