Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 9

Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 9
Skipulagskerfí sjávarútvegsins er kerfí miðstýringar og einokunar. Flestir skilja slíka einkunnagjöísem ríkisstýringu, en svo er ekki nema að litlu leyti. Miðstýringin er í höndum svokallaðra hagsmunaaðila. ur til þess að atvinnustarfsemin sé ábata- söm, rekstur þjóðarbúsins sé arðvænlegur. Vöxtur og viðgangur ís- lenskrar menningar og tungu er sömuleið- is bundinn því að lífskjör verði bærileg í landinu. Annars flytur fleira fólk í burtu og hefur lítið með íslenska menningu og tungu að gera. „Astæðan felst í skipulagi hagkerfisins sem ræðst öðru fremur af stjórnkerfmu og hugmyndafræði fólksins“,segir Þráinn Eggertsson. Hugmyndafræði fólksins virðist miða við að helst engu megi breyta. Þetta á sérstaklega við um skipulag land- búnaðar og sjávarútvegs. Pólitíkst lítur dæmið einnig þannig út, að þingmenn hinna dreifðu kjördæma hafa ekki kjark til að ganga á móti voldugum hagsmunaaðil- um í kjördæmum sínum eða á landvísu. Voldugu hagsmunahóparnir gefa ofast út línurnar og alþingi stimplar afraksturinn frá Fiskiþingi og Búnaðarþingi. Og Versl- unarráðið lallar á eftir. Fjölmargir sérfræðingar t.d. við Há- skóla Islands hafa á síðustu árum hvatt til uppstokkunar í sjávarútvegi og landbún- aði. Meðal sérfræðinga ríkir því sem næst einhugur um það sem þarf að gera til að auka verulega hagkvæmni í þessum grein- um. En það er ekki mikið hlustað á þá. Hugmyndir um uppstokkun og breyt- ingar eru teknar sem fjandskapur við stéttir, hópa, landshluta og héröð — af fyllstu tortryggni. Málið er skoðað út frá þröngu sjónarhorni hagsmunahópins. Og á meðan siglir heildin hægt og örugglega niður á við; hún fer samdráttarleið í stað hægfara hagvaxtar eins og þau samfélög gera sem við viljum bera okkur saman við. „Við verðum að hafa kjark til þess að horfast í augu við stórstigar breytingar. Til að auka hagkvæmni og bæta lífskjör þurfum við að fækka verulega störfum í landbúnaði og sjávarútvegi. Og þeir sem verða eftir við þessa atvinnuvegi þurfa að vinna við önnur störf í framtíðinni; vöru- þróun, markaðsstarfsemi og þess háttar, því framleiðslan getur verið margfalt hag- kvæmari en hún er núna“, segir dr. Snjólfur Olafsson stærðfræðingur sem unnið hefur á síðustu árum við Raunvís- indastofnun Háskóla íslands við að rann- saka byggðaþróun, sjávarútveg og land- búnað og hagkvæmni greinanna. Og meg- inhugsun þeirra sem vilja verulega Hugmyndir um uppstokkun og breytingar eru teknar sem f jandskapur við stéttir, hópa, landshluta og héröð —- af fyllstu tortryggni. Mólið er skoðað útfrá þröngu sjónarhorni hagsmunahópins. uppstokkun er einmitt sú að fækka óhag- kvæmum störfum og fjölga arðbærum. érfræðingar benda á að almenn stefnuumræða innan atvinnuveganna sé lítil sem engin. Jóhann Antonsson við- skiptafræðingur segir um sjávarútveginn: „íslenskur sjávarútvegur býr nú við góðæri. Umræðan í þjóðfélaginu snýst ekki um afkomutölur þessarar miklvægu greinar. Það saknar líklega enginn slíkrar umræðu, hins vegar ber að harma hve al- menn stefnuumræða fyrir greinina er ómarkviss og fálmkennd. Hátt afurðaverð á erlendum mörkuðum er að sjálfsögðu megin ástæða góðrar stöðu greinarinnar, en þar kemur fleira til. Efnahagsumhverf- ið sem atvinnureksturinn býr við hér á landi er annað og betra en við höfum átt að venjast í áraraðir. Meira jafnvægi er nú á sviði efnahagsmála en áður og í raun ótrú- lega gott miðað við þær stóru syndir for- tíðarinnar, sem við berum á bakinu. Verðbólga er nú lítil. Hún er jafnvel lægri en í flestum nágrannalöndum. Það sem meira er að engin kollsteypa er í sjón- máli. Verðbólgan var minnkuð án þess að hlaða verulega upp stíflu verðlags eins og svo oft áður er stíflan brást með miklum krafti þegar létt var af verðlagshömlum. Nú er í sjónmáli heilt ár með verðbólgu á bilinu 5%—7%. Hvað gerist síðan í fram- haldi af því veltur fyrst og fremst á at- vinnurekstrinum í landinu. Auk þessa hagstæða umhverfis njóta sjávarútvegs- fyrirtækin þess að víðtæk fjárhagsleg end- urskipulagning átti sér stað hjá lífvænleg- ÞJÓÐLÍF 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.