Þjóðlíf - 01.02.1989, Page 65
UMHVERFI
Skýrsla Ósonnefndarinnar
Vaxandi notkun óson-
eyðandi efna á íslandi
Notkun ósoneyðandi efna jókst verulega milli
áranna 1986 og 1987 á íslandi. Gert er ráð
fyrir að draga úr notkuninni á næstu árum
um 25% af notkuninni 1986 fyrir árið 1991.
Enn sem komið er hafa Islendingar ekki gerst
Mælingar á
Ósonlaginu
sýna þynningu
Endurteknar mælingar á ósonlaginu hafa gefið
til kynna að ósonlagið hefur þvnnst nokkuð á
undanförnum árum.
Um árabil hafa verið gerðar athuganir á
þykkt ósonlagsins. Pegar árið 1960 mældist
þynning á ósonlaginu og er það mat sumra að
hún hafi verið afleiðing kjarnorkuvopnatil-
rauna stórveldanna í gufuhvolfinu sem áttu sér
stað um það leyti. Árið 1985 fannst gat á óson-
laginu yfir Suður—heimskautssvæðinu og at-
huganir benda til að þetta svæði hafi verið að
stækka. Reyndar hafa athuganir á ósonlaginu
yfir Suður—heimskautinu sýnt að allt frá árinu
1979 hafi umtalsverð þynning átt sér þar stað.
Um áramótin síðastliðinn var framkvæmd ítar-
leg könnun á þykkt Osonlagsins yfir norður-
hvelinu af erlendum aðilum og greindist þá
ekki nein óeðlileg þynning á því. Hinsvegar
komu ljós önnur undarleg efnaferli og efna-
sambönd og er nú verið að vinna að rannsókn
þeirra gagna er úr rannsókninni fengust.
Að sögn Ragnars Stefánssonar hjá Veðurs-
tofu fslands er hér á landi reglulega fylgst með
ósonlaginu yfir landinu. „Við höfum reglulega
mælt osonið í andrúmsloftinu með sérstökum
mælitækjum. Þetta er gert þannig að við athug-
um hvernig sólargeislarnir síast á mismunandi
vegu í gegnum mismunandi efni, þannig að
ákveðnar bylgjur dofna meir út af ósonlaginu
heldur en aðrar. Þannig getum við áætlað
heildarósonmagnið frá jörðinni og uppúr. —
Þessar mælingar okkar hjá Veðurstofunni
hafa sýnt litlar sem engar breytingar á ósonlag-
inu. Það er mikil sveifla í þykkt ósonlagsins, en
það er ekki hægt að segja að það hafi mælst
marktækar breytingar. I'að hefur hinsvegar
aldrei mælst neitt gat á ósonlaginu yfir íslandi.
Einu marktæku breytingar sem að hafa fundist
á ósonlaginu eru á Suðurskautinu. Þar fannst
gat, sem er þóekki stöðugt. Osonlagið gengur í
bylgjum, þannig að það er mest hætta á þessu á
þeim árstíma þegar það er mjög kalt. Svona gat
myndast einungis við mjög ákveðnar aðstæður,
sagði Ragnar í samtali við Þjóðlíf.
Kristján Ari.
aðilar að alþjóðlegum sáttmálum, Vínarsátt-
málanum og Montrealsanmingnum um að
draga úr notkun á ósoneyðandi cfnum.
Að sögn Páls Flygerings, ráðuneytisstjóra
í Iðnaðarráðuneytinu, hefur ráðuneytið látið
gera úttekt á heildarnotkun ósoneyðandi
efna hér á landi og tillögur til að draga úr
þeirri notkun að frumkvæði Friðriks Sop-
hussonar, fyrrverandi Iðnaðarráðherra.
„Það var sett nefnd í málið, svokölluð Óson-
nefnd. og í desember síðastliðnum kom hún
með tillögur að reglum og ákvæðum í þess-
um efnum. Og ríkisstjórnin hefur nýverið
ákveðið að fara eftir þessum tillögum.
— Nefndin var skipuð þann 15. júní á síð-
astliðnu ári og var henni falið að kanna notk-
un efna og efnasambanda, sem eyða óson-
laginu, og gera tillögur um hvernig draga
mætti úr þeirri notkun. Ennfremur var henni
falið að áætla þann kostnað sem af slíku hlyt-
ist. Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður
Geislavarna Ríkisins, var tilnefndur af ráð-
herra sem formaður nefndarinnar, en auk
hans sátu í nefndinni þeu Eyjólfur Sæmunds-
son, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, Sveinn
Jónsson, vélstjóri, Hermann Sveinbjörns-
son, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra
og Sigurbjörg Gísladóttir, deildarefnafræð-
ingur hjá Hollustuvernd ríkisins.
í skýrslu Ósnonefndarinnar er stutt úttekt
á þeim vanda sem við er að etja varðandi
þynningu Ósonlagsins og kemur þar fram að
þessi þynning mælist einungis í einn mánuð á
ári, en ástandið færist síðan í eðlilegt horf. í
skýrslunni segir einnig að margir óttist að gat
geti myndast á osonlaginu yfir norðursvæð-
um jarðar...,, með enn alvarlegri áhrifum
vegna þéttari byggðar.“
Það sem vekur sérstaka athygli í skýrsl-
unni er að notkun klórflúorefna á íslandi
jókst um 7.4 tonn frá árinu 1986 til 1987, eða
um 4%. Á árinu 1986 var heildarnotkunin
um 200 tonn eða um 0.8 kg á hvern íslend-
ing. Á sama tíma jókst notkun halonefna hér
á landi úr 14.5 tonnum í 18 tonn. Notkun
klórflúorefna á íslandi er mest í framleiðslu
eingangrunarefna og svampframleiðslu
(52.8%), úðabrúsar (25%), kælikerfi og
varmadælur (17.1%) og afgangurinn í ýmis
hreinsi—og leysiefni og ýmiskonar umbúðir.
í skýrslunni segir að innflutningur halona á
árinu 1987 stafi af uppbyggingu slökkvikerfa
á landinu.
Megintillaga nefndarinnar var að ísland
gerðist aðili að Vínarsáttmálanum frá 1986
og undirriti Montrealsamninginn frá sama
ári. Ennfremur komst nefndin að þeirri nið-
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, tók
nefndaráliti Ósonnefndarinnar opnum
örmum og kynnti niðurstöður hennar
fyrir ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að fara í flestu eftir tilmælum
nefndarinnar, en flýtti framkvæmdaáætl-
uninni örlítið.
Friðrik Sophusson, fyrrverandi iðnaðar-
ráðherra, skipaði nefnd til að kanna notk-
un ósoneyðandi efna og gera tillögur um
hvernig draga mætti úr þeirri notkun.
urstöðu að brýnt væri að ísland fylgdi eftir
þeim aðgerðum sem að Norðurlöndin kunni
að koma sér saman um. Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðherra, hefur á vettvangi
Norðurlandaráðs beitt sér fyrir því að dregið
verði úr notkun ósoneyðandi efna og lýsti því
m.a. yfir á aukaþingi Norðurlandaráðs í nóv-
ember á síðastliðnu ári að ísland hefði hug á
því að gerast aðili að Vínarsáttmálanum.
í framkvæmdaáætlun sem að Ósonnefnd-
in gerði, er gert ráð fyrir að minnka heildar-
notkun klórflúorefna hér á landi fyrir árið
1991 um um meira en 25% af notkuninni árið
1986, og vegur þar þyngst tillaga um að
65