Þjóðlíf - 01.02.1989, Síða 49
MENNING
Fegurð fangin í morgunskímunni. Mun-
úðarfull ást og meiri ást.
Aðrar myndir sem ku innihalda einhverja
erótík eru myndir eins og Tequila Sunrise
sem Bob Towne leikstýrir, en hann skrifaði
handritið að Chinatown, í myndinni leika
kyntröllin Mel Gibson og Kurt Russel ásamt
Michelle Pfeiffer. Einnig verður bráðum
sýnd hér myndin The Accused með Jodie
Foster en sú mynd byggir á sönnum atburð-
um, þegar konu einni var nauðgað inni á bar
án þess að nokkur lyfti hendi henni til hjálp-
ar.
Oft hefur verið sagt að erótískar myndir
gangi ekki nógu vel, fólk sé feimið við þær,
fari hjá sér. Petta finnst mér mjög skrítið þar
sem bæði Léttleikin, Bull Durham og Betty
Blue gengu allar mjög vel.
Erótíkin heldur eflaust áfram að vera um-
deild og margrædd og ég ætla ekki að leggja
neinn stóradóm á hvað sé erótískt og hvað
ekki, fegurðin liggur jú í augurn sjáandans
ekki satt?
„Þeir sem leita að ljótum meiningum í
fögrum hlutum eru spilltir...
Þeir sem finna fagrar meiningar í fögrum
hlutum eru hinir siðmenntuðu...
Fyrir þá þýða fagrir hlutir aðeins feg-
urð.“ —
Oscar Wilde
(Myndin af Dorian Gray) —
Marteinn St. Þórsson
Töfrandi, taktfastur ástartangó. Saman erum við eitt á andartaki léttleikans.
sældir, hún var mjög erótísk þó erótíkin lægi í
fólkinu sjálfu, leikurunum og umhverfinu,
svo mætti kannski líka segja um Blue Velvet,
þar sem snillingurinn David Lynch sýndi
okkur undirheima ofeldis og kynlífs.
Þessar myndir sem ég hef talið upp og tel á
einhvern hátt erótískar eiga það sammerkt
að engin þeirra gerist í nútíðinni (nema Blue
Velvet og Betty Blue, en hún er jú frönsk) og
virðast stúdíóin hafa svolítið öðruvísi viðhorf
til mynda sem gerast í fortíðinni („Við erum
að gera mynd sem gerist í kringum 1960 og
við höfum það eins og það var þá. Venjuleg-
ar ,,orgíur“.“), eða í framtíðinni. Einnig er
öðruvísi viðhorf hjá ákveðnum „karakter-
um“: „í framhaldinu af FLETCH (með
Chevy Chase), gengur hann niður í bæ og
sefur hjá algerlega ókunnugri konu, en það
er soldið sem Fletch myndi gera. Ætti hann
að nota smokk? Við höfum ekki ákveðið það
ennþá.“ (Forsvarsmaður Universal kvik-
myndaversins).
Aðrar tegundir af myndum sem hafa kom-
ið inn í þessa umrræðu eru myndir sem fjalla
um samskipti kynhverfra, það virðist sem
þær hafi horfið sem dögg fyrir sólu síðustu
tvö árin. Rétt áður en AIDS umræðan kom
upp var nýbúið að sýna tvær slíkar myndir
sem náðu miklum vinsældum," Koss köngu-
lóarkonunnar" og „Fallega þvottahúsið mitt“
(My Beautiful Laundrette), en síðan þá hef-
ur engin mynd sem inniheldur kynhverfa eða
tekur á þeirra málum náð eins miklum vin-
sældum. Að vísu er á döfinni að framleiða
nokkrar slíkar. Harvey Fierstein er að fram-
leiða eina sem hefur hlotið nafnið Torch
Song, en hann segir: „Við þurfum að sjá
eitthvað jákvætt um homma án þess að
AIDS sé dregið inn í þá umræðu. Það er
alveg nóg að vera hommi og svo þessi sjúk-
dómur.“