Þjóðlíf - 01.02.1989, Side 35
ERLENT
Kona
með
Þriggja
heima
sýn
Spjallað við Kelvu
Pérez frá
Dóminikanska
lýðveldinu, sem
hefur stundað nám í
Moskvu og New
York og hyggur á
starf í heimalandi
sínu
Hún er Kelva Pérez háskólanemi. Hún er
Kelva Pérez háskólakennari. Hún er frá
Dóminikanska Lýðveldinu, tveggja barna
móðir og fyrrum gift. Með meistaragráðu í
sagnfræði eftir sex ára nám við sovéskan há-
skóla í Moskvu og leggur nú stund á sögu
kvenna við amerískan háskóla í New York.
Hún hefur þriggja heima sýn frá sjónarhóli
kvenna. Þegar heim kemur bíður hennar að
móta námsefni í sögu kvenna við háskólann
og starfa áfram innan kennahreyfingarinnar
að því að leysa aðkallandi vandamál heima
fyrir. Veruleikinn er með sínu sérstaka sniði
á hverjum stað, segir hún, engin hugmynda-
fræði getur af sér lausnir sem hægt er að
flytja inn beint.
Dómínikanska lýðveldið stendur á einni
Antilla eyjanna, milli Kúbu og Jamaica. Eyj-
unni deilir það með Haiti. íbúarnir eru sex
milljónir, flestir múlattar, afkomendur
svartra innfluttra þræla og hvítra manna eða
annarra kynstofna og nú er blandan orðin
hreinasti hrærigrautur. Hún hlær við þegar
hún nefnir möguleg nafnatilbrigði okkur til
Kelva gluggar í 19.júní, ársrit Kvennréttindafélags íslands.
skemmtunar. Við lifum á landbúnaði, segir
hún. Landið gefur fjórar uppskerur á ári, á
tveimur árstíðum sem eru sumar og regn-
tími. Við ræktum ávexti og sykurreyr. Syk-
urreyrinn er aðalútflutningsvara okkar.
Hann er að mestu fluttur óunninn eða hálf-
unninn til Bandaríkja Norður-Ameríku.
Þannig erum við ansi háð Bandaríkjamönn-
um og það setur svip sinn á stjórnmálastarf-
semi. Stjórnmálaflokkar vilja gjarnan
tryggja hugmyndum sínum velvild eða sam-
þykki bandaríkjamanna fyrirfram.
Efnahagsástandið er bágt, erlendar skuld-
ir yfirþyrmandi, gengið óstöðugt og fallandi.
Landlausir smábændur flykkjast til borg-
anna þar sem þeirra bíður hvorki atvinna né
húsnæði. Margir flýja land, einkum til
Bandaríkjanna sem orðið hafa fyrirheitna
landið. Það hefur þó ekki reynst fyrirmynd-
arlandið í öllurn tilfellum. Að hennar dómi
sækja eiturlyfjabraskarar þangað fyrirmynd
sína og í sumum tilfellum reynslu. I kjölfar
eiturlyfjanna fylgja annarskonar glæpir, í
auknum mæli. Til sveita er ástandið ekki eins
slæmt, útskýrir hún fyrir spyrjandi Islend-
ingi. Þrátt fyrir að hún teljist til millistéttar
sem háskólakennari, þarf hún að vinna tvö
störf til að hafa til hnífs og skeiðar. Efnaleg
gæði svo sem hús og gamall bílskrjóður, eru
leifar liðinna velmektardaga. En það er
hreint ekki eins og hún sé að kvarta eða
barma sér, miklu fremur að lýsa hreinskilni
hversu alvarlegt ástandið er orðið. Það
bregður fyrir glettni þegar hún segir að lík-
35