Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 56

Þjóðlíf - 01.09.1987, Qupperneq 56
Ríkhard H. Friöriksson Á TÓNLEIKUNUM föstudagskvöldið 18. september kl. 20.30 í Langholtskirkju verð- ur flutt verk eftir Ríkharð H. Fríðríksson en hann lauk meistaraprófi við Manhattan School of Music sl. vor. Verk Ríkharðs, The Titanic, var loka- verkefni hans við skólann og um það segir hann í efnisskrá UNM: „Hugmyndin kom í september 1985, í inntökuprófum í skólann, þegar ég var beðinn um að skrifa lítið stykki um skipið á einni kvöldstund (það var þá nýfundið). Pessa nótt skrifaði ég lítið stykki fyrir tvær básúnur og píanó, stykki sem með örfáum endurbótum hefur verið útsett fyrir hljómsveit og er nú orðinn lokakaflinn í The Titanic. í verkinu er sögð saga Titanic í stuttu máli. Fyrsti kaflinn fjallar um vígslu skipsins, lúðraþeytt útgáfa af „Rule Brittania" þar sem skipið rennur í sjó fram undir lokin. í öðrum kaflanum fer vélin í gang og ferð- in hefst. Þar dansar mismunandi fólk við ýmiss konar tónlist. Fátækir írskir útflytj- endur dansa sinn jig, fína fólkið dansar vals (eftir Berlioz) og glaumgosarnir dansa við „Maple Leaf Rag“ Scott Joplins. Við ferð- umst upp og niður á milli þilfara með vélar- dyninn undir (vélin kemur úr annarri sin- fóníu Mahlers). En þá, ó, eitthvað gerist... Þriðji kaflinn er passacaglia, einskonar erfiljóð um skipið og farþega þess. Hún reynir stanslaust að brjótast almennilega fram en er sí og æ trufluð af sterkari öflum. Að lokum gefst passacaglian upp, lætur und- an og hopar hljóðlega niður í djúpin. Þá erum við komin að fjórða kaflanum sem á sér stað löngu seinna, á sjávarbotni. Mér er gjarnt að sjá þar fyrir mér sál skipsins, að reyna að komast aftur upp á yfirborðið, en sekkur þess í stað ennþá dýpra í botnleðj- una." Ég hitti Ríkharð að máli og spurði hann um stílbrögð sem hann beitir við tónsmíðarn- ar. „Ætli ég sé ekki nýrómantíker með „mini- malísku" ívafi," segir hann spekingslega og bætir við til skýringar: „Ég hef aldrei verið klár á því hvað nýrómantík er en ætli það sé ekki andsvar við pling-plong nútímatón- listarstílnum. Dúr og moll er ekki lengur afneitað. Þau eru jafn nýtileg og hvert annað tónefni.“ Við ræðum nú aðeins um mikilvægi þess að halda UNM-hátíðina og fá tækifæri til að koma fram, ekki síst með svona stórt verk- efni eins og hann er með, og rétt nýkominn úr námi frá Bandaríkjunum. Talið beinist að skólanum. „Manhattan School of Music er mikill öndvegisskóli. Ég fattaði ekki við hversu mikið aðstöðuleysi við búum hér fyrr en út kom. Það er eiginlega ótrúlegt að fólk skuli yfirleitt leggja út í að reka tónlistarskóla - aðstaðan gæti þó eitthvað hafa batnað en það er t.d. ekki starfrækt neitt bókasafn sem er stór hluti af menntun tónlistarmanna. Hér verður maður að ganga á einstaklinga og sníkja af þeim plötur eða nótur en úti er hægt að ganga að þessu vísu á einum eða tveimur stöðum. í skólanum mínum, sem er frekar lítill, er plötusafn sem Ríkisútvarpið gæti dauðöfundað þá af og að sjálfsögðu eru nótur þar líka. Hér á landi er líka algjör vöntun á aðstöðu til elektrónískra tón- smíða." - Hvað tekur nú við hjá þér nýkomnutn heim úr námi? „Tónsmiðir geta farið að kenna fyrir hlægilega lág laun, eða þau voru það a.m.k. síðast þegar ég vissi. Ef þeir eru nógu kaldir geta þeir farið að semja músík fyrir auglýs- endur og útsetningar og þess háttar hluti fýr- irt.d. leikhús. En égveitekki hvað éggeri,ég er það glænýkominn heim að ég verð að fara að vinna fyrir skuldunum sem ég er búinn að safna að mér á sl. 2 árum. Markaðurinn er svo lítill að ætli maður endi ekki bara í skurðgreftri." • Atli Heimir Sveinsson heldur fyrirlestur fimmtudaginn 17. september kl. 14 í Tón- listarskólanum í Reykjavík. Þar fjallar hann um óperutónsmíðar, allt frá dögum Monteverdi til Atla Heimis. Flutt verða tón- dæmi, m.a. úr Silkitrommu Atla sem er hans fyrsta ópera. JENS ALEXANDERSSON • Ríkharð H. Friðriksson. „Dúr og moll er ekki lengur afneitað." Ætlí ég sé ekki nýrómantíker 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.