Þjóðlíf - 01.09.1987, Page 60

Þjóðlíf - 01.09.1987, Page 60
TÆKNI & VÍSINDI Lækning á næsta leyti? Kapphlaupid um lyfin gegn eyöni EYÐNISJÚKDÓMURINN hefur nú grassér- að meðal mannkyns á vesturhveli jarðar í nokkur ár og enn hefur engin lækning fund- ist. Nokkur lyfjafyrirtæki vinna þó að rann- sóknum með lyf sem virðast munu lofa góðu, þótt enn sé of snemmt að spá. Ljóst er að það fyrirtæki, eða þau fyrirtæki, sem fyrst koma fram með lyf sem slá á sjúkdóminn, svo ekki sé talað um útrýmingu, munu græða stórfé og því er kapphlaupið geysihart milli helstu Iyfjafyrirtækja heims. Vírusinn sem orsakar eyðni kallast HIV. f*au lyf sem nú er unnið með gegn eyðni eru annars vegar lyf sem ráðast gegn HIV og hins vegar lyf sem vinna gegn þeim skemmdum á varnarkerfi líkamans sem eyðniveiran hefur unnið. HlV-veiran drepur nefnilega ekki sjálf; hún brýtur niður varnarkerfi líkamans þannig að hann hættir að hafa mótstöðu gegn sjúkdómum. Núna er unnið að tilraun- um með ýmis konar efni sem gefa sýktum líkama vopn sem hann getur ekki framleitt sjálfur eða efla hið veika mótstöðukerfi líkamans. En þessi efni snerta hins vegar ekki sjálfa veiruna, en það hlýtur að vera framtíðardraumurinn að finna vopn sem bít- ur á hana. HlV-veiran kemur sér svo vel fyrir meðal fruma Iíkamans að það er afskaplega erfiú að ráðst gegn henni án þess að eyðileggja un' leið sýktar frumur. Á þessari stundu er ekk> hægt að vonast til annars en að lyf finnist sen' geti haldið eyðni-vírusnum niðri og því þab, eyðni-lyf að vera þannig að notandinn þol' það vel til langframa. Það þarf að vera auð- velt í inntöku og því er best að taka þa(1 gegnum munninn. Hver skammtur þarf að endast nokkuð lengi þannig að sjúklingurinn þurfi ekki að gleypa meðal í tíma og ótíma- Lyfið má ekki hafa miklar hliðarverkanir Og lyfið þarf að geta flust til heilans á skömmum tíma, en þar er fýrsti sýkingar- staðurinn. Azidothymidine (AZT), eða öðru nafn' Retrovir, uppfyllir nærri því öll ofangreinrl skilyrði. Það er myndað úr thymidine, sem ef aftur unnið úr síldar- og laxasæði og það ef fyrirtækið Burroughs-Wellcome sem hefuf sett það á markað. Þegar HlV-veiran er að skipta sér setur hún azidothymidine í stað thymidine en getur ekki notað það sér n fjölgunar. AZT hefur miklu minni áhrit3 LENGIÐ LIFIÐ og gefið gjöfársins -----¥---- Vatnsrum hf BORGARTUNI 29 — SIMI 621622 PÓSTHÓLF 4308 — 124 REYKJAVÍK 60

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.