Þjóðlíf - 01.09.1988, Page 51

Þjóðlíf - 01.09.1988, Page 51
HEILBRIGÐISMÁL Yfir 200 milljónir í tannréttingar Samkvœmt upplýsingum ráðuneytisins einn dýrasti þáttur tannlœkninga. Aðstoðarmenn á sérfræðingstaxta. Ófull- komið og lélegt eftirlit. Afar viðkvœmt og umdeilt mál. Aberandi skortur á upplýsingum. Talið er að íslendingar séu að minnsta kosti tveimur áratugum á eftir nágranna- þjóðum hvað opinbert skipulag tannlækninga varðar. Þó eyðir þjóðin gríðarlegum upphæðum ár- lega í þennan þátt heilbrig- ðiskerfisins og þykir mörg- um nóg um. Einn dýrasti þáttur tannlækninga eru tannréttingar. I þær varði þjóðin 200—220 milljónum króna á síðastliðnu ári, samkvæmt ágis- kuðum tölum Heilbrigðisráðun- eytis. Sérfræðingar á landinu í tannrétt- ingum, samkvæmt opinberum upplýs- ingum, eru 10, og skiptu þeir þessari upphæð með sér að langmestu leyti. Opinbert eftirlit er mjög takmarkað með tannréttingum og ná- kvæmar tölur um kostnað við þær eru annaðhvort ekki til eða ekki aðgengilegar. Aðstoðarmenn sérfræðinga í tannréttingum eru fjölmar- gir og er vinna þeirra einnig seld út á sérfræðingstaxta. Engir óháðir tannlæknar eru til, sem fylgjast fyrir hönd hins opinbera með hugsanlegum hagsmunaá- rekstrum á þessum vett- vangi þrátt fyrir heimildir þar um. Greiðslur ríkis og sveitarfélaga vegna tannlækninga eru bundnar í 44. grein laga um almannatryggingar frá 1971. Samkvæmt þeim greiða sjúkrasamlög helming og sveit- arfélög helming af tannlækningum barna og unglinga sextán ára og yngri. Sömuleiðis fá þroskaheftir tannviðgerðir greiddar. Aðrir þegnar landsins verða hins vegar sjálfir að standa straum af viðhaldi tanna sinna. Af tannréttingum greiða sjúkrasamlögin 25 prósent og sveitarfélögin önnur 25 prós- ent fyrir börn og unglinga 6—15 ára. Sjúkra- samlögin greiða 50 prósent vegna 16 ára unglinga, en þar leggja sveitar- félögin ekkert til. Að auki er heimilt að greiða úr sjúkrasam- lögum 50 prósent kostnaðar við tannréttingameðferð, sem hafin hefur verið áður en viðkomandi varð 16 ára, þar til meðferð er lokið og einnig fyrir aðgerðir á 17—18 ára unglingi ef þörfin hef- ur komið upp fyrr. í slíkum til- vikum verður að gera trygginga- tannlækni grein fyrir tilfellinu, áður en unglingurinn verður 17 ára. Tryggingastofnun felst oft á að greiða með eldra fólki en 17 ára, vegna þess að þá er oftast 51

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.