Þjóðlíf - 01.09.1990, Qupperneq 15
fyrir uppbyggingu hennar og markmið-
um. í lokastigi áætlunarinnar er gert ráð
fyrir að fjármagni verði veitt til eflingar
vænlegustu landbúnaðarhéraðanna og
vinnslustöðvum landbúnaðurins heimil-
aður innflutningur á erlendu hráefni.
Þessi þróun mun leiða til tímabundinna
erfiðleika á ýmsum svæðum. Þeim verður
m.a. mætt með styrkjum til einstaklinga
til endurmenntunar sem og frumkvöðlum
við ný störf á landsbyggðinni.
í lokin verður viðskiptahömlum á land-
búnaðarafurðum að fullu breytt í tolla og
aðflutningsgjöld. Öll önnur höft eru úr
sögunni. Nú hafa orðið grundvallarbreyt-
ingar á skipulagi landbúnaðarmála. Það
segir sig auðvitað sjálft að þessar breyting-
ar gera m.a. kröfu til þess að Heilbrigðis-
eftirlit ríkisins verði stóreflt. Staðreyndin
er nefnilega sú, að aukið frelsi gerir kröfu
til tvenns: a) aukins eftirlits b) þéttriðnara
öryggisnets fyrir einstaklinga. Þetta á við
um væntanlega þróun á öllum sviðum efn-
hagslífsins.
- Leid íslands til markaðsbúskapar
100 dagar 100 dagar 100 dagar
Allur fiskur seldur á íslenskum mörkuðum. Útlendingum heimiluð sala og kaup á þeim. Fjárfestingar útlendinga ífiskvinnslu heimilaðar ótakmarkað. Ný kvótaleiguskipti, 30% leigt, 70% úthlut- að til 200 daga Sjóðakerfi í útgerð og fisk- vinnslu aflagt að undanteknum Úrelding- arsjóði skipa og vinnslustöðva. Ný kvótaleiguskipti, 45% leigt, 55% úthlut- að. Innan 5 ára verði úthlutað minna en 10% af fiskikvóta án endurgjalds.
Erlendar fjárfestingar heimilaðar á öllum sviðum. Leiga á fiskkvóta óheimil nema til íslendinga. Opinberir fjárfestingasjóðir at- vinnuvega lagðir niður. Úreldingasjóður og Jarðakaupasjóður starfi tímabundið. Fjárfestingasjóðir myndaðir til að styðja við bakið á starfsemi á borð við óperu, hljómsveitir og leikhús. Lánasjóði ís- lenskra námsmanna breytt í svipað horf og á Noröurlöndum. Fjárfestingar íslendinga erlendis heimilað- ar ótakmarkað á öllum sviðum. Ríkisbank- ar gerðir að almenningshlutafélögum.
Dregið úr niðurgreiðslum og tollar lækkað- ir. Tímabundnir framleiðendastyrkir til bænda. Bændur komast á lífvænleg eftir- laun sextugir. Niðurgreiðslur afnumdar en framleiðenda- styrkir hækkaðir. Tollum og lækkandi nið- urgreiðslum varið til eflingar ferðaþjón- ustu, landgræöslu, skógræktarog náttúru- verndar. Vinnslustöðvum landbúnaðarins heimilaður innflutningur á erlendum hrá- efnum. Innflutningsbann afnumið á öllum unnum matvörum samkvæmt GATT-samkomu- laginu. Tollar lækki í áföngum. Heilbrigðis- eftirlit eflt. Styrkir veittir til endurmenntunn- ar einstaklinga og frumkvöðla í atvinnulífi á landsbyggðinni.
Sementsverksmiðju, Áburðarverksmiðju og Landsvirkjun breytt í almenningshluta- félög. Verkefni flutt f rá því opinbera til sjálf- seignastofnana, sem verði í eigu ríkis, sveitafélaga, starfsmanna og fjárfestinga- sjóða. Launadeild fjármálaráðuneytis lögð niður í núverandi mynd. Hagstofa verið efld og annist allt opinbert eftirlit með atvinnurekstri svo sem hlutafé- lagaskrá og útgáfu á afkomutölum hlutafé- laga ársfjórðungslega. Dregið úr einokun ríkisins á sviði fjarskipta. Óbeinir skattar lækkaðir og aðstöðugjöld afnumin á hlutafélögum en beinir skattar haldast óbreyttir, en stefnt að lækkun þeirra. Heildaráætlun um báknið burtá 10 árum.
Dregið úr einokunarrétti starfsstétta, svo sem lögfræðinga, verkfræðinga, iðnaðar- manna, lækna og kennara. Samkeppni aukin í sérfræðiþjónustu. Olíuverslun gefin frjáls. Útlendingum heimilað að keppa við ís- lensk fyrirtæki um samgöngur til og frá landinu. (sland gert að fríverslunarsvæöi. Hafin undirbúningur að uppbyggingu við- skiptalegs fjarskiptakerfis. Komið á fót alþjóðlegum hluta- og verð- bréfamarkaði.
ÞJÓÐLÍF 15