Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 36

Frjáls verslun - 01.05.2012, Page 36
36 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 ÞAu HAFA ORðIð Steve Jobs, stofnandi og forstjóri Apple, sem lést langt um aldur fram síð astliðið haust, var hel tekinn síðustu mánuðina, ekki bara af krabbameini, heldur líka því að knésetja Android­stýrikerfi Google sem hann kallaði grand theft. Hann hafði á orði að hann væri tilbúinn að eyða allri orku sinni og bankainnstæðu Apple í þess ari baráttu sinni gegn And roid: „I am going to destroy Android, because it’s a stolen product. I’m willing to go to thermonuclear war on this.“ Nú er stríðið komið á fullt. Út um allan heim eru Google og Apple í slag, t.d. í dómsölum þar sem kærumálin ganga á víxl. Í lok júní fékk Apple sett sölubann á nýjustu spjaldtölvu og síma Samsung í Bandaríkjunum. Svip ­ uð mál eru í gangi í Evrópu og Ástralíu. Kærumálin ganga út á brot á einkaleyfum. Þess vegna keypti Google farsímaframleiðan­ dann Motorola nýlega. Verðmæt­ in lágu í einkaleyfum sem þessi fornfrægi framleiðandi átti í sínum fórum til að setja fótinn fyrir Apple. Þetta stríð er ekki alltaf best fyrir neytendur. Í nýjustu út gáfu stýrikerfis iPhone, númer fimm, sem kynnt var á dögun­ um og fer í umferð í haust, eru Google­kort in tekin út, í stað þeirra koma ný kort frá Apple, með kortagrunni frá TomTom. Kor­ tin eru sögð mun verri en Google­ kortin, með miklu minni gagna­ grunni. Hitt, sem er enn verra, er að lönd og svæði þar sem meira en helmingur mann kyns býr eru ekki á þessu korti; þ.e. ekkert kort af Kína, Indlandi eða Íslandi. Verulegur ókostir fyrir Apple­ notendur hér heima, heima menn og erlenda ferða langa. Það hefur alltaf verið ókostur, bæði á And­ roid­ og Apple­tækjum, að þurfa dýrt niðurhal til að virkja kortin. Nokia, með sín innbyggðu kort í símanum og stærsta kortagrunn í heimi frá Navteq, er með lang­ bestu farsímalausnina til að finna mann og annan. Frábær kort og gps­viðmót. Þær ljósmyndir sem þú tekur með Nokia­símanum þín um detta inn á kortið. Ekkert niður hal, bara brosa. Ísland ögrum skorið – horfið Gísli Kristjánsson fréttaritari: Stjórnunarmoli Stundum er sagt: Vinnan fylgir þér alla ævi, jafnvel þótt þú hættir eða skiptir um vinnu. Því er ráðlegt að yfirgefa einn vinnustað í friði og sækja um aðra vinnu án þess að það valdi leiðindum. Gamla vinn an fylgir launþeganum og slæm vinnulok á einum stað geta komið honum í koll á öðrum. En oft sækir fólk um vinnu án þess að hafa endanlega gert upp hug sinn um vistaskipti. Margir vilja til dæmis halda þeim mögu­ leika opnum að vera bara áfram í gömlu vinnunni þótt þeir skoði vinnumarkaðinn. Því er rétt að fara varlega. Á að láta núverandi yfir mann vita um atvinnuleit í öðru fyrirtæki? Er rétt að ráðfæra sig við starfsfélagana? Og hvað ber að gera ef þinn gamli vinnuveit ­ andi kemur með móttilboð? Þetta eru mikilvægar spurning ­ ar. Flestir hefja leit að nýrri vinnu án þess að mikið beri á. Of mikið leynimakk getur þó endað illa. Í þessum efnum eru mörg ráð í boði og hér eru þau helstu að mati sænska stjórnunarritsins Chef: 1. Kannaðu hug þinn og hæfi leika. Rétt er að byrja á að gera lista yfir það sem þú telur þig geta og hvers þú væntir af nýrri vinnu. Leit aðu til vinnuráðgjafa til að átta þig betur á hvaða möguleika þú átt á vinnumark­ aði. Athugaðu hvort einhver störf eru í boði sem henta þér. 2. Ígrundaðu næstu skref vel. Hugsanlega er nóg að breyta til á nú verandi vinnustað, fá ný verkefni og flytjast milli deilda. Þá hverfur löng unin í nýja vinnu. 3. Ekki hafa hátt um vinnuleit. Það er skynsamlegt að halda vinnu leit inni leyndri að vissu marki. Hugsanlega er samband þitt við yfirmanninn ekki of gott og ef til ekki við vinnufélagana heldur. Nú, ef leitin ber ekki árangur getur verið neyðarlegt ef allir vita að þú vildir komast annað en fékkst ekki. 4. Einhver verður þó að vita. Það er ekki hægt að sækja um vinnu í algeru einrúmi. Ef þú þekkir fólk með sambönd er rétt að láta það vita um áhuga þinn á nýju starfi. Forðastu þó að gefa í skyn að þú sért á flótta frá núverandi vinnu stað. Enginn vinnu­ veitandi vill ráða fólk sem þolir ekki vinnustað sinn. 5. Hvenær fær yfirmaðurinn að vita? Þetta verður hver og einn að meta út frá aðstæðum. Ef þú ótt ast hörð viðbrögð við ósk um að fara frá fyritækinu er best að bíða þar til ný vinna er trygg. Annars getur verið gott að ræða nýja atvinnuumsókn við yfirmanninn. 6. Vinnuviðtalið. Ekki fara í vinnu­ tímanum í viðtal í öðru fyrirtæki. Biddu um frí vegna persónulegra aðstæðna eða farðu í viðtalið í frítíma þínum. 7. Meðmæli. Ef yfirmaðurinn veit ekki um fyrirætlanir þínar er varla hægt að biðja hann um meðmæli. Því getur verið ráð að leita til fyrri vinnuveit­ anda eða til samstarfsfólks. 8. Hafnaðu gagntilboði. Oft fær fólk gagntilboð frá vinnuveitanda sem ekki vill missa það. Stjórnun­ arfræðingar segja að þessu beri að hafna. Reynslan sýnir að flestir sem taka gagntilboði hætta engu að síður fljótlega. 9. Skiljið sem vinir. Það eru mistök að fara í fússi eða skilja við ósáttan yfirmann. Orðspor þitt úr gömlu vinnunni fylgir þér. Því ber að leggja áherslu á að vistaskiptin fari fram í góðu og allir séu sáttir að lokum. að skipta um vinnu Páll Stefánsson ljósmyndari: Græjur Þóranna Jónsdóttir segir mikilvægt að það fólk sem velst til stjórnarstarfa hafi góða, almenna og breiða þekkingu á rekstri og því lagaumhverfi sem á við um þau fyrirtæki sem það starfar fyrir. „Þótt það sé ekki nauðsynlegt að fólk sé sérfræðingar í lög um eða endurskoðun þá er mikil vægt fyrir stjórnarmenn að hafa góða þekkingu og innsýn bæði í það lagaumhverfi sem við á – og það á ekki síst við um þá sem sitja í stjórnum hjá eftir litsskyldum aði­ lum eins og fjármálafyrirtækjum, vátryggingafé lögum og lífeyris­ sjóðum – og að þeir hafi góða inn ­ sýn í uppbyggingu ársreiknings og helstu reikningsskilavenjur sem eiga við í þeim geira sem þeir starfa í. Það er nefnilega ekki nóg, eins og stundum hefur viljað brenna við, að það séu sérfræðingar í stjórninni svo sem lögfræðingar eða endurskoðendur sem sjái um þau mál sem lúta að lagaumhverf­ inu eða reikningsskilunum heldur þarf hver stjórnarmaður að hafa þokkalega góða innsýn í þessa þætti til þess að vera starfi sínu vaxinn.“ Hæfni stjórnarmanna Dr. Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá Háskólanum í Reykjavík STJÓRNUNARHÆTTIR www.alcoa.is Íslenskar konur hafa undanfarna áratugi sótt fram á stöðugt fleiri sviðum þjóðlífsins og margar þeirra standa nú við stjórnvölinn í æðstu embættum landsins. Við fögnum þessum árangri og hlökkum til að sjá fleiri konur komast til áhrifa í stjórnum fyrirtækja og stofnana á komandi árum. Tveir af þremur forstjórum álfyrirtækja á Íslandi eru konur og nær fjórðungur starfsmanna Alcoa Fjarðaáls eru konur. Við hvetjum íslenskar konur til dáða og munum áfram leggja okkar af mörkum til að stuðla að jöfnum rétti karla og kvenna. Fyrir samfélagið og komandi kynslóðir Sigríður Ingunn Bragadóttir, starfsmaður Fjarðaáls. Áfram stelpur!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.